mánudagur, október 11, 2004

Á ég að fara að gráta núna..... eða núna??

Próftaflan er komin í hús.....og þvílíkur og annar eins viðbjóður hefur ekki sést í langan tíma. Komin með í mallakútinn og planið er að læra eins og brjálæðingur núna og fram að jólum. Próftaflan er svona::

Þri. 14.des - Markaðsfræði III - kl:13:30-16:30
Mið. 15.des - Markaðfræði IV - kl: 09:00-12:00
Fim. 16.des - Utanríkisverslun - kl:09:00- 12:00
Lau. 18.des - Lögfræði A - kl: 09:00-12:00
Þri. 21.des - Þjóðhagfræði I - kl: 13:30-16:30

Já fái aðrir verri próftöflu.........endilega látið vita, :o(

Snökt, grátur og gnístan tanna

Maður bara komin í fréttirnar......

Já alltaf einhvað að frétta af okkur skvísunum í Mágusi..... kíkið á ÞETTA!!!!

sunnudagur, október 10, 2004

HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR.............

Lau 9/10...... Í dag er rétt að ráðgast við vin, sem gæti veitt þér holl ráð eða í það minnsta góðan félagsskap, sem yrði þér til upplyftingar!

Sun 10/10......Þú laðast að leyndardómum. Þú vilt koma auga á vandamálin, leysa þau og vinna réttu svörin!!

..... Því er málið að SKELLA sér á KAFFIHÚS og ræða allt milli himins og jarðar, hver veit hvað gæti ræst af þessu!!!!

kv. Sella kaffigella ;o)

föstudagur, október 08, 2004

Vísindaferð í Landsvirkjun...... þetta er fínt fyrirtæki!!

Var rétt í þessu að koma í hús úr líka þessari fínu vísindaferð okkar í viðskiptafræðinni hjá Landsvirkjun. Með okkur í för voru hressir krakkar í stjórnmálafræðinni!!!! Bráðskemmtilegur fyrirlestur, fengum að fara niður í stjórnstöðina og sjá hvernig rafmagnflæði inn á heimilin og sonna.

Var svo heppin að Óli góði hellti yfir mig heilum bjór, þannig að ég kom heim til að skipta um pils..... og fara svo og hitta fólkið í FRÁBÆRU IDOL FJÖRI á Hverfis!!!

Endilega komdu og láttu sjá þig, alltaf gaman að horfa á þetta rugl í stórum, góðum hópi!!

.......svo bara heim og læra þjóðhagfræðipróf á morgun....... já á laugardegi!!!!

MYNDIRNAR ERU KOMNAR INN........

Já og ekki nóg með það eru þetta myndir frá ammælinu mínu, 1. helginni í júlí, sjómannadagshelginni, Spáni og Köben, vínsyndaferð í Sjóvá og einhvað fleira.....

kíkið á linkinn..... hann er hérna efst til vinstri......

enjoy, enjoy, enjoy ;o)

Hverjum dettur í hug að fara á Aktu Taktu og fá sér að borða????

..... Ekki frásögu færandi, nema það að ég skellti mér í vinnuna áðan, og viti menn kom bara ekki þessi 70 manna bílaklúbbshópur... Life to cruise og ákvað að fá sér að borða...... hef ekki séð annað eins, við vorum 7 í vinnunni og allt á öðrum endanum, náðum að redda einhverjum 80 tilboðum að allskonar mat, þótt ég segi sjálf frá, gekk það ROSA VEL!!!

Fór þó fyrr heim og viti menn lenti líka í þessari dýrindis fondue veislu, geggjaður matur heima og Laufey og Kalli í heimsókn. Við tók lærdómurinn og........... já það sést bara hvað ég hef náð að læra mikið...... komin á netið.

..... en bless í bili, verð að læra, próf í þjóðhagfræði á laugardag og vínsyndaferð í Landsvirkun á morgun, sjáumst hress og játs bara bletzzzzzz :o)

..... Footballers wives!!!!

Hversu fyndnir þættir eru þetta? Maður dettur bara gjörsamlega inn í nýja Bílastæðaverði eins og í Fóstbræðrum. Annað hvort hafa allir verið með öllum, átt börn með öllum, haldið framhjá öllum og ef það er ekki svoleiðis, þá er verið að reyna þetta ALLT. Tanya Turner fær þó heiðurinn á því að vera tík þáttarins. Bíð spennt eftir næstu seríu...... gerir þú það ekki líka??

fimmtudagur, október 07, 2004

Til hamingju með ammælið......

Vera innilega til hamingu með 22 ára afmælið, njóttu nú dagsins og næturinnar sem allra allra best. Ég er viss um að þú ert orðin ROSA ROSA stór........ og enn og aftur til hamingju með afmælið!!

Sólargeilsinn 23 ára og vikugamall :o)

þriðjudagur, október 05, 2004

Vér mótmælum
.......Það var sko tekið á því í morgun, mín bara mætt við Hús Verslunarinnar kl 07:30 með fullt skott af Kókómjólk og við tók mótmæli um frestun mislægra gatnamóta Kringlumýrar- og Miklubrautar þar sem fjöldinn allur af hressum Heimdallingum voru saman komin með skilti, kleinur og kókómjólk til að gefa, þeim vegfarendum sem voru stopp í umferðarteppunni á leið í vinnu......

Gaman að sjá hvort þetta hafi einhvað í för með sér, en við sýndum þó í verki að það þarf að gera einhvað róttækt þarna!!!! Hver nennir að vera 40 mínútur í skólann eða vinnu á morgnanna.??

MBK
Sella uppreisnarseggur ;o)

..... WHAT A FEELINGGGGG......

Jamm og já, helgin afstaðin og mikið búið að bralla. á flöskudag var margt og mikið að gerast.... Vísindaferð í Seðlabankann, sem ég missti því miður af, en hitti þó hresst Mágusarliðið á Stúdentakjallaranum á eftir þar sem bjórinn flæddi og pizzukassar á hverju strái. Stoppaði stutt þar, þar sem Davíð Ólafur var með 1.matarklúbb vetrarins, þar sem eldað var Faitas fyrir 20 manns og ís með heitri mars-sósu sem sumum fannst þurfa að bragðbæta með vænum slurka af Bacardi. (Takk Jói) horft á Idol,

......... og já já já já, farið í Sing Star , og ómæ hvað það er skemmtilegt, þetta er komið efst á óskalistann fyrir jólagjafir. Lög eins og Pretty Woman, I believe in things called love, Like a virgin, Heart of glasses, Living la vida loca voru tekin nokkuð oft, og voru Októberfest fararnir fullu, mjög sprækir og fá fullt hús stiga fyrir sviðsframkomu...

.....eftir mikið væl, söng og svínarý lá leiðin í bæinn og tók ég að mér að skutla Bigga, Sigga, Villa og Kára í billann þar sem Prikið var fyrsti stoppustaður. Bílferðin var kostuleg þar sem strákarnir ákváðu að kasta vatnsmelónu út á ferð já, já, já út um gluggan á ferð á Miklubrautunni...... skondið atvik þar á ferð, á Prikinu var svo mikið tjúttað og trallað, dansað upp á stólum, hátölurum og bókstaflega út um allllllllllt. Mín edrú svo ég var ekki alveg að missa mig. Hitti allar gellurnar á Prikinu og rölti með Veru og Hönnu á Hverfis í stuttan hring og svo jemmme på.

Laugardagur til lukku tók svo vel við þar sem Styllinn var tekin, rúntur upp í mosó eftir bolluskál og glasaleit, brunað í Ikea og keypt 60 plastglös, rennt eftir snakki og í kringluna að kaupa Boozzzzee og öllu í bolluna reddað.

..... Eftir herlegheitin lá leiðin heim og gera allt klárt fyrir PARTÝ IÐ..... mikið ógeðslega var gaman þó ég segi sjálf frá. Bauð líka í þetta skemmtilega partý hérna heima, þar sem um 40 manns létu sjá sig, mikið var tjúttað, blönduð var hættuleg bolla þar sem fólk sem smakkaði hana komst ekki hjá því að rúlla út um útidyrnar á leið úr teitinu. (Aðeins 3 lítrar af Vodka og 3 ½ l af Passóa kláruðust)........ og fáránlega mikið af bjór, stútfylltum svartaruslapoka af dósum.

......Þegar líða tók á partýið var ,,Einn dans við mig” tekinn hátíðulegur í stofunni, Sing Star fjör á efri hæðinni, drykkjukeppni í eldhúsinu, þar sem keppt var í að klára bolluna með risa rörum og fötu á gólfinu. Tóku sig nokkrir til og ákváðu að spila fótbolta með vatnsmelónu í garðinum (mér til mikillar gleði á sunnudaginn) Um hálf þrjú, tíuðum við okkur svo í bæinn þar sem Prikið var tekið með stæl...... og áfram haldið á drykkju. Mikið stuð og mikið gaman, röltum við saman upp á Hverfis, þar sem ég laug að dyraverðinum að Tinna frænka væri stjórnarmeðlimur í Mágusi með mér og við flugum 3 inn...... hahah góðar Hanna og Tinna :o) Mikið tjútt og mikið gaman, dansaði af mér rassgatið með Anný, Möggu, Ella, Tinnu, Hönnu og fleirum, en svo kom að því að djammið átti að vera búið enda kl. 06:?? Svo við fórum bara aftur á Prikið, skelltum okkur og pöntuðum pizzu......Vera okkar kom svo og sótti okkur og við komum heim, í svaka fillerýisgalsa, japlandi á pizzu og Tinna, Hanna og Elli ákváðu að gista, góður endir á góðu djammi, ég get ekki sagt meira.

Sunnudagur til svaka þynnku kom sá og sigraði, þar sem þynnkan var ágæt og mikið ógeðslega var gólfið skítugt..... það var SVART, skúringar, afþurrkur og uppvask var á dagskrá, en mikið rosalega var ég fegin að við ákváðum full og vitlaus að henda öllu drasli, dósum og rusli á laugardagsnóttina áður en við fórum í bæinn......

Kv. Sólargeislinn, í bananastuði eftir góða helgi

PS. Myndirnar sem lýsa kvöldinu best koma inn eftir smá......
Pps takk æðislega fyrir mig..... engar smá gjafir og enginn smá félagsskapur ;o)

..... WHAT A FEELINGGGGG......

Jamm og já, helgin afstaðin og mikið búið að bralla. á flöskudag var margt og mikið að gerast.... Vísindaferð í Seðlabankann, sem ég missti því miður af, en hitti þó hresst Mágusarliðið á Stúdentakjallaranum á eftir þar sem bjórinn flæddi og pizzukassar á hverju strái. Stoppaði stutt þar, þar sem Davíð Ólafur var með 1.matarklúbb vetrarins, þar sem eldað var Faitas fyrir 20 manns og ís með heitri mars-sósu sem sumum fannst þurfa að bragðbæta með vænum slurka af Bacardi. (Takk Jói) horft á Idol,

......... og já já já já, farið í Sing Star , og ómæ hvað það er skemmtilegt, þetta er komið efst á óskalistann fyrir jólagjafir. Lög eins og Pretty Woman, I believe in things called love, Like a virgin, Heart of glasses, Living la vida loca voru tekin nokkuð oft, og voru Októberfest fararnir fullu, mjög sprækir og fá fullt hús stiga fyrir sviðsframkomu...

.....eftir mikið væl, söng og svínarý lá leiðin í bæinn og tók ég að mér að skutla Bigga, Sigga, Villa og Kára í billann þar sem Prikið var fyrsti stoppustaður. Bílferðin var kostuleg þar sem strákarnir ákváðu að kasta vatnsmelónu út á ferð já, já, já út um gluggan á ferð á Miklubrautunni...... skondið atvik þar á ferð, á Prikinu var svo mikið tjúttað og trallað, dansað upp á stólum, hátölurum og bókstaflega út um allllllllllt. Mín edrú svo ég var ekki alveg að missa mig. Hitti allar gellurnar á Prikinu og rölti með Veru og Hönnu á Hverfis í stuttan hring og svo jemmme på.

Laugardagur til lukku tók svo vel við þar sem Styllinn var tekin, rúntur upp í mosó eftir bolluskál og glasaleit, brunað í Ikea og keypt 60 plastglös, rennt eftir snakki og í kringluna að kaupa Boozzzzee og öllu í bolluna reddað.

..... Eftir herlegheitin lá leiðin heim og gera allt klárt fyrir PARTÝ IÐ..... mikið ógeðslega var gaman þó ég segi sjálf frá. Bauð líka í þetta skemmtilega partý hérna heima, þar sem um 40 manns létu sjá sig, mikið var tjúttað, blönduð var hættuleg bolla þar sem fólk sem smakkaði hana komst ekki hjá því að rúlla út um útidyrnar á leið úr teitinu. (Aðeins 3 lítrar af Vodka og 3 ½ l af Passóa kláruðust)........ og fáránlega mikið af bjór, stútfylltum svartaruslapoka af dósum.

......Þegar líða tók á partýið var ,,Einn dans við mig” tekinn hátíðulegur í stofunni, Sing Star fjör á efri hæðinni, drykkjukeppni í eldhúsinu, þar sem keppt var í að klára bolluna með risa rörum og fötu á gólfinu. Tóku sig nokkrir til og ákváðu að spila fótbolta með vatnsmelónu í garðinum (mér til mikillar gleði á sunnudaginn) Um hálf þrjú, tíuðum við okkur svo í bæinn þar sem Prikið var tekið með stæl...... og áfram haldið á drykkju. Mikið stuð og mikið gaman, röltum við saman upp á Hverfis, þar sem ég laug að dyraverðinum að Tinna frænka væri stjórnarmeðlimur í Mágusi með mér og við flugum 3 inn...... hahah góðar Hanna og Tinna :o) Mikið tjútt og mikið gaman, dansaði af mér rassgatið með Anný, Möggu, Ella, Tinnu, Hönnu og fleirum, en svo kom að því að djammið átti að vera búið enda kl. 06:?? Svo við fórum bara aftur á Prikið, skelltum okkur og pöntuðum pizzu......Vera okkar kom svo og sótti okkur og við komum heim, í svaka fillerýisgalsa, japlandi á pizzu og Tinna, Hanna og Elli ákváðu að gista, góður endir á góðu djammi, ég get ekki sagt meira.

Sunnudagur til svaka þynnku kom sá og sigraði, þar sem þynnkan var ágæt og mikið ógeðslega var gólfið skítugt..... það var SVART, skúringar, afþurrkur og uppvask var á dagskrá, en mikið rosalega var ég fegin að við ákváðum full og vitlaus að henda öllu drasli, dósum og rusli á laugardagsnóttina áður en við fórum í bæinn......

Kv. Sólargeislinn, í bananastuði eftir góða helgi

PS. Myndirnar sem lýsa kvöldinu best koma inn eftir smá......
Pps takk æðislega fyrir mig..... engar smá gjafir og enginn smá félagsskapur ;o)

föstudagur, október 01, 2004

Kanntu góða uppskrift af BOLLU?????

Vantar góða uppskrift af áfengribollu........ ef þú lumar á einni, endilega settu hana í comment!!!!!! Já og Anna Lára eða Elva, ef þið lesið þetta hvernig var uppskriftin á kveðjupartýis bollunni hjá ykkur, hún var svaka góð!

jamm og já...... þið segið það!!!
Enn einu sinni kominn flöskudagur, vísó í Seðlabankann, Októberfest í Háskólanum, fyrsta Idolkvöldið, matarklúbbur hjá Davíð og já HÖRKUDJAMM Á MORGUN...... já sem sagt fullt fjör á haustmánuðum á klakanum.

Mikið búið að vera að gera þessa vikuna, fullt að læra í skólanum, vinna á fullu, safna styrkjum fyrir Nesu ferðinni, halda tvo saumaklúbba, slúðra mikið, eiga ammæli, fá útborgað og eyða því jafn fljótt....... ekkert smá hvað það tekur á að fara í Kringluna og Smáralind.

Annað hvort eyðir maður fullt af peningum sem maður á ekki......... OG loks þegar maður á einhverja aura, þá finnur maður ekki neitt, eða ekki til í stærðinni sem maður þarf. Vildi bara að ég væri stundum úr gúmmí, þá gæti maður teygt sig og togað í öll flottu fötin sem maður sér......

... Þið sem lesið þetta, þá verður sko tjútt og trall á morgun.... ÉG ENDURTEK Á MORGUN, partý at my place!!! Endilega láttu að sjá þig,

Kveðja flöskudagsvinurinn
Sella

miðvikudagur, september 29, 2004

ÉG Á LÍKA AMMÆLI...... LIGGA LIGGA LÁI!!!

Já mín bara orðinn ellismellur 23.ára, pælið í því!!!...... og þið vitið ekki hvað ég stækkaði mikið í nótt. Afmælisdagurinn byrjaði voðalega vel þar sem stimpilklukkan í vinnunni spilaði líka þetta magnað falska technoafmælislag kl.24. Svo lá leiðin á Prikið í kaffibolla með Jónasi bróður.... og elskan svo góður að gefa mér 3 rauðar rósir

Ekki var svo slæmt að fá afmæliskort í pósti frá Ameríkunni..... Elva og Anna Lára TAKK æðislega fyrir mig og missya þúsundfalt líka, bíð spennt eftir jóladjamminu!

Búin að fá fullt af góðum kveðjum í dag....ammæliskveðjur frá: Veru, Siggu, Sigrúnu, Evu
Ösp, Tinnu Sif, Sibbu, Drífu, Hrebbnu, Sæunni og Soffíu, Danna Tiger, Önnu Svövu, Rakel og bumbunni, Hönnu, Benný, Anný Rut, Frikka, Laufeyju og Kalla. TAKK FYRIR MIG!!


Langar í leiðinni að óska Tullu innilega til hamingju með 24 ára afmælið..... njóttu dagsins elskan.

Kv. Sólskinsbarnið í ammælisgír

P.S Afmælispartý hjá mér um helgina....... svaka stuð og djamm á laugardaginn. Nánari upplýsingar þegar nær dregur! Hlakka til að sjá ykkur.....

þriðjudagur, september 28, 2004

Að kaupa PYLSU.... getur verið hörkuerfitt

Já það hefur nú ekki virkað tiltökumál að kaupa sér eina með öllu í þessu þjóðfélagi..... en nei viti menn, það var nú bara hörkuvesen hjá mér og Tinnu frænku um helgina.

Þannig var mál með vexti að við frænkurnar ákváðum að skella okkur á Bæjarins bestu á laugardagskvöldið um kl.02:00, vippuðum okkur inn á bílaplanið fyrir framan og eins og fólk veit er lífsins ómögulegt að fá stæði þarna eftir miðnætti um helgi. Við frænkurnar ákváðum eftir nokkra hringi á bílaplaninu að loka bara tvo bíla inni, hlaupa og kaupa pullu og skella okkur í burtu!!! Tókum allann pakkann í því að það kæmi nú enginn að færa bílinn sinn svona seint á nóttunni og að það tæki nú ekki langan tíma að fá 2 stk pylsur!

.......en heppnin okkar við skelltum okkur að skúrnum góða, pöntuðum tvær heitar en í sömu andrá er mér litið í átt að bílaplaninu þar sem ég sé þrjá vaska pilta standa við bílinn okkar. Einn gaurinn kemur að pylsuvagninum og eftir stutt spjall fæ ég að vita að við höfðum lagt fyrir bílinn hjá vini hans sem ath.... var lögga í mikilmennskugír, sem búinn var að hringja á lögguna og tilkynna ólöglegalagðan bíl og ætlaði að fá Vökubíl til að draga hann í burtu.....

Ég hleyp og ætla að færa bílinn... þá átti ég smá samtal við löggugaurinn.

Gaurinn: “Ertu eigandinn á bílnum?”.....
Ég: ,,Nei er bara að færa hann fyrir eigandanum”
Gaurinn: “ok, þá mun eigandinn vera vakinn, því löggan mun hringja í hann eftir smá”
Ég: ,,ok en ég skal bara færa bílinn”

Færi bílinn og segi svo við Tinnu frænku þegar hún kemur með pylsurnar
,,Heyrðu löggan mun hringja í eigandann á eftir út af ólögleglögðum bíl”...... þá sé ég líka þennan skrítna svip koma á frænku mína í því sama sem hún springur úr hlátri og segir.....
,,......en Sella, amma er skráð fyrir bílnum!!!”

verð því bara að segja hversu fyndið hefur samtalið verið við 70 ára kellu um miðja nótt um ólöglega lagðan bíl á bílastæði......ekki furða að löggan hafi verið fámál þegar hún loksins bjallaði í Tinnu út af herlegheitunum!!!

Saumó búinn og slúðrið komið í æð.....

Já fremur rólegur saumaklúbbur hér á ferð..... skrítið vorum bara 6 mættar, en vaninn er örlítið fleiri eða 16 manns. En nei þar sem gellurnar okkar eru erlendis, þær: Gyða í Kanada, Anna Lára í USA, Marín í Þýskalandi og María, Tinna og Telma í Danaveldi.....vantaði nokkrar aðrar út af vinnu, lærdómi og pössunarleysi og veriði vissar elskurnar ykkur var sárt saknað.

Ég var búin að vera rosalega dugleg að baka og svona en NEI NEI NEI viti menn ætli bakarofninn bili ekki hér heima hjá mér og heiti rétturinn til í tuskið..... Þá eru nú góð ráð dýr, en viti menn hvað ætli maður hafi gert ?? Jú jú, kveikti upp í gasgrillinu og hitaði hann þannig, sniðug finnst ykkur ekki!!!

Slúðrið var í það minnsta þessa kjaftatörn, en þjóðfélagsmálin rædd fram og til baka. Guðrún sagði okkur mikið frá nýju íbúðinni sinni og út frá því komu þessi líka miklu íbúðarkaup..... ég held ég verði bráðum ein eftir heima hjá M&P. Hrebbna og Katrín eru að safna fyrir íbúð og alltaf að skima eftir. Sunna nýbúin að kaupa, Anna Jóna komin á Hjónagarðana og já bara allt á blússandi siglingu hjá okkur gellum...... ekki leiðinlegt!

En eftir mikið spjall um Fíkniefnamálið í DV, skólana HA,HÍ og HR, vinnurnar, litlu krílin í klúbbnum, barneignir, djammið, Idol, jólin og jólastressið, brúðkaup, bankamálin og allt milli himins og jarðar, leisti ég stelpurnar út með bókaláni til að redda málunum. Ekki slæmt að geta lánað bókmenntasögubækur, spænskuorðabækur og bókfærslubækur....... já dugleg? Vil því enda þetta góða blogg á MENNT ER MÁTTUR ...........og fara að læra fyrir próf sem er á morgun!

mánudagur, september 27, 2004

Dugnaður í minni..... fylgir þetta aldrinum??

Já búin að vera dugleg í dag, þótt ég segi sjálf frá. Eftir smá stund á von á Dísunum í saumaklúbb og haldiði ekki bara að mín sé búin að baka köku, gera brauðrétt, skera niður grænmeti með dýfu, nachos og ......fullt af nammi..... ekkki slæmt það.

Já keypti mér líka þessa snilldarskál fyrir allt gúmmelaðið..... þannig að núna get ég tekið á móti ykkur með góðgæti!!!

I´m readdyyyyyyy..... sjáumst hress

föstudagur, september 24, 2004

Olympíuleikar fatlaðra..... dáist að keppendunum.

Já mér finnst við hæfi að Kristín Rós sundkappi verði valin íþróttamaður ársins á Íslandi miðað víð árangur sinn..... hún á það skilið og mikið meira en það, gull og heimsmet á móti sem þessu!

En verð þó að segja frekar fyndið að horfa á kúluvarp dverga, hjólastóla körfubolta, hjólreiðar blindra og hestamennsku handalausra.... en þetta er samt hörkuduglegt fólk..... ég gat samt ekki annað en hlegið yfir ýmsu.

Sella einfalda...... (betra að geta hlegið að og með svona fólki, er það ekki málið)


fimmtudagur, september 23, 2004

ÉG VILDI AÐ ÉG VÆRI Í KENNARAVERKFALLI.....

Minnist þess þegar við fórum í kennaraverkfall í grunn-og framhaldsskóla.... þvílíkt og annað eins ljúfa líf. Áhyggjulaus vaknaði maður á morgnanna, hringdi í vini og fékk þá til að hanga með sér í Kringlunni, leigja videó, passaði litlu systkyni vina sinna eða hékk bara einhvers staðar og chillaði....

Ohh mig langar svo að fá aftur svona róleg móment, slappa af og vera áhyggjulaus unglingur. Er fólk ekki sammála mér.

Ekki það að ég skilji ekki að það sé kennaraverkfall, þessi laun mega alveg hækka slatta fyrir vinnuna sem kennarar vinna. Þetta er mjög vanmetin vinnustétt!!!

ALLT AÐ GERAST......

Já bara komin ferðaplan, mín er á leið til Danmerkur, Finnlands og Eistlands á ráðstefnu NESU

Búin að kaupa flugmiðana alla þannig að planið er svona:

Kaupmannahöfn 30.október, gist í eina nótt. Helsinki 31.október þaðan tekin ferja til Tallin (Eistlandi) þar sem við verðum í tvo daga og förum aftur til Helsinki. Þaðan fer ég svo til Köben 7.nóvember. Mun svo gista tvær nætur í Kóngsins köben hjá henni Telmu minni því hún ætlar að taka vel á móti mér og sýna mér sætu skiptinámsborgina sína..... TELMA strax farin að hlakka til......

Þægilegt og notalegt kvöld í Grafarvoginum.....

Kíkti til Guðrúnar Helgu og Gauta í kaffi í kvöld með þeim HÍ skvísum Jóhönnu og Elínu..... og mikið rosalega getur maður spjallað þegar maður hefur ekki hitt vini sína heilt sumar!

Mikið búið að gerast, Hanna búin að kaupa íbúð, Elín komin með kall og Guðrún og Gauti eiga vona á barni..... eintóm hamingja...........Til hamingju öll

Ekki verra að ég fékk eitt besta súper nachos ala Helga, bið hér með um uppskriftina, fleiri verða að fá að njóta þess!

TAKK FYRIR ÆÐISLEGT KVÖLD..... bíð spennt eftir næsta hittingi hjá Hönnu.


þriðjudagur, september 21, 2004

Saumó-plan næstu viku!!!!

Vildi bara koma því hér á framfæri að ég er með 2 saumaklúbbi í næstu viku......ákvað að bjóða gellunum heim í tilefni afmælis míns, ekki amalegt verð 23 ára gamalmenni

Mánudaginn 27. september mun ég bjóða Réttó gellunum til mín kl:20:30

og

Miðvikudaginn 29. september munu hinar skólaskvísurnar úr 6-D Versló líta á mig..... nánar tiltekið kl. 20:30.

Hlakka til að sjá ykkur allar og endilega látið mig vita ef þið komist ekki, annað hvort með emaili sesselg@hi.is eða í símann minn..... you know my number ;)


ELVA AFMÆLISGELLA!!!!!

Vil nýta tækifærið og óska þér Elva Björg, Arkansas skvísa innilega til hamingju með afmælið....... bara orðin 23 ára skvísa.

Njóttu nú dagsins í úglandinu og have fun darling..... miss you big time!!!


Ljúft líf að klæðast rauðu....... ekki sýst þegar Man. United vinnur!!!!
Já fyrir þá sem ekki vita var Man Utd - Liverpool áðan og meistararnir unnu 2-1.... ekki laust við að maður sé með glott á andliti yfir þessum snillingum sem maður hefur haldið með endalaust!
En ekki meira í bili......bara gaman að horfa á boltann :)

fimmtudagur, september 16, 2004

Verð nú bara að segja það..... hvað er málið með bókakaup í skólum nú til dags???

Ekki nóg með að maður striti og puði á sumrin til að fá nokkra aura, þá er maður fljótur að kveðja þá þegar skólinn byrjar. Ég er í 6 fögum í skólanum sem allir eru með einhverjum massívum bókum........og viti menn eitt stykki bók kostar um 6980.- sem er ekki mannlegt fyrir fátækan námsmann!!

Eins gott að djamm og fyllerí er ódýrt í vetur út af þessum snilldar vísindaferðum!!!! Mótmælum því saman og reynum að spara, mætum öll í VÍSÓ

Yngsit prins fjölskyldunnar er komin með heimasíðu.....

Já haldiði ekki bara að óskírður Bragason (sonur Gullu frænku og Braga) sé komin með heimasíðu. Linkur á hana hér til hliðar svo þið getið nú fylgst með!!! Rosa dúlla þar á ferð.

miðvikudagur, september 15, 2004

ANNASÖM vika....... það er svo fínt að hafa nóg að gera ........en ég meina það. Gærdagurinn fór í að kynna Heimdall fyrir námsglöðum FB-ingum, og viti menn mín bara mætt í Breiðholtið kl:08:05 en það hefur ekki gerst í langann tíma. Svo tók skólinn við, Þjóðarbókhlaðan og loks vinnan

Ég veit ,,I don´t have alive”, dagurinn í dag er svo að vanda fullur af skemmtilegum fundum, til að ákveða kynningarkvöld Heimdallar á Hressó á laugardaginn, fundur borgarmálanefnd, fundur mannréttindarnefndar og svo að sjálfsögðu skólinn sjálfur!!! Hann má nú ekki gleymast.

Helgin...... er svo óðum að nálgast og má gera ráð fyrir miklu stuði, þar sem hún Kristín vinkona fær sveinsprófsskírteinið í hönd á laugardag, kynningafundur Heimdallar er og hún Helga Rut skvísa á afmæli!!!! Ekki amaleg helgi, verst bara að mín er að vinna líka! En það er þó dagvakt á laugardag og kvöldvakt á sunnudag, þannig að mín sést í bænum að vanda ;o)


Grænn Golf, eldri týpa.... bílnúmer BH ??? óskast

Já mín bara í rólegheitum í vinnunni í gær þegar einhver snillingur á grænum Golf ákvað að koma og grýta eggjum í vinnustað minn .

Greinilegt að Garðbæingar hafa ekki meira uppbyggilegra að gera á þriðjudagskvöldum. Eggjagaurnum á Golfinum tókst að kasta tveimur eggjum inn í sjoppuna til okkar og einu nánast í hausinn á mér....... það hefði verið amalegt!!!

ÉG bara spyr...... hvað hef ég gert af mér? Eða kannski bara eigandinn..... á maður ekki að kenna honum um óánægða viðskiptavini sem taka til þess ráðst að GRÝTA EGGJUM?

þriðjudagur, september 14, 2004

Lífið er dans á rósum...... .svona á þetta að vera!!!

Já nóg að gera hjá mér eins og vanalega, og viti menn mín er að fara á ráðstefnu í Finnlandi 31. okt - 7. nóv. Hljómar vel ekki satt..

Þetta er ráðstefna á vegum Nesu, félags viðskiptafræðinema á norðurlöndunum. Farið verður til Köben, þaðan til Helsinki þar sem við gistum en einnig munum við skreppa til Eistlands í heimsókn í 2 daga....

Hljómar vel ekki satt?? þannig að bara dans á rósum hjá mér.

En later.... vinnan kallar á mig eftir 10 mín.

mánudagur, september 13, 2004

Hvað er málið..... á ég enga vini lengur!!!!

Veit ég hef verið frekar busy upp á síðkastið.... en svona pæling á ég enga vini enn í gegnum bloggið?

Er ég bara einhver púki út í bæ sem tala við sjálfan mig á netinu, eða eru þið fólk að læðupúkast þarna bak við mig..... commentið nú hjá mér, áður en ég fer í VERKFALL.

ein einmana og svekkt ;o(

Snúast allar auglýsinar um kynlíf og klám........... smá pæling

Er þetta bara ég eða er alveg eðlilegt að sjá eftirfarandi auglýsingar:

,,Besta svæðanudd sem völ er á” (Einstaklingsrúm)
,, kraftmiklar og endingargóðar” (þvottavélar)
,,Stærðin skiptir máli” (Banana Boat Aloe Vera gel)
,, Hart og gott” (gólfefni - parket)

Er það bara ég sem er svona mikill sorakjaftur eða er þetta bara raunin??????

Já ég verð að spyrja er eðlilegt að fá spurningar eins og ég fékk um seinustu helgi. Á föstudag labbaði gaur upp að mér og spurði: ,,ertu dyravarðarmella?” og á laugardag fékk ég þetta góða coment að ég væri: ,,pervert” þarf ég að fara að endurskoða útlit mitt..... eða hvað er málið????

Jeff Buckley...... er átrúnaðargoð

Verð nú bara að nefna þennan mann, því ég heyrði lagið hans Hallelujah um daginn en þetta lag er auðvitað eitt það flottasta í bransanum. Ekki það að ég sé lituð af hlustun þessa lags. Þetta lag er mín heitasta minnig á Spánardvöl minni og Gyðu árið 2001, þar sem ég held að þetta lag hafi verið spilað oftar en allir þeir dagar sem við dvöldum þar...... Þegar ég heyrði þetta lag..... saknaði ég strax Gyðu minnar sem er í Kanada að læra verkfræði, hlakka til að sjá þig Gyða mín um jólin, tökum þá eitt gott Buckley kvöld!!!!

En í alvöru mæli með þessu lagi hjá goðinu góða, tékkið á þessu!!!!

ÍÞRÓTTIR..... HANDBOLTI ER GUÐSGJÖF

Var að fletta blaðinu um daginn og áttaði mig þá á því að íþróttir á borð við handbolta eru ekkert annað en hrein guðsgjöf!!! Ekki nóg með að það sé fullt að gerast allann tímann, frekar simple leikreglur og allir geti horft á þetta, þá er líka uniformið bara fínt.

Það er annað en glíma, þar sem keppandin þarf að klæðast þröngum leðurólum sem engin skilur tilganginn í. Eða þá bara waterpolo........ varð óvart áhorfandi á þessari mögnuðu íþrótt á ólympíuleikunum og ég varð að segja fyrr myndi ég grafa mig en vera með.... manni sem stundaði þessa íþrótt...... þeir líta út eins og pínulítil smábörn með öfugarbleyjur á hausnum!!!!!

Hvað er að........ þá vil ég nú frekar kjósa almennilegar íþróttir á borð við handbolta eða fótbolta þar sem maður getur nýtt helgarnar fyrir framan sjónvarpið með bjór við hönd og skemmt sér!!!!!!!

fimmtudagur, september 09, 2004

Stjórnmál, vinnan og skólinn
Já djammið er ekki nóg hjá mér... Heimdallur er gríðarleg vinna en skemmtileg. Við höfum verið á fullu að undirbúa okkur fyrir komandi vetur. Komið er í gang fullt af áhugaverðum málefnahópum fyrir þá sem hafa áhuga. Sjálf hef ég komið mér í Borgarmálin, Mannréttindamál og Mennta-og menningarmálanefnd. Það er á mörgu að taka en vonandi gengur okkur vel..... með hjálp góðra einstaklinga. Var einmitt á góðum fundi með Vilhjálmi oddvita borgarstjórnar áðan....... kíkið bara á www.frelsi.is og sjáið dagskránna í vetur.!!!! bara gaman og gagnlegt
Helgina fór ég svo á SUS-þing á Selfossi. Þetta var málefnaþing þar sem málefnanefndir störfuðu og í lokin komu fram ályktanir og atkvæðagreiðsla um ákveðin málefni. Ég verð nú að segja fyrir mitt leiti var ég nú ekki sammála öllu......... en það er nú örugglega eðlilegt!! Allavegana mjög fróðlegt og skemmtilegt og ekki hægt að segja annað en að maður læri á þessu. Mætti þó reyna að ná dagskránni betur skipulagðari svo nafnið á þinginu verði ekki alltaf Sjúss-þing.
Vinnualkinn ég hef svo ákveðið að vinna öll þriðju- og fimmdagskvöld í vetur..... og aðra hvora helgi sem er kannski klikkun en það kemur í ljós. Kannski verður maður bara skipulagðari fyrir vikið. Bíð og vona..... skólinn kemur svo þess á milli!!!

Djammið alltaf mikið á minni það vantar ekki!!!!
Sellan er alltaf sú sama, hvort sem það er Steinselja, heilasella, sella gella eða hvað þið viljið kalla það. Mín kann sko að djamma!!!

Ekki vitlaust hjá minni að bjóða sig fram í stjórn Mágusar upp á djammið. Veturinn er rétt byrjaður og ég hef fengið 2 góð skipti til að skemmta mér og mínum. NÝNEMAFERÐIN var farin seinustu helgi upp í nýuppgerða hlöðu í Laxnesi í Mosfellsdal. Ferðin gekk mjög vel fyrir sig, við lögðum af stað frá Odda og að vanda þurftum við félagarnir að láta rútuna bíða eftir Hönnu ,,stundvísu”. Þaðan lá leiðin með fullri rútu af ný- og ekki nýnemum upp í sveit. Frekar skondin stemmari þar á ferð þar sem fólk þekktist ekkert og svoldið svona vandræðalegt á köflum, merktum þó alla með nöfnum til að auðvelda þetta..............en treystið mér það átti eftir að breytast, allt fljótandi í bjór um kvöldið, farið var í skeifukast, leikinn: hver er maðurinn? Og snilldar leik: Sækið 6 hluti ( í þetta sinn, gleraugu, trefill, sígarettupakki, smokkur, einn skór og að lokum brjóstahaldari)

Mér finnst að ég og Soffía ættum að fá eitt stórt klapp fyrir að vera þær einu sem vorum hjálpsamar og redduðum brjóstahöldurum fyrir keppendurna..... og já með þvílíkum hraða!!!

Tekinn var góður söngfílingur, þar sem Jói og Stulli tóku nokkra góða slagara og ekki klikkuðu söngbækurnar. mest ánægð með þessa frábæru djammfélaga sem ég hef eignast ..... félagar þið megið fara að vara ykkur ;o)

Leiðin lá svo á Hverfis eftir öll herlegheitin, þar sem sungið var og spilað alla leið í bæinn. Við tóku svo drykkjuleikir á Hverfisgötunni til að klára bjórbirgðirnar áður en hellt var meira í sig í bænum.... SEM SAGT MIKIL ÖLVUN Á FERÐ!!! Eins og sést. Kíkti þetta tíbýska rölt í bænum og svo seint og um síðir heim að sofa ;o)

Svo í gærkvöldi var SKEMMTIKVÖLD MÁGUSAR OG ÖKONOMIU en þar voru þessir líka mögnuðu trúbadorar á ferð. Jói í Hárinu og Kjartan sem betur eru þekktir sem trúbbar á Ara í Ögri um helgar. Góð stemmning á fólki og bara slatta góð mæting miðað við miðvikudag. Ég á líka þessar góðu vinkonur sem kíktu á mig, Vera, Sissa, Jóhanna, Benný og Bryndís takk fyrir að koma. Bara mikil söngstemming og gaman........ Bíð spennt eftir VÍSINDAFERÐ á föstudaginn svo!! Panta svo bara pláss á Vogi í desember, ekki tími fyrir það fyrr.

Sella ,,don´t have alive” is my middle name!!!!
Já þannig er það nú bara........ ég hef ekki átt mér líf seinastliðnar vikur. Ég hef verið meira en busy sem er mjög gott fyrir meira en ofvirka týpu eins og mig. Já fyrir ykkur sem þekkja mig þá tek ég mér oft oft allt og mikið fyrir hendur.

Margir teldu mig eflaust stórklikkaða ef þeir vissu hvað ég hef að gera þessa dagana..... já því ég kann ekki að segja NEI og er því núna í 6 fögum í skólanum, yfir 60% vinnu, formaður Mágusar, félags viðskiptafræðinema í HÍ og í stjórn Heimdallar..... en ég kvarta ekki. Þetta er þvílíkt gaman! Ég er nú bara ung einu sinni því er bara gott að undirbúa sig vel og telja niður dagana í almennilega hvíld í jólafríiinu.

Segi því bara gleðilegt skólaár og frábært HAUST

miðvikudagur, september 08, 2004

Allir að kíkja á HVERFIS í kvöld................

.........já það er trúbadorakvöld í boði Mágusar á Hverfis í kvöld. Tveir hressir strákar sem halda uppi stemningunni á Ara í Ögri um helgar ætla að spila fyrir okkur. Kíktu með mér..... bjallaðu bara!

Kv Sella

Ps. sorry bloggleysið, það fer að batna með skólanum!

þriðjudagur, ágúst 31, 2004

Bara komnar með blogg....... ekki gleyma að kíkja á þetta!!!

Já þær vinkonur mínar sem ákváðu að yfirgefa mig þetta skólaárið, eru byrjaðar að blogga til að lýsa menningarsjokkinu, sætu svörtu strákunum, roadtripunum o.s.frv. Elva og Anna Lára í Arkansas..... kirkjubæ þar sem áfengi er bannað! og Gyða í Kanada, þar sem hún ætlar að fræða okkur um ævintýri Welf (eða held það)...... enn 5 days to go!

mánudagur, ágúst 30, 2004

Innri friður.

(Fékk líka þennan fína póst í dag.................... og þetta virkar ;o)

Ég sendi þetta hér með áfram til þín af því þetta virkaði svo asskoti velfyrir mig.. og af því að í amstri hversdagsins þurfum við eitthvað til að viðhalda þessum innri frið. Með því að fylgja einföldu ráði sem ég las íCosmo, hef ég loksins fundið innri frið. Þetta stóð í greininni: "Leiðin til að öðlast innri frið er að klára allt sem þúhefur byrjað á". Ég horfði yfir íbúðina mína og sá allt það sem ég hafði byrjað á og ekki klárað....Og áður en ég fór út í morgun kláraði ég flösku af rauðvíni, flösku af hvítvíni, eina hálffulla Bailey's, Kahlua og kalkúnasamloku, hálft bréf af Prozac, slatta af valium, hálfa ostakökuog box af súkkulaði. Þú getur ekki ímyndað þér hvað mér líður hreint andskoti vel, þessi innri friður er alveg að blíva....


mánudagur, ágúst 23, 2004

FÁRÁNLEG SKEMMTUN..... um helgina

Já allt búið að vera að gerast þessa helgina....
FLÖSKUDAGUR byrjaði á því að undirbúa 50 ára afmæli mömmu sem var haldið á laugardaginn, og guð hvað var gaman Þegar ég og Vera vorum búnar að rista um 15 stór brauð skellti ég mér í partý til Andra og ekki að spyrja mikið stuð og mikið gaman þar...... vildi bara að ég hefði verið að tjútta með crewinu en NEI góða stelpan ég var að spara mig. Kíkti svo í ammæli til Erlu Maríu þar sem við stúlkurar átum og spjölluðum um allt milli himins og jarðar.

LAUGARDAGUR já merkisdagur.... mútta bara orðin 50 ára og fjörið rétt að byrja. Var á fullu að undirbúa afmælið hennar allann daginn, finna gömul föt sem við áttum eftir að hrella hana með fram eftir degi. Redda restinni af áfenginu sem klikkaði, klára að skreyta salinn og ná mömmu niður á tærnar þvi sjaldan hefur eins stressbylja umvafið hana svo ég muni eftir mér.

PARTÝIÐ SJÁLFT í einu orði sagt ...... BESTA PARTÝ ÁRSINS og erfitt verður að toppa það. Um 100 manns komnir að djamma með okkur familíunni, fullt af skemmtiatriðum og sjálfur Eyfi kom í teitið og söng með okkur saumókrökkum NÍNU og fleiri góða slagara. Vera fór á kostum með óundirbúið skemmtiatriði sem vakti mikla lukku þegar hún söng ,,raddaðan keðjusöng” með 3 systrum mömmu. fáránlega fyndið..... horfði á þetta live í gær og er enn að jafna mig úr hlátri. Mikið drukkið, mikið dansað og mikið djammað. Allir í banana stuði og þegar kl var um 3 lá leiðin heim í partý. Ég, Jónas bróðir, Gulla litla þjónustustúlka, Elli heimalingur og Viddi ,,afkvæmabarn nr1” kíktum á fjörið en ákváðum svo að skella okkur í byen og sjá menningarmorgun í allri sinni dýrð.

BÆRINN góður til að byrja með þar sem við skelltum okkur í pissustopp á Kofanum, fórum á Celtic og drukkum aðeins meira (þurftum svo á því að halda :o) en eins og flestir vita endaði kvöldið á Prikinu....... og Sella litli klaufabárður náði að verða fyrir einhverjum rugludalli sem grýtti glasi í gólfið og skarst svo vel á kálfa og rist að mín þurfti að skella sér á SLYSÓ og láta sauma 6 SPOR í fótinn bara ekta ég..... tók þó svolítinn tíma að koma mér úr bænum þar sem mín var ekki á því að fara heim enda djammið rétt að byrja hjá mér!!!! En svona er þetta nú...... allt er gott sem endar vel og ég er að geta byrjað að labba aftur bara gaman!

P.s var svo skemmtileg á Slysó að læknarnir sögðust vera til í að hafa svona skemmtilegan sjúkling allar helgar.!!! Spurning hvort ég taki þá á orðinu...... en þangað til næst.

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

Afmæli afmæli afmæli!!!

Í tilefni dagsins langar mig að óska afmælisbörnum dagsins til hamingju. Eva Ösp 22.ára, Hinni 23 ára, Sigrún Ósk 24 ára og Dúddi 25 ára.

Njótið dagsins til fulls og sjáumst svo öll hress og kát á landsleiknum á eftir

föstudagur, ágúst 13, 2004

ALLTAF NÓG AÐ GERA HJÁ MÉR!!!!!

OFVIRKA manneskja ég...... hef látið plata mig í allskyns hluti þessa dagana. Fyrst og fremst er ég að bjóða mig fram til stjórnar Heimdallar, sem fyrir þá sem vita ekki er það félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Brjáluð vinna þar á ferð en um leið..... frábær skemmtun. Endilega vinur minn kær ef þú kýst X-D og ert í flokknum komdu þá og settu x- við Bolla í Valhöll á morgun og trúðu mér þú færð eitt stórt faðmlag frá mér að gjöf!!!

Djammið er ekki langt undan en ég reyni að sletta aðeins úr klaufunum um leið og vinna er búin og tími gefst til.... dugleg er þaggi. Fór í kveðjupartý til Önnu Láru og Elvu seinasta laugardag og viti menn....... bara Verzló reunioun leið eins og ég væri í fyrirpartý fyrir jólaball í 4.bekk, mjög skemmtilegt og frekar skondið ha

En annars bara vinna, vinna og djamm næstu helgar. Skólinn að byrja og nóg að gerast þar. Fyrsta vísindaferð er plönuð hjá Mágusi en hún er 10. sept....... endilega farið að hlakka til, það verður stuð

En þangað til næst. Veriði hress og bless
Sella

föstudagur, júlí 30, 2004

Kvedja frá Spáni!!!!
 
Halló allir saman, hédan frá Salou er allt gott ad frétta. Sól og hitinn um 35 til 40 grádur. Voda notalegt!!!

Búin ad bralla mikid, kíkja í gokart, hjólabát, flatmaga á sólbekkjunum, versla og drekka eins og mér einni listir.

Planid er fullbókad naestu daga tar sem vid erum ad fara í straersta rússibana í Evrópu í kvold í Port Aventura, sídan aetlum vid ad kíkja á Barcelona, Andorra fríríki á Spáni og versla svolítid, synda med saeljónum í Aguapolis og svona

En bless í bili...... sjáumst hress

Sólarkvedja Sella sólskinsbros

fimmtudagur, júlí 22, 2004

AÐ LEGGJA Í HANN TIL............ ESPANA :D

Langaði til að kasta á ykkur kveðju, þar sem við familían erum að leggja í hann til Barcelona.....baby!

Eintóm gleði og hamingja, og gleðilega þjóðhátíð.... skemmtið ykkur nú án mín....... i´m gonna miss you!!!

En engar áhyggjur ég skal drekka einn á dag fyrir ykkur öll ;)


Fáránlega skemmtileg helgi!!!!!

Föstudagur …. Skellti mér með gellunum á Hárið í Austurbæ, og mikið rosalega var gaman. Mæli eindregið með þessari sýningu, allir á sprellanum og svona….. frekar gaman! Kíktum svo í gott chill í sveitina Hafnarfjörð til Heiðu þar sem mikið var spjallað, hlegið og svonna. Ég og Hanna skelltum okkur svo í byen sem fær mjög slaka dóma hjá mér þetta kvöld!!! GLÖTUÐ STEMMNING….. en fínt kvöld þrátt fyrir það.

Laugardagur ……. Þessi líka vel heppnaða óvissuferð dísanna þar sem við rúlluðum upp í Litlu kaffistofu og hittum allt hafurtaskið! Þaðan lá leið okkar á Geysi þar sem við gerðumst menningarlegri en allt og kíktum á fræðslusafn um gos, fórum í skjálftahermi……..en allt þetta átti eftir að nýtast okkur rosa vel! Kíktum svo með öllum túristunum á Strokk gjósa og drifum okkur svo á hestaleiguna Geysi, í magnaðan útreiðartúr í 19 stiga hita og sól. Urðum meira að segja módel fyrir fulla rútu af japönum sem eyddu filmunum óspart í okkur og hlógu mikið! Jon stóð sig eins og hetja en hann var að fara í 1. sinn á hestbak……. mögnuð ferð, renndum svo beinustu leið á Þingvelli þar sem við tók grill, skotbolti, ratleikur, spurningakeppni, actionary, drykkjuleikir, meiri drykkjuleikir og enn meiri drykkjuleikir ………… sem sagt bara gaman! Guðrún og Tinna fá heiðursverðlaun frá mér fyrir frábæra skipulagningu og hlakka til næstu sumarhátíðar!!! bara stuð

Sunnudagur....... Fólk vakið með ýmsum hætti. einhver útlenskur hjólreiðadúddi...  vakti nokkra með því að ræskja sig heiftarlega og kalla hátt og skýrt ,,kunts" (veit ekki hvernig skrifað, en þið skiljið.....) Byrjun dags einkenndist af fremur þynnkukenndu lofti þar sem fólk skiptist á að liggja killiflatt úti, æla út í móa, sitja og spjalla eða bara pakka saman og fara! Ég, Gyða og Tinna vorum ofursprækar og skelltum okkur því í gönguferð í Almannagjá (enda brilliant veður).....

.... Þannig að í alla staði fín helgi, eftir að ég rúllaði í bæinn tók við eiturhress vinna og er hún enn


miðvikudagur, júlí 14, 2004

Hellú allir saman, bara láta vita að mín sé á lífi....

Annar er lítið sem ekkert að frétta af mér líkt og síðustu daga.... bara vinna vinna og já aftur vinna. Skellti mér þó í innflutningspartý hjá Gyðu á laugardaginn og heppnaðist það bara hreint æðislega, fínar veigar og allir kátir. TAKK fyrir MIG! Eftir það var förinni heitið í Ýmis-húsið þar sem haldið var heljarinnarpartý með fullt af góðu fólki! Mín skellti sér á Prikið um kvöldið og gerði allt vitlaust..... nei kannski bara brósa sem var í dyrunum það kvöldið ;o) sorry bro

Hörkustuð þar á ferð og endaði á jamminu með litlu systir Danna Tiger ´86 módel og hörkustuðbolti.... gloppótt kvöld á pörtum heimkoma 07.29!

Vinnan tók svo við auk þess sem tekin var kósí videóstemning á mánudaginnn hjá Gyðu, mikið nammi étið og spjallað um lífið og tilveruna. svaka stuð!

En framundan er starfsmannakeila á fimmtudag, Hárið á föstudag, óvissuútilega á laugardag, matarboð á sunnudag og svo Spánn á fimmtudag...... þess á milli er bara vinna, en sjáumst hress..... ekkert stress....bless

föstudagur, júlí 09, 2004

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ!!

Vildi nota tækifærið og óska Önnu Láru ástkærri vinkonu minni til hamingju með afmælið í dag ;o) Njóttu góða veðursins og sjáumst hressar á eftir.......haha 23 ára skvísa þarna á ferð ;o)

fimmtudagur, júlí 08, 2004

Verið að rústa öllu hérna heima!!

Það er alveg merkilegt hvað við fjölskyldan getum gert. Erum nú í þessum töluðum orðum búin að vera með kúbein og þess háttar verkfæri að brjóta niður eldhúsinnréttinguna, erum að fá þessa nýju á eftir, erum búin að kaupa nýjann ísskáp, eldavél, hellur, viftu, flísar og alles. Bara allt að vera klárt fyrir utanlandsferðina.......

....bara allt að gerast, afmæli, innflutningspartý, tiltekt og 2 vikur í Spán .....bara gaman :o)

miðvikudagur, júlí 07, 2004

DJÖFULL VAR GAMAN Á SKÓGUM!!!!!

Varð bara að deila með ykkur gleði minni yfir vel heppnaðri helgi á skógum um helgina, mikið drukkið, djammað, dansað, djúsað og bara meira drukkið!

Ógleymanleg ferð þar sem Anný fékk án efa drykkjuverðlaunin, ég og Elín erum hamborgara meistararnir og allar hinar gellurnar fá eitt stórt klapp fyrir að vera brilliant útilegufélagar! Þetta verður að endurtaka aftur!

Ein spurning frá mér til ykkar er eðlilegt að fólk hlaupi á sundfötum einum saman út í Skógarfoss?? Urðum nefnilega vitni af tveimur útlenskum vitleysingum sem gerðu það??

En enn og aftur hver er til í aðra útilegu??

föstudagur, júlí 02, 2004

Þá er komið að því.........SKÓGAR HERE I COME!!!

Komið að líka þessari undurmerkilegu og skemmtilegu ferð, bjórinn, freyðivínið, bacardiið, ginið, kæliboxið, verkjatöflur og skærgulu 66°norður pollabuxurnar komnar út í bíl......

.....eigið góða helgi, enginn vafi á því að ég eigi góða helgi!!

Gleðilega fyrstu helgina í júlí, og stelpur engan aumingjaskap, skellið ykkur með mér, Siggu, Sigrúnu, Elínu, Jóhönnu, Veru, Heiðu og Lindu í útilegu!!!

Bara gaman

þriðjudagur, júní 29, 2004

Tjaldgellurnar miklu

Var rétt í þessu að koma innan úr garði frá því að tjalda líka þessu magnaða 25 ára gömlu tjaldi frá Seglagerðinni Ægi. Þetta er eitt af þessu völundarhúsi sem að tekur óratíma að setja saman en er brilliant partýtjald að lokum.

Við skvísurnar (Jóhanna, Sigga, Sigrún og Heiða) skelltum þessu upp á mettíma og nú er stemningin fyrir Djammútilegunni í Skóga orðin óbærileg ég get ekki beðið. Fór og keypti miða fyrir mig, Veru og Elínu áðan og viti menn nr. 176 af 300 á fyrsta degi.......þetta boðar gott!!!!!

En ef þig/ykkur langar í útilegu endilega komndu með..... það er víst að það verður brjálæðislega gaman og hörkufillerí!!!!!! Já eyjafarar er ekki komin tími til að taka smá upphitun?

Furðulegt laugardagskvöld

Eins og vandi er á sumrinn þá vinn ég eins og mófó og á mér ekkert líf...... sem er bara gaman á útborgunardögum! En allavegana skellti mér í vinnuna á laugardaginn kl:10 þar sem ég lét sköpunargleðina ríkja í heila 12 tíma þar sem breytingar eru í gangi. Þegar ég var búin að rífa allt og tæta, færa, breyta, brjóta og gera var mér leift að fara heim!

Gaman gaman, mín ákvað því að skella sér og kjósa eins og sannur Íslendingur..... nei ekki eins og sannur Íslendingur þá var ég á seinustu stundu!!!! Keyrði eins og brjálæðingur niðrí Breiðó þar sem Kjördeild 1 beið mín til að fá þetta líka dýrmæta atkvæði þessa forsetakosninguna og viti menn þegar mín mætir, labbar inn dyrnar á skólanum heyrist í kallað í gjallarhorni: ,, 45 sekúntur þar til kjörkössum lokar" .........ég bara spyr gat það munað einhverju meiru!!!

Er ég óstundvísasta manneskjan sem þið þekkið.... kannski fyrir utan Benný ;o)

Allavegana kíkti á nýju sætu og fínu íbúðina hennar Jóhönnu upp í Jöklaseli og svo á röltið þar sem margt var um manninn og mest af furðulegu fólki. sáum konu klædda sem jarðaber, nokkra í indverskum búningum, stelpur með geimveru hárspangir, stelpu í eldrauðum galakjól á djamminu og eina gellu sem bar brilliant tösku í líki garðkönnu!!!! Skondið lið hér á ferð, kannski tók ég bara eftir þessu því ég var drú þetta kvöld.... Drew Barrimore ;)

föstudagur, júní 25, 2004

Róleg helgi framundan!!!

Já ekki mikið að frétta af mér þessa dagana bara vinna, vinna vinna í ,,geðveikrahælinu" í Garðabænum. Eintóm vitleysa get ég nú sagt ykkur og ekki batnar það þar sem ég sé fram á að vera þar í 26 tíma fram á sunnudag hljómar vel,.......nei ég veit það!!!

Allavegana er farin að hlakka rosalega til fyrir árlegu fyllerísferðina fyrstu helgina í júlí.....nú verður sko skellt sér í Skóga og glás af góðu fólki búið að skrá sig!! Komd þú með líka!!!

En meira af óheppni fjölskyldunnar, ekki nóg með að bróðir minn hafi verið bitinn um helgina, haldiði ekki að það hafi verið keyrt svona allsvakalega á múttu áðan!!! HVað er að gerast, vonandi verð ég ekki næst!!!

En þangað til næst, eigið góðar stundir og sjáumst hress!!!

Ps. Anna Lára, Anna Jóna, Benný, Guðrún, Gyða, Helga, Hrebbna, Katrín, Laufey, María, Marín, Ragna, Sunna, Telma og Tinna sakna ykkar rosalega og rosalega fúl að hafa misst af saumó í gær!!! Endilega látið mig vita allt slúðrið!!

Ég hélt að ég væri slúðurberinn, vonandi kom samt einhvað krassandi ;)

miðvikudagur, júní 23, 2004

Eintóm gleði!!!!

Mikið er sumarið skemmtilegt, ekkert eðlilega gott veður og eintóm drykkja! Helgin var óstjórnlega skemmtileg, útskrift Gullu og þaðan beint í grill heima með góðum hópi af fólki.... og hvað er málið þegar ég dett í það með bróður mínum er það ávísun á blackout og vitleysu!!!

....Nei ég segi svona, allt að gerast, mikið, meira mest drukkið kíkt á Prikið þar sem stuðinu var haldið uppi þar til einhver dúddi beit Jónas bróður í upphandlegginn og hann þurfti að bruna upp á slysó til að fá sýklalyf og alles. Við skelltum okkur því bara á Celtic, Hverfis til lokunar og þegar brósi fyllibytta var komin aftur í bæinn fór ég þangað og sníkti bjór!!

Kvöldið fremur blörí eftir 3:40 en ef þið hafið upplýsingar um ferðir mínar eftir það, þá eru allar upplýsingar vel þegnar :o)

Þessa vikuna er svo bara vinna vinna vinna og mín á leið til Spánar eftir mánuð með 10 manns úr familíunni, sumarið frekar planað, útilega fyrstu helgina í júlí, sumarhátíð réttódísanna 17.júlí, Spánn 22.júlí til 5.ágúst, fimmtugsafmæli mömmu 21.ágúst og allt hitt er eintóm hamingja og djamm

En bless í bili og njótið sólarinnar
Sella sólargeisli

ps. Guðrún Sveins innilega til hamingju með afmælið stóra stelpa, endilega bjallaðu um leið og þú kemur í bæinn!!! Njóttu dagsins!!!

föstudagur, júní 18, 2004

Þynnkan enn að segja til sín!!!!

Mikið ROSALEGA VAR GAMAN á miðvikudaginn! Byrjuðum í góðum grillgír heima hjá brósa, þar sem hann var einn í kvennaveldi, en þaðan lá leiðin í ruglið niðrí bæ þar sem maður sæmdi sig mjög vel þar!!!! Get ekki sagt annað en bara nánast ennþá þunn og drulluþreytt eftir átökin.....

....en til í þau næstu, djamm á morgun en þangað til þá, gangið hægt um gleðina dyr

Ps. HAUKUR JOHNSON innilega til hamingju með daginn kallinn, njóttu afmælisdagsins í botn!!!

miðvikudagur, júní 16, 2004

DJAMM DJAMM DJAMM Í KVÖLD

....komin til brósa í Grill, djamm í kvöld! Ég, Sigga, Sigrún, Tulla og Elva komnar og til í tjúttið. Hafið samband í kvöldinu ef að þið eruð til í tjútt

Stellu Artois kveðjur

Sella sólskinsgella!!!!

mánudagur, júní 14, 2004

Enn ein helgin búin...... og sumarið líka!!!

Alveg fáránlegt hvað þetta ár er búið að vera flótt að líða, mér finnst ég nýkomin heim frá Köben.... en nei bara 3 vikur. Helgin var annars bara mjög fín, ég kíkti á röltið bæði flöskudag og laugardag og var stuð á fólki bæði kvöldin. Kellan bara drú eins og vanalega, bara bílandi á nýja fína kagganum!

Á föstudaginn kíkti ég á röltið með Önnu Láru og vöru helstu staðir bæjarins skoðaðir, hittum slatta af fullu fólki og fá Gauti og Hinni verðlaunin fyrir að vera verstir ;o) bara stuð, komin heim seint eins og vanalega,

Vinna á laugardag auk þess sem við gellurnar skelltum okkur í Kringluna í útskriftargjafaleiðangur. (vá langt orð) því Jóna og Íris voru að útskrifast sem viðskiptafræðingar úr HR innilega til hamingju gellur. Fór svo í búðarráp með Elvu og Helgu og lá leiðin beint í Nammiland Hagkaupa...... nammi namm

Eftir vinnu eða um 02:00 kíkti ég svo á Hönnu vinkonu og við tókum nettan göngugír á 101 Reykjavík þar sem stemmningin var ekki nærri því eins góð og á flöskudag, en fín samt, kíkti á Prikið til Jónasar, heilsaði upp á Hrebbnu afmælisbarn á Ara TIL HAMINGJU ELSKAN MÍN...... og svo á nánast alla aðra staði, enduðum gott kvöld á Devitos.

Dagurinn í dag er búin að vera vinna og fínt chill...... fékk Evu, Tinnu og Natalíu í heimsókn þar sem skoðaðar voru fillerýismyndir frá Sjómannadagshelginni, bestu helgi sumarsins til þess

......en eitt í viðbót, það er verið að plana útilegu 1. helgina í júlí í Skóga þar sem Viðskiptafræðin og Verkfræðin í HÍ ætla að djamma saman, þannig að var bara að spá er ekki góður mórall í fólki fyrir því???? Látið mig vita, ég get allavegana ekki beðið eftir þessu öllu saman, svo bara Salou í lok júlí.....gott veður, gott sumar

Sjáumst og heyrumst...
Sella sólskinsbarn

miðvikudagur, júní 09, 2004

Varð bara að segja eitt í viðbót.....

...ferðasagan frá Köben og myndir koma rétt strax, enn verið að ritskoða!!!

bara svona fyrir forvitna

HVAÐA ÁHRIF HÖFUM VIÐ VINKONURNAR Á KARLMENN????

Datt líka svona hressilega í það á laugardaginn með fríðum hóp 8 yngismeyja og 2 pilta. Allt gott og blessað, mikið grillað, drukkið, sungið, trallað og dansað. Allt eins og vanalega Sella missti röddina en nóg um það, í þessu líka skemmtilega teiti hjá Veru, bankaði uppá nakinn stráklingur með sólgleraugu , eins og ekkert væri sjálfsagðara, spyrði í hvort hann væri ekki í réttu húsi og hljóp svo burt á sprellanum....... allavegana leið okkar lá í bæinn og eins og við erum nú klárar snýktum við far í bæinn hjá nýja nágrannanum hennar Veru...... yndislegur gaur, tók okkur 5 stelpurnar í bílinn..... og viti menn stráksi stoppaður í Öskjuhlíðinni með yfirfarþega Bryndís þurfti bara að taka sig til og snýkja far í bæinn og við fáum sekt í hausinn bráðlega.

En nóg um það við kellur skelltum okkur á Ara í góðan grjónagraut, þaðan á Felix og í fullnægingu og svo var farið á Prikið og kíkt á brósa sem var að vinna........Já viti menn í hverju haldið þið að ég hafi lent............. Settist við hliðina á ungum dreng sem ég þekki til og haldiði ekki bara að hann hafi vippað sér úr buxunum JÁ ÞAÐ INN Á STAÐNUM........ og fyrr en varir var kallinn bara komin í góða stellingu við hliðina á okkur vinkonum með hendur inn á buxum að klappa litla manni sínum þarna niðri við áttum ekki til orð og lét ég Jónas bróðir kippa þessu í liðinn.............já en það er nú ekki búið, þegar hann fór, kom nýr gaur og var hann strax kominn í klofið á sér!!!!!

ÉG BARA SPYR HVAÐA ÁHRIF HÖFUM VIÐ Á KALLA

Fórum þaðan á Hverfis þar sem mikið var um stuðið, eftir lokun var svo tekið nett rölt niðrá Lækjatorg og tók ég nett rölt með Bigga á Hlölla frekar mikið stuð........komin heim með nýja kærastanum mínum (Tinnu Sif, frænku) sem er orðinn tíður næturgestur hjá mér og Veru!!!

Í einu orði sagt BRILLIANT helgi, en þynnka á sunnudag og vinna.......

annars lítið að frétta af mér....... komin með reglulegan vinnutíma sem er mjög gott, vinn alltaf á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum (8-18) ásamt því að vinna þriðjudags- og fimmtudagskvöld (16-24) og aðra hverja helgi!!! Þannig að ef þið viljið gera einhvað........ let me know

fimmtudagur, júní 03, 2004

ÉG Á LÍKA BÍL..........LIGGA LIGGA LÁI

Keypti mér glæsikerru í dag. Svartan Passat, árgerð 2001, ekinn 56000 á 1.300.000 kr og losnaði við hvítu druslunuma mína..

....þannig að bara gleði gleði, þið ætttuð bara að sjá gripinn. Varð víst bara að fjárfesta í einhverju sem ég vil, víst ég fæ ekki þá karlmenn sem ég óska!!

En BÍLAGLEÐI BÍLAGLEÐI, komið á rúntinn

Sella gella, ´bílamær

miðvikudagur, júní 02, 2004

I´m in love...... og það af SVERTINGJA!!!

Já en ekki vera hrædd strax því þetta er bara BÍLL..... er búin að finna draumabílinn minn, svartann Passat árgerð 2001 svaka flottan og hver veit nema mín slái bara til og skelli sér á hann!

Fremur óreyndur kappi sem er bara gott, ungur sem er enn betra fyrir þá ungu þið skiljið..... og já hann verður reynslunni ríkari með mér!!!

Læt ykkur vita hvernig ástarmálin þróast, er það samband eða EKKI

mánudagur, maí 31, 2004

Hversu plebbalegur er Hressó skemmtistaðurinn?

Verð nú bara að segja........fór þarna í gær og sá bara skrítið og skondið fólk! Frekar plebbalegt lið.

Reyndar var stemmarinn frekar furðulegur í gær þrátt fyrir ágætis djamm á fólki. Mín bara drú í gær...... já Drew Barimore alla helgina!!!!

En ekki örvænta er að vinna alla vikuna frá 8-18 þessa vikuna og svo er búið að plana ærlegt grill-stelpu partý.........hlakka til að sjá ykkur þá

.......en þangað til næst ;o)

þriðjudagur, maí 25, 2004

I´m back........og já Köben er ÆÐI

Vildi bara láta vita að voðinn er vís, mín komin á klakann aftur með yfirvigt og læti eftir vel heppnaða DRYKKJUFERÐ til Kóngsins Köben!!!

Ferðasagan kemur í pörtum, og þegar myndirnar hafa verið ritskoðaðar..... þa koma þær á netið......200 talsins ca.

Að lokum Sigga, Vera og Sigrún TAKK ÆÐISLEGA FYRIR BLING BLING FERÐ, segi bara á sama stað að ári.

Skál í boðinu og restin í hárið.

fimmtudagur, maí 13, 2004

Þá má land og þjóð fara að vara sig.....

.....ég er komin aftur út í samfélagið, var rétt í þessu að klára mitt síðasta próf þessa önnina og gekk bara svona assskoti vel! Heilsa miðað við aðstæður, ósofinn og sæt, auk þess sem ég þarf stífkrampasprautu í hendina eftir óvenju hraða og mikla skrift síðastliðna sólahringa...

.....ENN ALLT ER GOTT SEM ENDAR VEL......og nú tekur bara við sukk og svínarí

ENDILEGA óskið mér til hamingju með þessi yndislegu tíðindi hlakka svo til að sjá sem flesta á DJAMMINU UM HELGINA er þaggi??????

Fyrir þá sem eru sífellt að spá í hollustu og mataræði er gott að hafa eftirfarandi í huga:

Japanir borða mjög lítið af fitu og fá færri hjartaáföll en Bretar
og Bandaríkjamenn.


Frakkar borða mikið af fitu og fá líka færri hjartaáföll en Bretar
og Bandaríkjamenn.

Japanir drekka mjög lítið af rauðvíni og fá færri hjartaáföll en
Bretar og Bandaríkjamenn.


Frakkar drekka óhóflega af rauðvíni og fá líka færri hjartaáföll en
Bretar og Bandaríkjamenn.


Niðurstaða:
Borðaðu og drekktu það sem þú vilt.
Enska er það sem virðist drepa fólk.

Allt að gerast.....

........Prófin að verða búin
.... Eurovision og djamm á laugardag
........og Köben eftir 5 daga

Nýjir bloggfélagar!!!

Núna hafa nýjir bloggfélagar bæst við hópinn bæði ungir og öllu eldri. Telma yndislega vinkona mín og Högni Alvar sem er nú ekki orðinn mánaðagamall.....

Endilega kíkið á þetta

mánudagur, maí 10, 2004

BARA ALLT AÐ GERAST.........

Búið að selja mig, JÁ ÞAÐ ER RÉTT , Siggi er sem sagt búin að selja Bitabæ ehf. staðinn sem ég hef unnið á síðastliðin 2 ár.

Fékk símtal í gærkvöldi þar sem mér var sagt að búið væri að selja mig og ég fengi nýjann yfirmann og allers!! NETT SJOKK ég sem var búin að plana sumarið, búin að fá frí til að skella mér til útlanda bæði eftir 7 daga til KÖBEN og svo líka í júlí með familíunni til Spánar. Sjoppan var seld með öllum skilmálum og ég fæ því fríið og allt eins og VAR.. gaman gaman

Líka búin að fá út úr fyrsta prófinu 7 er komin í hús í líka þessari yndislegu Rekstrarstjórnun...... þannig að bara allt að gerast!

Kv. nýja Aktu Taktu/X-Bitabær

laugardagur, maí 08, 2004

Who were you in a past life?
by Kat007
Name:
Birthdate:
Favorite Color:
Country:
You were most probably:Bonnie or Clyde
If not then you were:Leonardo da Vinci
Created with the ORIGINAL MemeGen!

Gleymdi að segja eitt......

......gaman hjá mér, keypti Toy Story 1 og 2 og Monster Inc á DVD í dag...........ég ELSKA Disney myndir :o)

MEÐ RÆNINGJANN Á TRÖPPUNUM

Ræningjar og rupplarar eru á kreiki hér í Fossvoginum, ekki nóg með það þá í botnlanganum mínum og nágrenni. Maður er aldrei save. Brotist inn í bílinn hjá nágrönnunum í fyrrinótt já og ekki nóg með það þá var hann á bílaplaninu mínu........

..........líka brotist inn í tvo bíla í götunni. Mætti löggunni á tröppunum þegar ég arkaði grútþreytt upp í skóla í leið í prófið. Hélt það ætti bara að handjárna mig glæpamanninn sjálfan fyrir einhvað álíka og svindlið ógurlega.....

..... en nei allt fór vel, prófið gekk vel og núna eru bara tvö eftir........ HÚRRA HÚRRA HÚRRA HÚRRA....

Bið ykkur vel að lifa á meðan og farið að undirbúa ykkur..... búin í prófum þann 13. :o)

miðvikudagur, maí 05, 2004

ÞAÐ Á EKKI AF MÉR AÐ GANGA ÞESSA DAGANA

Líf mitt er yndislegt þessa dagana, allt gengur eins og í sögu og ég sé fram á framúrskarandi einkunnir í prófunum, bara ALLT í blóma........

.....bara ef lífið væri svona einfalt Nei en svo aldeilis ekki, líf mitt snýst um vinnu og lærdóma frá morgni til kvölds. Búin með tvö próf, það fyrra gekk vonum framar en ég get ekki sagt það um það seinna.

Var í því góða prófi í gær, og viti menn Heppin ég bara tekinn fyrir að svindla. já svindla . Þannig er mál með vexti að tölvan mín krassaði rétt fyrir jólaprófin og fékk ég hana lagaða eins og skot. Maðurinn sem lagaði hana gaf mér svo miða sem á stóð Win XP pro og svo einhvað 26 stafa lykilorð ef tölvan færi nú að stríða mér...... .og viti menn ég var löngu búin að gleyma þessum miða í pennaveskinu mínu og yfirsetukonan tók mig fyrir svindl í prófinu út af þessu. Ég var stimplaður glæpamaður Allt fór í háaloft, hún kallaði á einhvern mann sem var yfir húsinu sem ég tók prófið og u.þ.b hálftíma síðar er bankað í öxlina á mér og ég beðin um að koma fram og tala við mjög svo almennilegan mann sem spurði mig hvort ég ætti þennan miða, hvort ég hafi verið með hann og bað mig svo skýringar á honum sem og ég gerði...... Hann talaði örstutt við mig og sagði svo við mig: ,,gangi þér þá mjög vel með restina af prófinu”.......... sem ekkki var það sem ég gerði veit ég er fallinnn og tek það í sumar......vona bara að allt sé þegar 3 er.... búin að falla einu sinni og sé fram á annað fall......

Frekar uppörvandi, einungis þrjú próf eftir, núna á fimmtudaginn og svo 12. og 13. maí.....Segi bara við ykkur stay cool, stay dry, stay in Reykjavík......hlakka til að sjá ykkur öll sem fyrst... LOVE YOU ALL

BTW..... útlönd eftir 12 daga :o) Kaupmannahöfn here I come

laugardagur, maí 01, 2004

Til hamingju til hamingju

Vill bara nota tækifærið og óska elskunum mínum þeim Jóhönnu til hamingju með 23 ára afmælið og Kalla litla frænda til hamingju með 10 ára afmælið.........

........þið eruð orðinn ekkert smá stór..... já og Hanna mín, held bara jafn stór ;o)

Njótið dagsins..... og þeir sem eru í prófum gangi ykkur ógeðslega vel. ÉG er orðin ekkert annað en stress, reapfuel, svefnleysi, vinna, lærdómur og já ógeðslegheit...... Bíð spennt eftir að þessu ljúki

fimmtudagur, apríl 29, 2004

Skemmtilegt þetta........kemur einhver á Metalica tónleika hjá MÉR ????

Which Band Should You Be In?
by couplandesque
Your Name
Band NameMetallica
RoleVocalist
TrademarkUnique Wardrobe
Love InterestSupermodel
Created with the ORIGINAL MemeGen!

mánudagur, apríl 26, 2004

ANNA JÓNA OG HÖRÐUR.......INNILEGA TIL HAMINGJU :O)

Fékk lítið og sætt sms í morgun:

Högni Alvar Harðarson fæddist 25. apríl kl. 23:59. Hann er 3215 gr og 51 cm. Allt gekk ótrúlega vel og allir eru við hestaheilsu :)

Langaði bara að segja hversu KRÚTTILEGT og æðislegt þetta er......... og bara enn og aftur til hamingju, litla fjölskylda

föstudagur, apríl 23, 2004

EUROVISION DJAMM MEÐ MÉR ER ÞAGGI??????

Já svona fyrir ykkur félagana á ekki að djamm með mér á EUROVISION þann 15.maí næstkomandi.
Þannig er mál með vexti að það er próflokadjamm hjá okkur í viðskiptafræðinni og verður það haldið á Felix. Þvílík stemmning og gaman að fá sem flesta til að sletta úr klaufunum með mér....... Það kostar 250 kr. inn en boðið upp á bjór og eftir það verður tilboð á barnum. Stór bjór á 350 kr, skot á 300 kr. og léttvínsglas á 400 kr.

Sem sagt einhvað fyrir alla. Er ekki bara málið að fjölmenna og hafa gaman að. Lokadjammið verður haldið með hagfræðinni....... þannig að stelpur nóg af strákum og þið strákar þurfið ekki að örvænta það eru fleiri stelpur hér í viðskiptafræðinni

BARA EINHVAÐ FYRIR ALLA.............ERTU MEMM????

Skóli, próf, lærdómur, bíó og franskir dátar

Vil byrja á því að óska öllum gleðilegs sumars
En héðan frá mér er lítið sem ekki neitt að frétta, jú fór í bíó á þriðjudaginn á frekar magnaða mynd 50 first date með Elínu, Ingu Rós og Benna. Fannst hún bara fremur góð..... enda tíbýsk fyrir minn kvikmyndasmekk...... þaðan lá leið okkar krakkanna á Café Victor þar sem sötrað var kaffi og kakó. Kósí stemmning en þegar það lokaði ákváðum við að taka rúnt niðrí Sundahöfn og sjá þessi gífurlega stóru Varðskip sem komin voru í höfn. VÁ MAÐUR þvílík stærð.

Að bíltúrnum loknum var farið aftur niður í bæ og náð í bílana en þar sem við Elín vorum með munnræpu settist ég upp í bíl til hennar og við héldum áfram að spjalla. Eftir dágóða stund var svo bankað á rúðuna hjá okkur og viti menn þar stóðu tveir menn. Við opnuðum gluggann og þá hófst miður gáfurlegt samtal...

Við: Halló
Þeir: informacion please???? Frekar skömmustulegir
Við: Yes what,
Þeir: Lost in Reykjavík
Við: and looking for?
Þeir: ship, ship yes ship
Við: You are Frech Sailers´
Þeir: Yes

Og viti menn við svona ROSA GÓÐAR skutluðum þeim í skipið sitt....... og frekar skondið þetta voru einu orðin sem að þeir kunni í ensku...... NEI annars gátu þeir líka sagt 4 kilometers.

Greinilega fjarlægðin frá miðbæ Reykjavíkur að skipinu. Frekar skondið þetta

Ekki vitað leiðinlegra.....

Það er greinilegt þessa dagana að Íslandsbanki er að hrekja fólk frá sér með óendanlega leiðinlegum auglýsingum með líka þessari miður skemmtilegu leikkonu Halldóru Geirharðs.

Ekki nóg með að hún sé ofýkt kella og miður óskemmtilegur karakter þá er það greinilegt að ég mun ekki stunda viðskipti mín hjá þessum banka síst eftir þessar hel..... auglýsingar

Hvað finnst þér um þær?

þriðjudagur, apríl 20, 2004

1. PRÓF BÚIÐ ;o)

Rosa góð tilfinning.... rekstrarstjórnun búin og mér gekk bara ágætlega, hef það á tilfinningunni að ég sé búin að ná því, bara spurninig um einkunn...... Fínt bara 4 eftir.....

............þannig að ég vil bara minna fólk á ærlegt djamm bæði 14. og 15. maí..... ég klára reyndar 13. ;o)

laugardagur, apríl 17, 2004

HVAÐ ER MÁLIÐ AÐ VERA SLUGSI.....

Það er svo fáránlegt hvað maður getur látið lærdóminn liggja á hakanum.... maður er tilbúin til að gera allt, núna er ég búin að mæta í vinnuna, taka að mér aukavaktir, setja allt í þvottavél sem hægt er að setja í þvottavél og já þurrka af öllu...

.... ég nenni samt ekki að byrja að læra, fyrsta próf á þriðjudaginn og mín komin í þennan vana gír..... sem sagt slugsað allann daginn og svo byrjað að læra og lært til svona 04:30 eða 05:00.... næturhrafninn ég.

Er einhver næturhrafn eins og ég sem vill læra með mér á nóttinni

P.S ætla að breyta slugsinu mínu í einhvað viturlegt og fara að læra.... hver veit nema maður fari svo að skella sér í hreyfingu eða í sund......

miðvikudagur, apríl 14, 2004

MARGT SMART GERIR EITT LEKKERT!!!! Nokkrar staðreyndir um mig, bara svona fyrir forvitna....

1. Ég er 22 ára Reykvíkingur.
2. Fæddist þann 29. september á því sæmdarári 1981 og er því vog.
3. Hef verið í Ísaksskóla, Fossvogsskóla, Réttó, Verzló, HÍ og tónlistaskóla Mosfellsbæjar.
4. Bý nánast á þyrlupallinum í Fossvoginum.....108 besta hverfið
5. Hef lært á flautu og píanó en dreymir um að læra á saxafón.
6. Ég var að læra söng.
7. Er nemandi í viðskiptafræði og spænsku við Háskóla Íslands.
8. Ég er formaður nemendafélags Viðskiptafræðinema fyrir skólaárið 2004-2005.
9. Á eitt systkini..... bróður sem er 25 ára.
10. Fór að háskæla í hvert sinn sem sagt var ,, þar hittir skrattinn ömmu sína”
11. Hélt þá að ég væri skrattinn og vildi það ekki.
12. Er ekki hársár, enda með frekar sítt dökkt hár í dag
13. Ég á góða og skemmtilega vini sem að mér þykir vænt um....
14. ..... og fjölskyldu líka auðvitað!!
15. Ég er gagnkynhneigð.
16. Er ekki með Tattoo
17. Skó og fatasjúklingur......meira SKÓ kjúklingur
18. Fólk hefur sagt mér að ég sé dularfull og ógnvekjandi.
19. Ég er ekki á sakaskrá, en hefur þrisvar verið stoppuð og þurft að blása....
20. Aldrei neitt mælst, drekk ekki og keyri.... DREKK því frekar :o)
21. Ég er astma sjúklingur.
22. Get ekki lifað án tónlistar og gemsans
23. og auðvitað ekki fjölskyldunnar heldur.... love you
24. Var þó einu sinni stoppuð fyrir að vera með of fullt fólk í bílnum Önnu Láru, Gyðu og Jónas bróðir
25. Var viðstödd þegar amma féll frá..... sorglegt það
26. Hef alltaf verið strákastelpa..... elskaði löggu og bófa, hékk alltaf með gaurunum á BMX hjólinu mínu eða á hjólabretti í hverfinu.
27. Ég á engan kærasta en langar alveg í eitt stykki kúrikall.... hver er til?
28. Ég er örvhent
29. Hef verið laminn af strák í Kringlunni þegar ég var svona 12 ára.
30. Ég nota gleraugu.... þó oftast linsur
31. Var með snuð þangað til ég var 7 ára.
32. Þegar ég var lítil var ætíð farið í leik í bílnum sem hlóðaði svona Hvað er svart og skítugt og situr í aftursætinu ....... það var ég, lýsir mér vel.
33. Ég er bláeygð...... og stundum brúneyð þegar ég fer á djammið.....
34. Fór í útskriftarferð til Krítar, sukk, sukk, sukk sukkkkkk hvað þarf að segja meira
35. Allir mínir vinir kalla mig Sellu...... en mamma mig Sesselju Dagbjörtu, svona þegar er verið að skamma mig ;o)
36. Ég elska ÍS gæti lifað á honum
37. Styð lið líkt og Manchester United og Víking
38. Ég var með drengjakoll í 12 ára bekk og stutt hár við fermingu.
39. Er með ofnæmi fyrir tómötum.
40. Var skýrð í höfuðið á ömmu minni og vinkonu mömmu sem drukknaði þegar hún var 17 ára.
41. Söng einu sinni í Stundinni okkar.... svaka stuð
42. Fór eftir Verzló með Gyðu vinkonu til Spánar og dvaldist þar frá 22.ágúst til 19.desember
43. Drakk mikið þar og kynntist fullt af skemmtilegu fólki
44. ........aðallega fullum svíum og norðmönnum
45. Mér er meinilla við tannlækna, aðallega eftir að ég datt niður stiga þegar ég var 4 ára og braut 9 tennur
46. Pissaði alltaf í buxurnar þegar ég var lítil..... vildi ekki missa af fjörinu úti.
47. .....geri það ekki enn
48. Elska að taka myndir, á tvær Digital camerur og eina venjulega.
49. Hef aldrei reykt..... en mikið drukkið í staðinn
50. Þoli ekki ósanngirni og frekju, öll DÝRIN Í SKÓGINUM EIGA AÐ VERA VINIR
51. Á um 5000 myndir úr Verzló.... menntaskólaárin fest á filmu :o)
52. Held ég hafi verið lítil senjoríta í fyrralífi..... elska Spán, spænsku og allt sem við kemur landinu og þjóð.
53. Farið á þjóðhátíð 5 sinnum frá 1999 – 2003, kemst því miður ekki núna verð á Spáni.
54. Er í sífelldu aðhaldi.... langar að missa nokkur kíló.
55. Þættir eins og Leiðarljós, Nágrannar, Dawsons Creek og svoleiðis þvælu ÞOLI ég ekki.... vill frekar Footballers Wife eða bara góðan handboltaleik í sjónvarpinu
56. Ég held ég virðist nokkuð opin og ófeimin en við nánari athugun er annað upp á teningnum. Ég get verið rosalega óörugg með sjálfa mig og hrikalega feimin.
57. Ég elska kínverskan mat..... aðallega Nings.
58. Uppáhaldslitur: rautt
59. Er með tvö ör í andlitinu..... eitt á vörinni eftir að ég datt og fékk 2 tennur í næstum í gegnum vörina....
60. ...... hitt á hökunni eftir að ég datt niður af skáp sem ég var að príla á, saumuð 5 spor
61. Skóstærð: 37 – 38
62. Íþróttamerki: NIKE og smá Puma
63. Hef puttabrotnað 2*, brotið hnéskelina, farið úr hnélið 2*, brotið 9 tennur, fengið 2* glóðurauga..
64. .......nánast allt því ég æfði handbolta í 9 ár.
65. Flippaði í 10.bekk og setti í mig permanett..... frekar furðulegt verð ég að segja
66. Pæliði í því ég var einu sinni í ballettttt
67. Ég vinn í sjoppu með skólanum.
68. Óvæntasta sem komið hefur fyrir mig var að fá RISABLÓMVÖND afhentan í spænskuskólanum mínum í Marbella á 20 ára afmælisdaginn minn frá mömmu, pabba og bróðir mínum á Íslandi...... magnað það
69. Hef týnt 2 gemstum og á einn ónýtan heima
70. Ég er eyðslukló
71. Var barin með Baseball kylfu í höfuðið svona 10 ára gömul
72. Takk brósi fyrir það ;o)
73. Hef búið á 3 stöðum í Reykjavík, 111, 105 og 108 þ.e. Krummahólum, Stórholti og nú Álfalandi
74. Fékk 9,5 =>8,5 => 8,5 => 6,5 í samræmduprófunum.
75. Best í íslensku svo stærðfræði, dönsku og svo ensku.
76. Týnt nokkrum jökkum á djamminu og c.a 4 töskum verið stolið af mér.
77. Féll einu sinni í bóklega bílprófinu með 0 og 3 villur mátti fá 2 og 5.
78. Drekk ekki dökkt gos og þoli ekki Coke
79. Elska Friends og hef fest kaup á öllum seríunum á DVD
80. Ég bý í foreldrahúsum en reyni að taka frá pening upp í íbúð.
81. .....það gengur erfiðlega þar sem ég hef farið 2* eða oftar til útlanda síðan 2000.
82. Trúi á líf eftir dauðann
83. TALA víst rosalega mikið og ROSALEGA hátt
84. Er háð internetinu það er ekkert djók
85. Hef aldrei átt pennavin, fannst það halló ;o)
86. Happatölurnar mínar eru 5,8,21,23 og 29....... vel þær alltaf í LOTTÓ
87. Á ekki bíl, en keyri um á Toyota Corolla árgerð ´91 sem M&P eiga
88. Hef æft handbolta, fótbolta, badminton, dans, ballet, tennis, Jazzballet
89. Er lítil bara 165 cm...... segi ekki til þyngdar.
90. Elska vatn
91. Þoli ekki fólk sem er hrokafullt og dónalegt......
92. .......og latt ég er nefnilega talin vera frekar ofvirk gella ;o)
93. Ég drekk rosalega mikið af Trópí
94. Elska að elda
95. Rændi stráhatti sem á stóð: Guinness ..... einhvað
96. Get ekki beðið eftir sumrinu, góðum degi, grilli, útilegum, vinnunni og DJAMMI
97. Er leyndardómsfull persóna og tjái ekki tilfinningar mínar..... það er einhvað sem verður að grenslast fyrir um.
98. Finnst þægilegast að vera í svart-hvítu sebranáttbuxunum mínum sem Rakel elskan gaf mér.
99. Besti vinur minn er bróðir minn, sama hvort þið trúið því eða ekki......
100. Hef dröslast heim af djammi með um 30 stk blöðrur..... það var á afmælinu mínu í Marbella á Spáni.
101. Ég er mikið jólabarn,
102. Langar til að eignast börn í framtíðinni
103. Vera hamingjusöm og lífsglöð eins og ég er núna
104. Er brosmild
105. Aurapúki af lífi og sál
106. Hata sögu..... ekkert leiðinlegra en íslendingasögurnar eins og Laxdæla og Gíslasaga Súrssonar.
107. Er dómhörð..... en gef öllum séns!!
108. Elska íslenskar myndir á borð við Sódómu, Stellu í orlofi og Með allt á hreinu.
109. Hef aldrei komið til Bandaríkjanna...... stefni samt á það í komandi framtíð!
110. Ég er næturhrafn og snooza á hverjum morgni ca. 4 sinnum
111. Hef ferðast til Danmerkur, Svíþjóðar, Spánar, Englands, Frakklands, Grikklands og Skotlands
112. Stefni á Bandaríkin og Asíu.... hef alltaf langað til Kína.
113. Ég er mjög svo hrifin af Íslandi og stolt af því að vera Íslendingur.
114. Langar að búa tímabundið erlendis í framtíðinni..... en enda hér heima
115. Ætla að enda þessa þvælu..... búin að koma með nógu mikið af persónulegum upplýsinum,
116. segi því bara......
117. ...........ég er bara eins og ér er!!!!

Nokkrar SNILLDAR staðreyndir
1. Fiðrildi geta bragðað með fótunum.
3. Á tíu mínútum leysir fellibylur meiri orku en er öllum kjarnorkuvopnum í heiminum samanlagt.
4. Að meðaltali kafna 100 manns á kúlupennum árlega.
5. Að meðaltali er fólk hræddara við köngulær en dauðan.
6. 90% af leigubílunum er ekið af nýkomnum innflytjendum.
7. 35% af fólki sem notar persónuauglýsingar í dagblöðum fyrir stefnumót eru gift.
8. Fílar eru einu dýrin sem geta ekki hoppað.
9. Aðeins 1 af hverjum 2 milljörðum munu lifa til 116 ára aldurs.
10. Það er mögulegt að leiða kýr upp stiga en ekki niður.
11. Konur blikka augunum næstum tvöfalt oftar en karlar.
12. Það er líkamlega ómögulegt að sleikja olnbogan á sjálfum sér.
13. Snigill getur sofið í 3 ár.
14. Ekkert orð í ensku rímar við "month".
15. Augun á okkur eru alltaf jafn stór frá fæðingu, ! en nefið og eyrun hætta aldrei að vaxa.
16. Allir snjóbirnir eru örvhentir.
18. Augun í strútum eru stærri en heilinn í þeim.
19. TYPEWRITER er lengsta orðið sem hægt er að skrifa með aðeins einni röð á lyklaborðinu.
20. Krókódílar geta ekki rekið tunguna út.
21. Sígarettukveikjarinn var fundinn upp á undan eldspýtunum.
22. Ameríkanar borða að meðaltali 18 ekrur af pizzu hvern einasta dag.
23. Næstum allir sem lesa þetta bréf munu reyna að sleikja á sér olnbogan.

Þú reyndir að sleikja á þér olnbogan, er það ekki?

sunnudagur, apríl 11, 2004

SMÁ PÆLING.....hvernig væri lífið svona?

Svona væri lífið ef það væri eins og í bíomyndunum

1) Ef ég ákveddi að flytja úr landa þá myndi maður drauma minna elta mig alltaf út á flugvöll og játa mér ást sína.... strákar ég fer bæði út 17.maí og 22.júlí :o)
2) Ég gæti verið í háum hælum allan daginn – og jafnvel fram á kvöld.
3) Og gæti hlaupið eins og hind um götur og stræti ef á mig væri ráðist..... sleppið því bara að berja mig ha.... ég get hlaupið!!
4) Jafnvel mestu ræflar og rónar væru samt ótrúlega sætir...... þetta er nú nánast satt hér heima líka.... eða er það bara ég???
5) Jafnvel þó ég væri á glötuðum launum ætti ég samt ÆÐISLEGA íbúð á besta stað í bænum.... pant vera í bíómynd
6) Ef ég lenti í slysi – þá væri læknirinn brjálæðislega myndarlegur og á lausu.
7) Það kæmi aldrei vandræðanleg þögn á stefnumótum.
8) Vinkonum mínum væri alveg sama þótt ég röflaði um mann sem ég þekkti ekki neitt.
9) Sama hvernig ég hagaði mér þá fyndist honum það bara sætt........ ef þetta er satt, strákar þá vantar mér KÆRASTA...... ertu til??

...... segi þá bara draumaprinsinnn óskast!!!!!

GLEÐILEGA PÁSKA OG PÁSKAEGGJAÁT

Viti menn ætli foreldrar mínir hafi ekki verið góðir og gefið mér 1.stk PÁSKAEGG NR.7 frá Nóa og Siríus, var að byrja að gæða mig á því og málshátturinn í þetta sinn var: ,,Það verður að segja svo hverja sögu sem hún gengur” skil þetta ekki alveg en held þetta sé að maður á ekki að ljúga...... veist þú ???

.....en páska ,,fríið” er búið að vera fínt...... ALLLLLTTT of lítið lært en þetttta redddast :o) held það barasta. Búin að kíkja á djammið miðvikudaginn fyrir páska og svo á röltið á föstudaginn langa með henni Hönnu minni, SVAKA fjör á miðv en ekkert spes á föstudaginn,......laust við að maður sé komin með nett ógeð á bænum og því kominn í kærkomin Drykkjubindindi.....DÖMUBINDINDI eins og sumir kalla það. Núna er bara súkkalli át og matarboð í kvöld, bara notalegheit.

..........er að horfa á söngvakeppni framhaldsskólanna og hvað er þetta??? Fannst þetta lag sem vann ekki gott, búin að sjá nokkur sem eru betri en þetta er búið og gert, ætla að horfa áfram og þykjast einhvað að læra. kíki kannski á röltið í nótt, er einhver til???
En ekki meira í bili bara GLEÐIKONA Í HÁSKA...... nei ég meina GLEÐILEGA PÁSKA ;o)

föstudagur, apríl 09, 2004

GLEÐILEGA PÁSKA...... ALLIR STÓRIR SEM SMÁIR!!!!!

Góðan og blessaðan daginn, bara komin föstudagurinn langi og mín á leið upp á Akranes á sjá litla Hreim frænda minn sem fæddist nú á gamlársdag......

...... mikið tjútt og trall á miðvikudaginn og laust við að gellan ég hafi aldrei verið jafn DRUKKIN og þennan skemmtilegan dag....

....segi bara PASS PASS FYRIR gÓÐU KVÖLDI en endilega látið mig vita ef að ég ruglaði einhvað óvenjumikið í ykkur....

.......stefnan er tekin í bæinn á röltið í kvöld, en viti menn bara DRÚ, endilegað sms-ið eða bjallið ef að ykkur langar að kíkja með.!

en bara enn og aftur GLEÐILEGA PÁSKA :O)

miðvikudagur, apríl 07, 2004

HVERSU FYNDIÐ ER AÐ VERA DRÚ UM HELGAR????

Verð nú bara að segja endalaust fyndið..... ekki nóg með að maður nær öllu RUGLINU sem fólk segir manni þá er maður allsgáður til að festa á filmu allann andsk...... :o) Já fólk má bara vara sig ég er ALLTAF með myndavél

Er að setja inn fullt af myndum frá síðastliðnum mánuði...... en hér er pistill helgarinnar!!!!!

FLÖSKUDAGUR .........flöskurnar gleymdust heima hjá mér.... byrjaði kvöldið rólega hjá Hrebbnu í dýrindis kvöldverði ásamt gellunum úr Réttó, mikið talað og mikið hlegið.... horfðum á Verzló vinna Gettu betur ;o) ógó spennandi keppni....... mér finnst Borgó þó sigurvegari keppninnar.... slógu út MR
Þaðan lá leiðin í nýju fínu íbúðina til Veru þar sem fullt af FULLU fólki..... og skundað var fljótt í bæinn...... Linda livesaver bjargaði kvöldinu og kom með mér á mega rölt...... ógó skemmtilegt það!!!! Endaði kvöldið á að skutla Kjána og félögum heim, en þeir voru búnir að ræna taflborði, rauðvínsflösku og einhverjum vibba bananalíkjör í bænum.... vil ekki vita hvernig líðan þeirra var daginn eftir!!

LAUGARDAGUR .........sofið fram eftir og bara legið í leti þar til ég mætti í vinnuna kl 18, mín ætlaði bara að vera róleg en NEI NEI get ekki sleppt djammröltinu góða skellti mér því heim til Diddu eftir vinnu eða um 01:30 og kíkti í bæinn með Rachy, J-Low, Diddz og Mary Very.......sú síðast nefnda fær heiðursverðlaunin fyrir attitude og fullllllu frekar skondnar gellur þar á ferð..... Röltið tekið þar sem pakkað var í bænum... Ari í Ögri, Prikið, Celtic, Hverfis, Sólon, Pravda, Felix, Kaffibarinn og já nánast bara allt......
Endaði á Hverfis þar sem mynd helgarinnar náðist...............sjáið þetta hér....er verið að tala um korter í 6 eða????.........frekar skondið, hitti ógrynni af SKEMMTILEGU fólki og því miður líka nokkra LEIÐÓ.........en því miður geta ekki allir verið jafn skemmtilegir og ÉG ;o) komin heim um 7eftir pylsustopp með Lindu og Veru á Select!!!

SUNNUDAGUR .........sofið ennþá meira, þar er svo Gott að sofa , kíkt í fermingu hjá litlu frænku og svo brunaði í vinnuna.... allt annað bara chill og fínerí..... góð helgi í ruglinu svona fyrir próflesturinn.... byrja í fyrramálið á fullu...

SEGI BARA TAKK FYRIR GÓÐA HELGI..... og njótið myndanna!!!!

SPURNING....... er ekki djamm í dag, miðvikudag til MIKILLAR DRYKKJU?????

þriðjudagur, apríl 06, 2004

Jói er kominn á listann hér á hliðinni. Fyrir þá sem vita ekki hver hann er..... þá er hann einn af afkvæmabandinu og bróðir Siggu vinkonu..... Endilega kíkið á ruglið í honum

mánudagur, apríl 05, 2004

SJÁIÐI HVER ER KOMIN Á BLOGGLISTANN MINN????

Já það er enginn annar en hún Linda Hlín vinkona..... endilega kíkið á bloggið hennar og fylgist með lífi ungrar stúlku..... sem NOTA BENE bjó í sömu íbúð og Litháinn sem fannst í höfninni á Morðfirði dó í........... já hún er spennandi þessi gella.

föstudagur, apríl 02, 2004

Hva..... er ekki tjútt á fólki í kvöld???

Spá og spegulerun.......ER EKKI DJAMMMMM í kvöld???

Endilega látið mig vita ég verð sko í gírnum!

BARA KOMIÐ PÁSKAFRÍ..... ;O)

Í tilefni að því að ég sé komin í páskafrí vil ég nýta tímann og óska eftirfarandi aðilum til hamingju:

**** Tinna til hamingju með fallega nafni sem pabbi þinn og mamma gáfu þér. Haddi og Hödd til hamingu.

*** Benný innilega til hamingju með afmælið í gær.....ég veit að þú ert ekki aprílgabb ;o)

** Ég congratulation að vera búin í verkefnavinnu og komin í páskafrí.

* Vera til lukku með nýju fínu íbúðina ykkar í blómabænum.

** Hrebbna til hamingju...... þú lést til skara skríða og hættir þér ´út í að bjóða okkur í saumaklúbb... Ég myndi vara mig...... RÉTTÓ GELLURNAR = HÁVAÐI

*** Eva Ösp ... C O N G R.... að hafa náð að eyða jafn miklum pening á VISA og þér tókst!!!!

****og bara að lokum...........er einhvað DJAMM á fólki um helgina eins og góðum FLÖSKUDEGI SÆMIR ??????