þriðjudagur, desember 02, 2008

Og það er stelpa!!

Jónas bróðir hringdi í mig snemma í morgun þegar hann var á leið í vinnu eftir 20 vikna sónar með Tullu...og viti menn ég á vona á lítilli frænku í kringum 16-21.apríl, greinilega ekki allir sammála um settan dag en ég er spennt ;) Voðalega verður gaman að fá litla Sesselju í heiminn hehe.

... og annað ég á bestustu "eiginkonu" í heimi. Haldið þið ekki bara að hún Tóta hafi gefið mér súkkulaði jóladagatal svo ég muni örugglega eftir henni á hverjum morgni í desember ;) ÉG ELSKA SÚKKULAÐI!!

7 ummæli:

Stella sagði...

Til hamingju með litlu Sellu :)

Sella sagði...

Takk takk ;)

Eygló Egils sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Nafnlaus sagði...

Til hamingju með litlu ófæddu frænku :) kv.Eygló

Nafnlaus sagði...

Jeeeee vissi ekki að Tulla væri ólétt ;) en til hamingju...þetta er svo gaman :D Vonandi kemur að okkur einn daginn Sella mín hehe
Knús til þín frá mér elskan :* Hlakka til að hitta þig um jólin!!

Nafnlaus sagði...

Ohh en gaman.... Aðalsteinn verður sem sagt í stúlknafans í afkvæma-afkvæmabandinu!!! þangað til eitthvað meira fer að gerast.... hahaha.... ;)
kv.Ásta María

Sella sagði...

hahha þokkalega og finnst það örugglega ekkert leiðinlegt ef hann er líkur föður sínum ;)

En Ásta María ég er búin að kaupa 500ml vaskegelé fyrir þig ;)