þriðjudagur, nóvember 20, 2007

GUÐ HVAÐ ÉG HLAKKA TIL Á MORGUN.....

Það er sjaldan sem ég hef beðið jafn mikið eftir því að tíminn líði og ákveðinn tími/staður/stund renni upp t.d eins og að klukkan verði 13:00 þann 21.nóvember eins og núna.... þá á morgun verð ég vonandi rosa glöð eftir góðan árangur í Management Accounting prófi (eða allavegana búin að ná) og sæl og kát á leið á landsleik milli Danmerkur og Íslands á Parken - með fullt af yndislegu liði! Guð hvað verður gaman, kannski maður taki andlitsmálun og búning á þetta ....hehe hvað finnst þér?

Get ekki sagt hvað ég er komin með ógeðslega ógeðslega leið á því að læra undir þetta próf - en þetta er eins og þvílík hringavitleysa og eintóm eilífð.

En langaði bara til að nýta tímann og óska minni ástkæru vinkonu til 22 ára innilega til hamingju með afmælið. ANNA JÓNA MÍN TIL LYKKE MED FØDSELSDAGEN Njóttu dagsins og láttu nú dekra aðeins við þig ;o) Hlakka svo til að sjá þig vonandi um jólin!!

Lifið heil ungarnir mínir ;o)

2 ummæli:

Tóta sagði...

Til hamingju með að vera búin í prófinu!!!
Vona að þú verðir viðræðuhæf á ný eftir þennan dauða.

Hrebbna sagði...

Til hamingju med ad vera búin... góda skemmtun á leiknum djøøø hvad ég óska ad ég væri ad fara frekar en ad standa hér og thykjast vita allt um frønsk vín og matargerd... ce la vie!
Sé ykkur á eftir!