fimmtudagur, nóvember 01, 2007

TÝNDUMST Í SVEITINNI Í MORGUN :o(

Til að gera langa sögu stutta þá löbbuðum ég, Kata og Sabbi í vitlausa átt þegar við komum út úr strætó í Hørsholm í morgun sem að gerði það að verkum að við villtumst einhvers staðar úr í rassgati. Löbbuðum því í nokkra hringi í iðnaðarhverfi - gegnum íbúðarhverfi, - gegnum skóg, - spurðum þrisvar til vegar og já endaði með að við komum KORTERI OF SEINT Í FYRIRTÆKJAHEIMSÓKN :o) Vá hvað þetta var pirrandi.

Annars er spenna í loftinu fyrir kvöldið enda eru Gyða, Kiddi og kannski einhverjir fleiri að koma í videókvöld á Rudolph Berghs Gade hjá okkur Kötu....gosið er í kæli, poppið klárt og nammið líka - mikið er lífið ljúft svona!!

Svo er J-dagurinn á morgun, jíha jólabruggið kemur í bæinn.....

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Oh get ekki beðið eftir að komast í jólaölið!!!

Tóta sagði...

...okkur Tótu - er það ekki!?!

Nafnlaus sagði...

Hahaha Tóta og Sella takk fyrir videóið í gærkvöldi :) Yndislegt! Verður endurtekið vonandi fljótlega!!!

Sella sagði...

Hehe jú Tóta mín mikið rétt - ruglast greinilega bara á nöfnum ykkar Kötu enda eru þið kvenmennirnir í lífi mínu sem ég hangi mest með ;o)

Já takk sömuleiðis Gyða mín, hlakka til næsta videókvölds!!

Nafnlaus sagði...

Hey there....... Já ég er líka alltaf að fylgjast með þér, maður er bara svo lélegur að commenta!!! En það er nú greinlega gaman hjá þér eins og alltaf... Djö öfunda ég þig að geta farið í tívolíið, shitturinn hvað ég væri til í að koma og kíkja í jólatívolí, myndi missa mig!!!! Alla vegana hafðu það gott mín kæra, sjáumst bara jah aldrei...

Kv.Sigga Dísa og lilli klifurmús ;-)

Nafnlaus sagði...

mmmm jólabruggið...langar í solleiðis :)
Vó það er ekkki á hverjum degi sem að mar villist á röltinu hehe en gott að þið komust þó á leiðarenda...15 mín og seint ;)
Knús á þinns - Maggie

Nafnlaus sagði...

hellú sellus mín!
Aldrei lognmolla í kringum mína í útlandinu hehe yndislegar þessar sögur þínar !!
Hlakka svoooona mikið til að sjá þig, verður að vera dúleg að læra í millitíðinni svo við náum zusammenstund í baunalandinu mín kæra ;) er búin að panta eitt stykki jólaölskrús m þér í lok mánaðar !!
Knús til þín sætasta, Elvus