föstudagur, janúar 11, 2008

Lífið er lærdómur einn.....

Læra læra - læri læri tækifæri. Verð að viðurkenna að það er frekar áhugavert að vinna 50 blaðsíðna hópverkefni að mestu leyti í gegnum MNS samskiptaforritið ;o) Reyndar ver ég að segja að ég er ekki alveg í gírnum til að vera að læra hérna á klakanum en þetta er alveg að verða búið.

Skil á mánudaginn 14.janúar og þá mun "The LazyTown masterpiece" líta dagsins ljós! Ég og Kata höfum því notið nærveru hvor annarrar mikið upp á síðkastið.

....langaði þó að láta ykkur vita að það eru fjögur ný myndaalbúm á síðunni minni.... check it out og endilega kommentið ;o)
http://public.fotki.com/Sella

....læri læri tækifæri heldur áfram - þar til næst!!

1 ummæli:

Anna Brynja sagði...

Hæ skvís og takk fyrir kveðjuna.
Við erum að jafna okkur eftir flensu (ekki alveg að passa þegar maður er 3ja vikna að vera lasin!).
Gleðilegt ár sæta mín.
Hlökkum til að sjá þig :o)
Anna Brynja og skvísan litla.