mánudagur, september 24, 2007

Ekki hjóla í opnanlegu pilsi í roki....

Í morgun var ég vör við frekar fyndið fyrirbæri á leið í skólann. Samsíða strætónum var gella að hjóla til vinnu/skóla. Svo sem ekki frásögu færandi nema að stúlkukindin hefur áræðanlega vaknað mjög snemma til að gera sig fína og sæta fyrir daginn.... náð í fallega dragt, lagað hárið og svona! Vandamálið var augljóst.... hún var í svona bundnu pilsi sem er ekki sniðugt á hjóli til að byrja með og hvað þá í roki. Greyjið átti algjörlega í vandamáli að halda sér í fötunum - fáránlega fyndnar aðferðir sem hún notaði til að halda sér í fötum og hjóla í leiðinni...mjög skemmtileg tilbreyting í morgunsárið ;o) Eigið góðan dag elskurnar!!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég hef bara verið meira í því að hjóla bara alls ekki svo þetta hendi mig ekki.

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið skvísa!!!!... ætlaði að hringja í þig en mundi svo ekki símann þinn ...

knús..
Jóhanna

Nafnlaus sagði...

Ja hérna, held ég hafi bara átt annan í þynnku í dag :P

Sella sagði...

ERtu ekki að grínast með það - það er ekki laust við að þynnkan sé enn að segja til sín - áttum allavegana subbulegasta sunnudag til þessa með videóglápi og subbumat!!