mánudagur, maí 19, 2008

Endurfundir hjá mér og hjólinu mínu ;o)

Ja hérna hér.....haldið þið ekki bara að Special agent SELLUS hafi fundið hjólið mitt í dag. Ég er svo glöð í hjartanu að þið getið ekki ímyndað ykkur ;o)

En þannig er mál með vexti að ég ákvað að kíkja í bæinn í dag og rétt eftir búðarráp ákvað ég að rölta Vendersgade - götuna þar sem hjólinu mínu var stolið og viti menn - haldið ekki bara að hjólið hafi verið þarna búið að læsa því með fallegum gulum lás við stöng rétt hjá húsinu sem ég var í..... JÁ FÓLK ER FÍFL. Hver rænir hjóli á sunnudagsmorgun fyrir utan hús nr 31 og vogar sér svo að læsa því fyrir utan nr.24 eins og ekkert sé!

Ég allavegana fann hjólið, skaust því heim til að finna öll gögn um hjólið og þaut svo aftur niður eftir þar sem Tóta aðal túlkurinn minn reddaði mér alveg - skvísan hringdi í lögguna sem fannst þetta álíka fáránlegt og okkur, en eftir um 20 mín komu líka þetta hressa löggupar (mjög myndó löggustrákur og lítil sæt löggustelpa) með HUGE KLIPPUR OG TÓKU LÁSINN Í SUNDUR - ég hjólaði því glöð í bragði heim og jedúdda hvað ég er enn glöð.

Núna bíðum við spenntar eftir pizzunni okkar, því það var ekki annað hægt en að panta pizzu og bjóða Tótunni sinni upp á fyrir hjálpina....en eitt í lokinn

ÉG Á LÍKA HJÓÓÓÓLLLLLL - LIGGA LIGGA LÁI ;O)

1 ummæli:

Stella sagði...

Glæsilegt stelpa, en frábært. Djö er þetta eins og í Jay Leno þar sem hann tekur fyrir stupid criminals :)
Til hamingju með að hafa endurheimt hjólið þitt