þriðjudagur, mars 25, 2008

UMHUGSUNARVERT...... Hvað er eiginlega að gerast á klakanum?

Fangageymslur fullar í Reykjavík - aðfaranótt páskadags!
Mikill erill var hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt páskadags og voru allar fangageymslur fullar eftir nóttina. Mikið var um útköll vegna ölvunar, hávaða og slagsmála. Einn var fluttur á slysadeild eftir slagsmál í heimahúsi við Miklubraut í gærkvöldi og er einn í haldi lögreglu vegna þess máls.

Þá voru fjórir menn í haldi lögreglu vegna húsbrots og líkamsárása í Breiðholti um miðjan dag í gær. Talið er að árásarmennirnir hafi verið fleiri en lögregla hefur enn ekki haft uppi á fleiri mönnum vegna málsins. Athyglisvert er að fangageymslur voru fullar og voru allir þeir sem færðir voru í fangageymslur af ÚTLENDINGAR!!

...Verð nú bara að viðurkenna að mér finnst þetta ekki sniðug þróun

Las þetta einmitt líka á mbl.is
Pólsk glæpagengi herja á löghlýðna Pólverja sem búa hér á landi, kúga þá og beita þá ofbeldi og að því er kom fram í fréttum Sjónvarpsins. Var þetta haft eftir þeim, sem urðu fyrir fólskulegri líkamsárás í húsi í Breiðholti síðdegis í gær. Lögreglan staðfesti þessar frásagnir við Sjónvarpið. Haft var eftir einum hinna slösuðu, að hann hefði verið að horfa á sjónvarpið þegar maður kom inn og byrjaði að berja hann. Sagðist hann ekki vita hver ástæðan fyrir árásinni hefði verið..... kannski einhvað gruggugt við þetta en ekkert grín að það sé ráðist inn á heimili með exi, hafnaboltakylfum og kúbeinum!

Hvað segið þið um þetta??

2 ummæli:

Guðlaug Björk sagði...

Mér finnst þetta einmitt hljóma eins og mafíu starfsemi. En hugrakkt af þessum sem sagði frá að þetta sé í gangi. Vona að Víkingasveitin vakti núna heimili hans og aðstandanda hans það sem eftir er. Svona í ljósi ummæla hans.
Annars er ég ekkert hrifin af þessum fjölmiðlum lengur.

Nafnlaus sagði...

já þetta er rosaleg þróun hér á landi :S Mar er bara hræddur sko!! Alltaf blóðug slagsmál hér og þar...