mánudagur, júlí 30, 2007

Hvað er eiginlega að gerast??

Verð nú bara að segja það nú er ég hlessa.... brá heldur betur þegar ég las fréttirnar á mbl.is í gær og hlustaði á útvarpsfréttir, en þær voru á þessa leið:

*Banaslys á Biskupstungnabraut
*Ölvaður maður í höfnina í Keflavík
*Maður sem varð fyrir skotárás í Reykjavík er látinn
**Árásarmaðurinn svipti sig lífi; fannst látinn á Þingvöllum
*Ráðist á unga konu í Bankastræti í nótt
**Beit hluta af eyra konu fyrir utan skemmtistað
*Ölvaður maður ógnaði fólki í Þórsmörk
**Hélt konu sinni í gíslingu og ógnaði gestum í skála
*Keyrt á barn á Vopnafirði
*Maður beraði sig við stúlkur í Grafarvogi

Maður spyr sig..... hvað er að gerast á þessu landi??

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta!
Já díses ég var bara skíthrædd í bænum á sun-morgun...mar er bara í lífshættu ef mar skellir sér á djammið :s þetta er rosalegt

Anna Brynja sagði...

Fjandinn gengur laus! Þetta er fáránlegt ástand :o(

Nafnlaus sagði...

Jæja - kannski ekki alveg í takt sem þú ert að skrifa um hér að ofan - en núna langar mig að fara að sjá skemmtó myndir frá síðustu helgi :D