fimmtudagur, ágúst 28, 2008

Brósi gamli 30 ára í dag ;O) til hamingju!!


Minn elskulegasti eini og BESTASTI BRÓÐIR MINN er orðinn gamalmenni. Jónas er búin að lifa 30 ár og úfff hvað þau hafa verið skemmtileg ;) Langaði bara til að óska honum innilega til hamingju med daginn og vonandi var hann sem ánægjulegastur! KOSSAR OG RISAKNÚS FRÁ LIL SYSS!

Annars var lífið á Mallorca síðustu 2 vikurnar algjör unaður. Telma og Una voru gestgjafarnir! Takk fyrir frábæra ferð í alla staði. Ferðasagan kemur síðar....en núna er bara tekin við skóla/vinnulíf í Köben og alltaf jafn gott að vera hér í Kóngsins Köben.

Ég mun þó heiðra Stokkhólm með nærveru minni 12-15.september og Íslandið góða frá 17-28.sept. Þangað til, verið bless og ekkert stress!!

4 ummæli:

Stella sagði...

and then London beibí:)

Nafnlaus sagði...

vona að þú hafir fengið sms-ið frá mér á sunnudaginn...
hlakka til að sjá þig á Íslandi í sept elskan!!

Sella sagði...

Hehe já ég fékk smsið frá þér elskan...við erum alveg ágætar - ég var líka frekar busy þessa helgina og gleymdi alveg að hitta á þig. Hlakka til að hitta þig í september skvís ;)

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta! Það er nú hálftómt í kofanum sko .. bara tveir tannburstar í glasinu og hálf hljótt eitthvað. Vonandi var gott að snúa heim, hvað þá eftir að Telmus kom til ykkar :)

Knús frá Majós
Unasín