fimmtudagur, maí 24, 2007

Margt hefur á daga mína drifið....

Jessörrrí bobb – búið að vera brjálað að gera í lífi litlu sellunnar síðustu daga! Fyrst og fremst var ég á fullu í kosningastússi – ákvað að hjálpa Heimdalli og SUS fyrir kosningarnar núna og er því mikið og mjög sátt við úrslitin, ekki síður brilliant kosningapartý á Broadway, vá hvað ég dansaði mikið...eiginlega enn þreytt í fótunum. Það var mjög gott að XD bætti við sig 3 þingmönnum – aðallega frábært þar sem flokkurinn hefur verið svo lengi á þingi og fólk búið að tala svo mikið um að það vilji breytingar....en greinilega ekki. Ríkisstjórnin í samstarfi við Samfylkinguna held ég að sé líka besta lausnin. Hefði kannski viljað fá aðra ráðherra en best að bíða og sjá hvernig þeir starfa áður en maður GAGNRÝNIR!

Timinn minn hefur einnig farið mikið í fjöruga félaga – loksins kláraði Jóhanna prófin svo ég sá skvísuna aftur því skelltum við okkur allar á Caruso og eftir nokkur hvítvínsglös, góðan mat og gómsæta súkkulaðiköku í eftirrétt kíktum við til Elvu í öl og svo í byen. Við stelpurnar chilluðum, hittum New York hópinn og er komin dagsetning – NYC 11.október - híhí, eyddum helginni hjá Siggu og kíktum á Blades of Glory í bíó...þvílík steypa en mjög skemmtó – hehe

Ég verð nú bara að viðurkenna það að ég er komin meira en hálfa leið í sumarfrí þar sem ég á bara eftir að vinna til hádegis á morgun og svo komin í langt helgarfrí.... Helgin mun vera rosalega afslöppuð..... ætla mér að passa litla sætasta brosboltann minn hann Aðalstein á föstudaginn og svo er pælingin að kíkja með Evu frænku eitthvað út en skvísan kom surprize til Íslands með Natalíu til að sjá nýjasta famelíumeðliminn, lillann hennar Tinnu!!

Laugardagurinn verður svo til að byrja með í Kolaportinu sem verður áhugaverður staður enda seinasta helgin fyrir reykingabann.... já sé það ekki alveg gerast enn well! Eftir Koló ætla ég að bruna með Siggu upp í sumarbústað þar sem við ætlum að láta foreldra okkar dekra við okkur með góðum mat, köldu hvítvíni og skemmtilegri náttúru. Göngutúrar, afslöppun, spila og já njóta hvítasunnuhelgarinnar..... svo er það bara LONDON á þriðjudag og beint TO CHINA....ER EKKI AÐ TRÚA ÞESSU – JÍHA ;O)

En hér er smá sem að allir ættu að hugleiða.....Sagt er að það taki bara eina mínútu að kynnast einstakri manneskju, klukkutíma að kunna að meta hana, einn dag að elska hana en það taki allt lífið að gleyma henni. KÆRU VINIR I LOVE YOU ALL!! En þetta er fljótleg leið til að segja vinum þínum hvers virði þeir séu þér. Njótið dagsins og dansaðu nakin(n) !

Koma svo látið mig vita ef þið kíkið einhvern tímann hérna svo ég sé nú ekki að blaðra við sjálfa mig hérna ;)

3 ummæli:

Guðrún sagði...

Iss ég kíki aldrei hingað - þú ert örugglega bara að tala við sjálfa þig ;)

....er annars rosa sátt við kosningarnar - Pétur bró fór með alveg heil 3 atkvæði til Íslands frá Sendiráðinu ;)

Nafnlaus sagði...

Ég kíki ég kíki - bíð líka spennt eftir öllum skemmtó myndunum! :D
Standa sig Sella gella!!
....annars rosa góða ferð til China! :)

Nafnlaus sagði...

Góða ferð til Kína elskan mín :* Þetta verður sko brilliant ferð hjá ykkur skvísum :D
Svo bíð ég spennt eftir djamminu okkar sem verður í júní!
Lúv - Maggsí