miðvikudagur, janúar 02, 2008

La vida bella y el año 2008

Gleðilegt ár og takk kærlega fyrir allt…

Endaði árið 2007 með stæl… skellti mér í JÓLACOCKTAIL MEÐ YNDISLEGUM VINKONUM MÍNUM Þetta kvöld var æðislegt í alla staði eins og við mátti búast. Magga bauð fram heimilið sitt í Hlíð kennda við Stiga þar sem flæddu hver áfengisblandan á eftir annarri. Skemmtileg spurningakeppni var háð um líf Cocktailgellz síðastliðin ár og ég og Elva unnum Helgu Björk og Anný naumlega ;o) hehe

Bleikar prinsessu kórónur, rigning, silfur grímur, lúðrar, háir hælar, flottir kjólar og góða skapið einkenndi þetta kvöld!! Bara gaman – takk elskunar, hlakka til næsta kvölds.

Gamlárskvöld var svo með hefðbundnum hætti ;o) Tilraunaeldhús tókst mjög vel í þetta sinn og allir mjög sáttir. M&P, Kristján, Sibba, Beggi, Tinna Sif og famelía mættu í mat, horft var á skaupið sem var “gott á köflum” verð að segja að mér fannst þriðji þingmaður norðurlands vestra, sá allra besti ;o) hehe

Eva og Sindri kíktu svo í land álfanna og kíkti ég með óléttunni um bæinn. Hittum Helgu, Hafþór, Rake log Bjarka og án efa unnu strákarnir “fyllerísverðlunin” þetta kvöldið!! Kíktum svo í Actionary party hjá Sindra og félögum…bara fyndið – og svo var kíkt á rúntinn til að skoða islensk mannlíf á nýju ári. Skemmtilegt kvöld mjög!!

Nýársfögnuður saumasystra, typpavina og afkvæmabandsins var haldinn hátíðlegur í 21 sinn og var skálað fyrir nýju ári Gancia, Fresita og fleiri góðum drykkjum. Sveppasúpan og kalkúnninn voru algjört æði eins og alltaf, og borðuðu allir á sig gat…. Skotið var upp í tilefni nýs árs og má segja að sumar raketturnar hafi svo sannarlega ekki farið í “stand og náð sér upp” – hehe.

Sem sagt…. Árið byrjar með fjöri og kæruleysinu haldið áfram. Á næstu dögum tekur við lærdómur enda skil á marketing project fyrir Lazytown núna 14.janúar. Þangað til er bíóferð með skvísunum, frændsystkinahittingur, vinna í koló og bara lifa lífinu og chilla með múttunni minni.

Sjáumst hress – og lofa fullt fullt af myndum inn á síðuna á næstunni ;o)

PS.
Guðrún Helga og Gauti eignuðust heilbrigðan og fullkominn dreng 29.desember ;o) INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ NÝJASTA FJÖLSKYLDUMEÐLIMINN OG ANDRI SIGFÚS TIL LUKKU MEÐ LITLA BRÓÐUR

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk æðislega fyrir massa skemmtilegt Cocktailtjútt, elskan :D Vá það var bara gaman sko...Spurningaleikurinn var æði hahahaaa!
Lúv - MF

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir klikkað cokteilatjútt vá hvað það var gaman fyrir utan alla rigninguna haha en við skemmtum okkur konunglega við að rollta milli staða sella mín hehe
Anný