fimmtudagur, júní 19, 2008

Bleikur dagur í dag....tví í tilefni dagsins - bleikar slaufur og bleikt naglalakk.....

Já í dag er merkisdagur, það er 93 ár frá því að KONUR fengu kosningarétt á Íslandi...í tilefni af því ætla ég að láta fylgja litla sæta sögu, sem eg held eg hafi skrifad ádur en well...finnst mikid til í tessu, hvað segir þú um það??

SKRIFAÐ Í STEIN

Sagan segir að tveir vinir hafi gengið í eyðimörk. Á leiðinni fóru þeir að rífast, og annar vinurinn gaf hinum létt á kjammann. Honum sárnaði, en án þess að segja nokkuð skrifaði hann í sandinn; " Í DAG GAF BESTI VINUR MINN MÉR, EINN Á ´ANN!"

Þeir gengu áfram þangað til þeir komu að vatnslind og þar fóru þeir út í. Vinurinn sem hafði orðið fyrir hinum áður var nærri druknaður, en var bjargað af vini sínum. Þegar hann hafði jafnað sig , risti hann í stein; "Í DAG BJARGAÐI BESTI VINUR MINN MÉR FRÁ DRUKNUN".

Vinurinn sem bæði hafði veitt honum tiltal og bjargað honum spurði: "Þegar ég sló þig, skrifaðir þú í sandinn, og núna skrifar þú í steininn. "Af hverju?" Hann svaraði: Þegar einhver gerir þér eitthvað illt áttu að skrifa það í sandinn, þar sem vindur fyrirgefningar getur eytt því. En þegar einhver gerir þér eitthvað gott þá áttu að grafa það í stein þar sem enginn getur eytt því. "LÆRÐU AÐ SKRIFA SÁRINDI ÞÍN Í SANDINN OG GRAFA HAMINGJU ÞÍNA Í STEIN"!

Það er sagt að það taki mann eina mínútu að hitta sérstaka manneskju, einn tíma að kunna að meta hana, einn dag að elska hana, en HEILA ævi að gleyma henni.

GEFÐU ÞÉR TÍMA TIL AÐ LIFA - OG EIGÐU GÓÐAN DAG!

....Elska ykkur øll á vá hvad ég sakna margra á klakanum...spurning hvenær madur a ad mæta á svædid næst til ad bralla eitthvad snidugt med ykkur. Bíd spennt tó eftir komu foreldranna ;o) Mikid verdur tad ædislegt!!

2 ummæli:

Stella sagði...

ohh ef þú gætir bara komið í dag elskan, ég sakna þína ____________0_____________ svona mikið eins og krakkarnir segja. Vonandi sé ég þig fyrr en mig grunar.

Nafnlaus sagði...

Elsku Sella, er hjartanlega sammála þessari sögu og flott að minna mann á þessa hluti. Takk fyrir það kæra vinkona. Vona að þú hafir það gott í DK og hlakka mikið til að hitta þig aftur í haust.
kv. Kata