Girlfriends.....PÆLINGAR
I'm only as strong as the cocktails I drink, the hairspray I use, and the girlfriends I have. Here's to you! Why do we only have parties for each other when one of us gets married, pregnant, has a birthday, or retires? What would most of us do without our sisters, confidants, and shopping, lunching and travelling girlfriends? Let's celebrate each other for each other's sake! Pass this on to your girlfriends! If you get this twice or more, you are lucky to have more than one girlfriend. Be happy!
Someone will always be prettier.
They will always be smarter.
Their house will be bigger.
They will drive a better car.
Their children will do better in school.
And their husband will fix more things around the house.
So let it go,
and love you and your circumstances.
Think about it.
The prettiest woman in the world can have hell in her heart.
And the most highly favoured
woman on your job may be unable to have children.
And the richest woman you know,
she's got the car, the house, the clothes....might be lonely.
And the word says if "I have not Love, I am nothing."
So, again, love you.
Love who you are.
Look in the mirror in the morning and smile and say
"I am too blessed to be stressed and too anointed to be disappointed!"
"Winners make things happen.
Losers let things happen."
Be Blessed ladies and pass this on to encourage another woman.
"To the world you might be one person,
but to one person you just might be the world".
föstudagur, mars 11, 2005
þriðjudagur, mars 08, 2005
what a DAY!!!
Hreint út sagt EKKI GÓÐUR..... ekki nóg með að ég svaf yfir mig, fékk hraðasekt hjá löggunni þá þurfti ég líka að fara til tannlæknis.
Birt af Sella kl. 11:42 e.h. 0 ummæli
mánudagur, mars 07, 2005
úllllaaa laaa úl la la
Árshátíðin á föstudaginn var MEIRA EN SKEMMTILEG . Þorsteinn Guðmundsson var veislustjóri og ekkert smá fyndin. Ég kúkaði næstum í buxurnar af stressssi fyrir einhverri opnunarræðu sem ég hélt!!! Það reddaðist og ég er rosalega fegin að það var mikið af skemmtiatriðum þannig að fólk gleymdi herlegheitunum mínum :o)
Tradition var með snilldar árshátíðaratriði, strákarnir fá hrós fyrir hárkollurnar, spurningarnar og já bara ALLTTT.
Refill spilaði fyrir dansi og já…… ó mæ hvað var dansað. Bandið hans Dodda fær stóran + fyrir ótrúlega skemmtó ball, er enn með harðsperrur í löppunum.
Tók harkalega á því í áfenginu, Mágus blæddi drykk á liðið og Ágúst Einarsson rektorsframbjóðandi bauð okkur upp á fordrykk og hélt líka þessa fínu ræðu. KJÓSIÐ HANN!!!
Bærinn tekinn á þetta eftir Hótel Sögu, Hvebbinn heimsóttur eins og svo oft áður. Þvílík gleði, æðislegt að hitta þig Ragnheiður….. surprise á klakanum. Fastir liðir eins og vanalega, kíkt og böggað brósa á Prikinu.
Laugardagurinn ógurlegi einkenndist af mjög móðukenndu andrúmslofti fram eftir degi, enda ÞYNNKAN Í HÁMARKI. Var að vinna á bókó upp í Perlu. Endilega kíkið á mig, er að vinna alla vikuna. Opið 10-18
Það þarf ekki að tala mig lengi til að djamma þannig að THE PEPPERS hittust í frönsku kvöldi, elduðum crépes og sötruðum vín. Fórum í snilldarleiki og já hegðuðum okkur eins og sannar piparjónkur. Tulla heiðursgestur þetta kvöld enda búin að húkka brósa upp í nokkuð mörg ár.
Bærinn mældur út eins og vanalega, ekki mikið búið að breytast síðan kvöldið áður. Prikið, Ari, Hverfis, Celtic og Prikið heimsótt að vanda. Mikil stuð og “tengdasonur Íslands” og Viddi í GÍRNUM….. flestum til mikillar gleði. Þreytan sagði þó til sín um 4 og ég og Heiða ákváðum að skríða heim á leið….
…..Eitthvað sem aðrir hefðu átt að gera. Bókamarkaðurinn mjög fínn hjá mér í dag en Sigga frekar ,,tussuleg” en þó hress, já óvenjuhress miðað við gleði laugardagsins.
ALLIR SEM HITTU MIG ÞESSA HELGI, TAKK ÆÐISLEGA FYRR FRÁBÆRA HELGI….. myndirnar koma inn, innan tíðar
föstudagur, mars 04, 2005
17 TÍMAR Í FORDRYKKINN.....
Já það er að koma að því, árshátíð Mágusar er að skella á. Stemningin góð og seinast þegar ég vissi var búið að selja 120 miða!!! Sem telst ágætt ;o)
Allir að mæta, því:
- ég verð í nýjum fínum kjól
- held ræðu, sem er ekki tilbúin enn
- það verður ógeðslega gaman
- góður matur, gott fólk
- ný lituð og plokkuð
- með gervineglur = TAKK VERA MÍN
- og síðast en ekki síðst
- ÞAÐ VERÐUR ÓTRÚLEGA GAMAN
Líf mitt gengur annars vanagang. Er að bíða eftir undirskrift skorarformanns svo ég geti klárað Erasmus umsókn mína til Barcelona í haust.Ætlar þú að heimsækja mig? Bókamarkaðsvinnan á fullu.... úthringingar fyrir Ágúst Einarsson, rektorskjör næsta fimmtudag kl 9-18 í Aðalbyggingu og Háskólabíó.
En ekki meira hér, helgin pökkuð af skemmtó hlutum, myndavélin komin í hleðslu og franska lúkkið geymt fyrir framska kveðjupartýið á laugardag.
Fegurðarblundurinn bíður
Sella sumarsól ;o)
miðvikudagur, mars 02, 2005
ÉG ER ENN Á LÍFI....
....en veit ekki hvað snýr upp né niður í hugarheimi mínum þessa dagana, hvort sem það er í karlamálum, skóla- eða vinnumálum eða bara HEIMSMÁLUM!!
Get varla andað af verkefnum og bjóst við því í dag að líf mitt myndist leggjast í dvala undan áreitinu og álaginu. En ég er sterk.... vona ég og tóri. Margt mjög skemmtilegt að gerast í lífinu og vegna þess eru allar heilaSELLUR uppgufaðar eftir drykkju helgarinnar.
Bókamarkaðsvinnan byrjum með yndislegu fólki og nóg að gera í bókarykinu. Kósí það, skóli, verkefnaskil, vinna, Mágusartíðindi, rektorskjör, meiri vinna, próf, skóli, og síðast en ekki síðst Árshátíð Mágusar á föstudag
......og ég á ekki kjól til að vera í HHHHHHJJJJJJJJJÁÁÁÁÁÁÁÁÁLLLLLLLPPPPP, á einhver af ykkur kjól til að lána mér, svo ég sé nú mannssæmandi þegar ég flyt ræðu á kvöldinu sjálfu!!
Lifið heil og meira bútar úr lífi "Sesselja steinselju" koma innan tíðar ;o)
mánudagur, febrúar 28, 2005
ENN EIN HELGIN BÚIN…… og ótrúlegt ég er þunn á sunnudegi!!
BJÓRVISSUFERÐIN á föstudaginn var snilld….. og ég er viss um að enginn hafi orðið fyrir vonbrigðum enda sulluðum við í öllum tegundum af áfengi……
-bjór – cider – bjór – staup – bjór – staup – ávaxtabjór – meiri bjór og enn meiri bjór.
Ástandið var líka eftir þessu þegar við vorum búin að taka rúntinn í rútunni í 2 tíma.... Ingó takk fyrir sætið ;)
Skelltum okkur á Hverfis drukkum meiri bjór og smelltum í okkur Domino’s pizzur. Við tók tjúttið og minnið eftir því. Til að lýsa kvöldinu má segja, GLEÐI, týndi reyndar jakkanum mínum og veski en viti menn Stebbi ljúflingur tók töskuna mina (gott að einhver hugsar fyrir mann) og Villi endaði með því að fara heim í öfugum kvenmannsleðurjakka af MÉR…..bara skondið
INNFLUTNINGSPARTÝ hjá brósa og Tullu með bollu, bjór og tilheyrandi. Þynnkan sagði vel til sín en Elli bjargaði mér þó alveg með afréttaranum á Hverfis klukkan 16. Fór í skemmtilegasta leik sem ég hef farið í….. sjaldan grátið í orðsins fylstu merkingu úr hlátri, yfir leikþætti með bangsa. Partýið leystist upp í vitleysu og á tímabili voru 4 karlmenn berir að ofan í SADÓ MASÓ með leðurbelti…… ótrúleg sjón. Prikið, Ari í Ögri og Hverfis mæld út og tjúttið tekið rækilega á Prikinu.
NÁMSKYNNING Í HÁSKÓLANUM, já læt plata mig í allt, Seinnipartur dags fór í að kynna viðskipta- og hagfræðideild HÍ fyrir fullt af hressum (vonandi) samnemendum á næsta ári. Ótrúlega erum við góðir sölumenn krakkarnir ;o)
En ekki meira í bili, ætla að horfa á ÓSKARINN….. have fun!!!!!!
föstudagur, febrúar 25, 2005
JÁ ÞIÐ MEGIÐ......
Óska mér til hamingju með það að vera "oficially" hætt að vinna í Aktu Taktu. Seinasta vaktin var í gær. Fékk meira að segja köku, gott að fólk samgleðst mér. Vinnan endaði þó ekki fyrr en klukkan 4 í nótt eftir mjög langt spjall og bíltúr með henni Brynju mín. TAKK.
Tók daginn snemma enda mikill dagur.... Flöskudagur og í dag bjórvissuferð bendir allt til þess að dagurinn verði góður.
Allt að gerast, myndataka, NESU fundur, Erasmus fundur og já.... eintóm hamingja. Góða skemmtun um helgina og sjáumst hress, ekkert stress
Sella sólargeisli ;o)
Birt af Sella kl. 12:52 e.h. 0 ummæli
miðvikudagur, febrúar 23, 2005
þriðjudagur, febrúar 22, 2005
ALLT AÐ GERA SIG…..
Enn ein helgin búin og ekki hægt að segja annað en að hún hafi flogið framhjá mér!!!! Stórskemmtilegt þar sem flöskudagur var tekin með trompi í skólanum og verkefnum. Trompið var stutt þar sem ég ákvað að fara að eyða peningum með mömmu í Smáralind og trúið mér það tókst bara assskkooooo…. vel. Vísindaferð í Egils var raunin kl 17:00 þar sem við brunuðum í eina skemmtilegustu vísindaferð vetrarins. Stutt og laggóð kynning, verksmiðjan skoðuð, myndband sýnt og svo flæddu bara bjórkútarnir ofan í okkur ;o) Ljúft líf, skelltum okkur á Hverfis og kíktu á Idolið. Síðan tókum við nett rölt á Ara til að kíkja á Benný fyllibyttu….. TAKK BENNÝ, þú varst snilld. Stutt og lag gott stopp í bænum, Hlölli og svo heim, Tinna náði í mig og Hönnu í bæinn…. Heimkoma rosalega fljótt.
Laugardagurinn var tekin snemma, en of seint þó!!! Svaf yfir mig í vinnunni og mætti því kl. 09:10. Allt klikkað að gera í vinnunni, hef ekki séð annað eins. Fegin að vera að hætta á fimmtudag miðað við geðveikina. Eftir vinnuna var brunað í djammgallann og stefnan tekin til Siggusín í 25 ára afmæli. Sá sætustu hvolpa í veröldinni….Rosa stuð þar, allt flæðandi í kræsingum og ekki var verra að taka magnaða drykkjuleikinn sem ég og Gústi stóðum okkur rosalega vel. Jóhanna Ruth fær + í kladdann fyrir að æla í ruslapokann ;o)
Bærinn tekinn, ótrúlega troðið en samt gífurlegt stuð. Undur og stórmerki, Haddi var að djamma, hittum hann hressan á Ara, smyglaðist svo inn á Prikið og hleypti svo 6 vinum bakvið…. góð vinkona. Ákvað samt að stoppa stutt og rölta á Hverfis með Hönnu. Magnað kvöld, Stebbi, Addi, Dagný, Magga, Sara og fleiri í of góðum gír. Tók röltið um 6 og ætluðum í partý til Hinna, en óheppnar hann sofandi. Ákvað þá bara að rölta heim á leið með Brendan og viti menn, tók svo leigara hjá Select í Öskjuhlíðinni, þakka guði fyrir að hafa fundi Ella þar og fengið far!
Sunnudagurinn tekinn í þynnku og svo líka þessu rólega kvöldi í vinnunni. Óhætt að segja að ég noti sunnudagana sem heilaga hvíldardaga.
En ekki meira um mig í bili, ekkert stress, veriði bless!!!
Jú annars, með hnút í mallakút er að fara til Maríu miðils í Keflavík á morgun :o$
mánudagur, febrúar 21, 2005
Ég þoli ekki...
* Þegar maður er alveg að fara að hnerra en svo fer hnerrið.
* Gamalt fólk í umferðinni.
* Þegar maður kannast ýkt mikið við eitthvern en veit ekki hvaðan.
* Þegar kennarar þurrka ekki nógu vel af töflunni.
* Marbletti.
* Þegar að maður er nýbúin að naglalakka sig og rekur sig í eittthvað.
* Þegar maður rekur vitlausa beinið í eitthvað.
* Kennara og yfirmannasleikjur.
* Þá sem pissa út fyrir.
* Þegar það er skellt á um leið og maður svarar.
* þegar rétta stærðin er ekki til í búðinni.
* þegar mjólkin er búin og mann langar geðveikt í Cocoa Puffs.
* Að fá leiðinlegt lag á heilann.
* þegar konan á undan manni í röðinni er með vont ilmvatn.
* þegar fólk er að reyna að syngja með en kann ekki textann og bullar bara eitthvað.
* Auglýsingar í miðjum sjónvarpsþáttum.
* þegar prentarinn bilar og maður á að skila ritgerð á morgun.
* Miðar innaná fötunum sem pirra mann.
* Hælsæri.
* þegar einhver heilsar þér sem þú veist ekki hver er.
* þegar afgreiðslufólk vigtar eða telur oní blandí poka.
* þegar fólk svarar ekki e-maili.
* þegar video upptakan klikkar.
* þegar maður gleymir að skila videospólunni.
* þegar einhver kófsveittur rekur sig í mann.
* Hlaupasting.
* þegar maður nær ekki að klóra sér á bakinu þar sem mann klæjar geðveikt.
* Þegar maður sest á klósettið og fattar að það er ekki til neinn klósettpappír.
* Skattskýrslur.
* Þegar einhver stór sest fyrir framan mann í bíó.
* Fólk sem fær 9 og 10 í öllu en þarf aldrei að læra.
* Einbreiðar brýr.
* Kynþáttahatur.
* Hausverk.
* Þegar maður reimar annan skóinn fastar en hinn.
* Lausar reimar.
* Þegar maður vinnur veðmál en félaginn neitar að borga.
* Að það meigi ekki segja ristavél í staðinn fyrir brauðrist. (Ristatæki?)
* Að íslendingar nenna aldrei að mótmæla almennilega.
* Baktal.
* Rauð jól.
* þegar að það er ekki sturtað niður.
* Hár í mat.
* þegar að maður er búin að gera verkefnið heima fyrir skólann og gleymir því í alvörunni heima.
* þegar gatamappan opnast og öll blöðin detta út.
* þegar að fólk talar ekki um annað en sig sjálft.
* Snobb.
* Fólk sem spyr of mikið.
* Fólk sem smjattar.
* Líffræðikennara sem þora ekki að segja typpi.
* Kul í tennurnar og í heilann þegar að maður borðar ís.
* Illa uppsettar jólaseríur.
* þegar maður getur ekki ropað.
* þegar beyglan kemst ekki í ristina.
* þegar maður man ekki brandara.
* Fólk sem tuðar yfir öllu.. hehe..
Rakst á þetta og svei mér þá ef það er ekki einhvað til í þessu :o)
föstudagur, febrúar 18, 2005
FOKK FOKK FOKK, SHITTEDÍ FOKK.....
Af hverju drullast maður ekki til að læra jafnt og þétt yfir önnina. Núna var ég að enda við að fá vægt ógeð af digtafón eftir að hafa pikkað inn 3 viðtalið mitt á einni viku. OJOJOJOJO OOJJJJJJ
Próf og ritgerðaskil á morgun, ekki búin að læra neitt og ekki byrjuð á ritgerðinni, um að gera að grafa upp hvolpalúkkið og sleikja eitt stykki spænskukennara upp svo maður þurfi ekki að segja sig úr faginu :o(
Kveðja frá einni pirraðri og já mjög PIRRAÐRI
PS. klukkan er 05:55 og ég á að vera löngu sofnuð!!!!!!
fimmtudagur, febrúar 17, 2005
Vinna eða fangelsi?
Í FANGELSI fær maður 3 fríar máltíðir á dag.
Í VINNUNNI fær maður pásu fyrir 1 máltíð-sem maður þarf að borga sjálfur
Í FANGELSI fær maður að fara fyrr út fyrir góða hegðun.
Í VINNUNNI fær maður meiri VINNU fyrir góða hegðun.
Í FANGELSI er maður sem opnar og lokar öllum hurðum fyrir mann Í
VINNUNNI þarftu að gera það sjálfur
Í FANGELSI má maður horfa á sjónvarpið og verið í tölvunni. Í
Í VINNUNNI þú verður rekinn.
Í FANGELSI fær maður sitt eigið klósett
Í VINNUNNI þarf maður að deila með öðrum
Í FANGELSI mega vinir og vandamenn koma í heimsókn
Í VINNUNNI ekki sjéns í helvíti.
Í FANGELSI borga skattgreiðendur allt fyrir þig
Í VINNUNNI Þarftu í fyrsta lagi að borga til að koma þér í vinnuna,
og svo er tekið 40% af þér í skatt....til þess að borga fyrir fangana
Fangaklefi er að meðali 2-4 fermetrum stærri en meðal skrifstofa á Íslandi!!
Nú er bara að velja!!
miðvikudagur, febrúar 16, 2005
Eitthvað til að hugsa um
Smá pæling..
10% kvenna hafa haft samfarir áður en klukkustund var liðin af fyrsta stefnumótinu
20% karla hafa haft samfarir á óvenjulegum stöðum
36% kvenna finnst nekt vera í lagi
45% kvenna vilja dökkhærða karlmenn með blá augu
46% kvenna hafa prófað endaþarmsmök
70% kvenna vilja frekar hafa samfarir á morgnana
80% karla hafa aldrei upplifað samkynhneigð sambönd
90% kvenna myndu vilja hafa samfarir úti í skógi
99% kvenna hafa aldrei upplifað kynlíf á skrifstofunni
Niðurstaða:
Tölfræðilega séð áttu betri möguleika á endaþarmsmökum að
morgni til með ókunnugri konu úti í skógi, heldur en á skrifstofunni í lok dags.
Hvað má læra af þessu?
Hættu að vinna frameftir, þú græðir ekkert á því...
HELGIN FLOGIN Á BROTT
Já ótrúlegt hvað þessi tími líður ógeðslega HRATT, bráðum verðum maður ráðsettur einstaklingur, með íbúð, bíl, börn og buru…… ætla að vona það allavegana.
Helgin var einstaklega vel heppnuð í alla staði, margt brallað og enn meira gert.
Fimmtudagur
Kosningabaráttan í fyrirrúmi, bjórdrykkja og ölvun á Kosningavöku Vöku, þar sem Hjálmar skemmtu og verð bara að segja þeir eru asssskoti góðir. Lige glad stund með félögunum.
Föstudagur
Byrjaði frekar seint eftir þynnku hjá mér og Benný og því tilvalið að heimsækja heimaslóðir Bennýjar Nonnabita. Skellti mér svo upp í skóla, eldaði, horfði á Idolið….. alvega magnað, fannst eins og Helgi væri viljandi að syngja sig út úr keppninni.
Hvaða heilvita karlmaður tekur Coyote Ugly sungið af kántrístelpu ???
Eftir Idolið kíkti ég á hvítvíns og bjórsötrandi skvísurnar til Veru og þaðan í bæinn. Röltið tekið að vanda á Vegamót, Kofann, Hverfis, Celtic, Prikið. Bílandi fyrir rugludallana til tilbreytingar.
Laugardagur
Magnaður dagur þar sem lærdómurinn var massaður fyrri partinn en við tók svo gleði, JÁ GLEÐI um kvöldið. Famelían mætti í þorrablót heim um kvöldið þar sem þema var þjóðþekktur íslendingur og því allir í búning.
Ég tók mig vel út sem Birgitta Haukdal en svo voru mættir: Hera – Erpur – Björk – Björgólfur – Ingibjörg Sólrún – Davíð Odds – Steingrímur Herm – Eiríkur Fjalar – Magnús og Eyjólfur - Hurðaskellir – Bárður og Birta í Stundinni okkar, Grétar og Vaidas auk fleirri skemmtilegra aðila. Eftir þvílíkt stuð skellti ég mér í bæinn að hitta Heimdellinga og gellurnar því ég missti af matarboði, 3* afmæli fyrir grímugleðina. Ég og Stella tókum svo röltið að vanda í nýstingskulda og trekkingi. Ölstofan, Celtic, Ari, Prikið, Hverfis skoðað vel og vandlega en kuldaboli sagði til sín þannig að ég, Hanna og Stella tókum stutt stopp á Hlölla og svo heim ;o) Það magnaða við þetta var að þorrablótið var enn í fullugangi við heimkomu kl 5:00 og entist fram eftir morgni.
Ómæld gleði og hamingja og skemmtilegir tímar framundan
PS Vera ég lofa nýjum og skemmtilegum myndum á næstu dögum ;o)
mánudagur, febrúar 14, 2005
MSN VÍRUS..... VARÚÐ
* Vildi bara vekja athygli á því að ekki svara vinum/vandamönnum ef þeir senda ykkur www.78p.com því þetta er vírus var áðan að fá vírus í gegnum MSN-ið með þvi að tala við Sigrúnu vinkonu.
** PASSIÐ YKKUR ROSA VEL ;O)
Birt af Sella kl. 12:17 e.h. 0 ummæli
HAPPY VALENTINESDAY.....
Já þvílík gleði elskenda og bladi bla, verð nú að segja að mér finnst valentínusardagurinn ofmetinn dagur. Þetta er ósköp venjulegur dagur. Allavegana hef ég ekki fengið blóm, rómantíska gönguferð, konfekt eða einhver ástríkt valentínusarkort sama þótt ég hafi verið í sambandi eða ekki.
Þessi dagur snýst um gjafir, rómantík og þá helst tilbreytingar í sambandi og kynlíf. Því bíð ég spennt eftir því að sjá hver er svo ástríkur og æðislegur að senda mér/gefa mér:
* Bókina Súpersex
**skemmtileg leiktæki
*** æsandi undirfatnað
**** rómantíska ferð á veitingahús
***súkkulaði eða blómvönd
**krúttilegan bangsa
* nuddolíu
Eða síðast og ALLS EKKI SÍST, ást og viðringu.
Munið að þeir hlutir sem ástin þarf til að ná að blómstra er tími, styrkur, heiðarleiki, örlæti, heppni og húmor. Með þessu öllu gætum við hoppað saman í skýjunum og rennt okkur HAPPY niður regnbogann.
Njótið dagsins og munið bara I LOVE YOU ALL ;) væmið en satt
sunnudagur, febrúar 13, 2005
STAÐREYNDIR UM KARLMENN.... varð að stela þessu af síðunni hjá Sæunni SNILLLLLLLDDDDD
1.HVERS VEGNA ERU KARLMENN GÁFAÐARI MEÐAN ÞEIR HAFA MÖK?
(vegna þess að þeir eru tengdir við snilling!)
2.HVERS VEGNA BLIKKA KONUR EKKI AUGUNUM MEÐAN ÞÆR HAFA MÖK? (þær hafa einfaldlega ekki tíma!)
3.HVERS VEGNA ÞARF MILLJÓNIR SÆÐISFRUMA TIL AÐ FRJÓVGA EGG?
(þær stoppa ekki til að spyrja vegar)
4.HVERS VEGNA HRJÓTA KARLMENN ÞEGAR ÞEIR LIGGJA Á BAKINU? (pungurinn fellur yfir rassgatið og stöðvar gegnumtrekkinn)
Þið eruð farnar að brosa núna stelpur, er það ekki? ;o)
5.HVERS VEGNA FENGU KARLMENN STÆRRI HEILA EN HUNDAR?
(annars væru þeir riðlandi á fótleggjum kvenna í kokteilboðum)
6.HVERS VEGNA SKAPAÐI GUÐ MANNINN Á UNDAN KONUNNI?
(þú þarft jú gróft uppkast áður en þú gerir lokaútgáfuna)
7.HVE MARGA KARLMENN ÞARF TIL AÐ SETJA KLÓSETTSETUNA NIÐUR? (hmm, veit ekki.....það hefur ekki gerst ennþá)
Einn góður í lokin...
8.HVERS VEGNA SETTI GUÐ KARLMANNINN Á JÖRÐINA?
(vegna þess að titrari slær ekki garðinn)
föstudagur, febrúar 11, 2005
Ótrúlegt en satt.... bara þunn á flöskudegi!
Já fór á þetta líka bráðskemmtilegu kosningavöku á Hressó. Upplifði í leiðinni mína fyrstu Hróaskeldu þar sem hasslyktin var umkringd Reggiehljómsveitina Hjálmar sem var að spila. Þvílíkt chilluð stemnning og bjórinn og skotin teiguð af hörku.... Þegar líða tók á kvöldið bitust Breeeezerar á borðum.
Stór skemmtilegt kvöld þó úrslitin hafa ekki farið eins og maður vildi. Þó fóru svona:
Vaka fékk 46,6% atkvæða í kosningunum til Stúdentaráðs sem fram fóru í gær og fyrradag og hlaut því langmest fylgi af þeim fjórum fylkingum sem buðu fram í ár. Röskva fékk 37,9% atkvæða og Háskólalistinn 12,5%. Fékk Vaka alls 1542 atkvæði í kosningunum, Röskva 1253 atkvæði, Háskólalistinn 414 atkvæði og Alþýðulistinn 100 atkvæði. Fulltrúar í Stúdentaráði skiptast hins vegar þannig að Vaka og Röskva hljóta bæði 4 menn og Háskólalistinn 1 mann. Alþýðulistinn náði ekki inn manni.
Endaði kvöldið með því að fara upp á kosningamiðstöð Röskvu og óska þeim til hamingju og heilsa upp á liði. Teamið okkar ég, Birkir, Ari, Jói Run og fleiri góðir kandidatar skemmtum okkur rosalega vel!!!
fimmtudagur, febrúar 10, 2005
Ohhhh happy day ;o)
Það er svo skemmtilegt í dag kosningabaráttan á fullu og viti menn ég sit í tíma í Gagnrýnni hugsun til að finna ákveðin atkvæði.
Stefnir allt í bjórdrykkjur og reggie tónlist og vegna þess að þetta er svo góður dagur langar mig að....
óska Helgu Sjöfn til hamingju með 24 ára afmælið í dag.... Njóttu hans
** ÉG skal drekka bjór fyrir þig, ekkert mál :o)
NÚ ER GAMAN....
* ég er í ESSINU mínu núna, kosningar í dag og
*** Kosningavaka VÖKU á Hressó í kvöld þar sem bjórinn verður í boði og geysiskemmtilega hljómsveitin Hjálmar spilar.
** Spurning að skippa flöskudagsdjammi og kíkja á röltið í kvöld....
** ert þú til??
Birt af Sella kl. 11:26 f.h. 0 ummæli
miðvikudagur, febrúar 09, 2005
Búin að gleyma hvað er gaman að vera rafmagnslaus
.....Aðallega þegar rafmagnið fer af í vinnunni í 40 mínútur á matartíma, og ekki verra að AÐ VERA Á LAUNUM ;O)
Annars ekkert að frétta nema minni fólk á að kjósa Vöku X-A á morgun og fimmtudag, endalaust að gera í skólanum, Mágusartíðindi mjakast áfram, árshátíðarundirbúningur í fyrirrúmi OG
KOSNINGAVAKA Á FIMMTUDAG Á HRESSÓ bara gaman!!!!
mánudagur, febrúar 07, 2005
IMPORTANT PEOPLE Á SUBWAY....
Já viti menn skellti mér á Subbarann með Hönnu áðan og ekki nóg með að við værum þar, voru þá ekki bara Páll Óskar og Ágúst Einarsson rektorsefni á staðnum líka.... merkilegt hvað fræga fólið eltir mann!!!!
Birt af Sella kl. 11:53 e.h. 0 ummæli
GLEÐILEGAN BOLLUDAG.....
....bolla bolla bolla, 37 dagar búnir af árinu og ótrúlega margt búið að gerast. Margir búnir að eiga afmæli og vil ég óska Telma, Ásta María, Guðbjörg, Anný og Þórir innilega til hamingju með afmælið í vikunni.
** Helgin einkenndist af: djammi - pool - drykkju - idol - hressó - partýi - pizzu - vinnu - prikinu - bjór - hverfis - djammi - myndum - X-A - söng - breezer - vinnu - meiri drykkju - rugli - gleði - hressó og meiri gleði!!!! Ótrúlega skemmtileg helgi hér á ferð.
Vil þakka Gyðu gestgjafa fyrir frábærar veitingar og stelpunum fyrir skemmtilegt spjall í saumó áðan!!! Hlakka til næsta dj-amms ;o)
föstudagur, febrúar 04, 2005
JÁ HVAÐ ER AÐ SKE, SKE, SKE????
Mikið búið að vera að gera seinustu vikuna, held ég drukkni bráðum í verkefnum.... en bara gaman ;)
Skólinn - Verkefnavinna á fullu, heimildaritgerð um freyðivín í spænsku, grein um spænskamatarmenningu, markaðsáætlun fyrir Nathan&Olsen, verkefni í Vöruþróun, lærdómur, fyrirlestrar og dæmatímar..... og svo bara reynt að lifa lífinu í kosningabaráttunni hér x-vaka
Vinnan - Já allt að gerast þar, bara 10 vaktir eftir og svo ér ég hætt! Vinnuhelgi, starfsmannafundir, rekstrarstjórafundir og ég veit ekki hvað og hvað.
Félagslífið - Stærsti parturinn í lífi mínu. Búin að skipuleggja eina árshátíð, farin að skipuleggja aðra Mágusar þann 4.mars, erum að búa til skólablað, undirbúa kynningarbækling fyrir Viðskipta-og hagfræðideild, stússast í kosningadótinu kosið 9.og 10 feb... að sjálfsögðu VÖKU.
Svo er líka þetta magnaða POOLMÓT Á PLAYERS í kvöld..... fljótandi veigar í boði og eintóm hamingja. Búnar að redda líka þessum fínu vinningum, endilega kíkið með mér.....
Ekki meira í bili, veriði bless, ekkert STRESS
SELLA sólargeisli ;o)
miðvikudagur, febrúar 02, 2005
Markmið lífsins eru..... 3 ára: ...... að pissa ekki í buxurnar 11 ára: ..... að eiga vini 16 ára: ...... að hafa bílpróf 20 ára: ..... að stunda kynlíf 35 ára: .... að eignast peninga 50 ára: ..... að eignast peninga 60 ára: ..... að stunda kynlíf 70 ára: ..... að hafa bílpróf 75 ára: ..... að eiga vini 80 ára: .... að pissa ekki í buxurnar Einfalt ekki satt !!!!! |
þriðjudagur, febrúar 01, 2005
MAÐUR ER UNGUR OG LEIKUR SÉR.....
Fólki til mikillar undrunar einkenndist helgin mín af glaum og gleði, dansi og drykkju. Horfði á Idolið eins og flestir Íslendingar og gaman að sjá að “gellurnar mínar” þær Heiða og Hildur Vala stóðu sig lang best......
Kíkti til Telmu þar sem Idol fílingurinn og SingStar var á fullu og hörkufjör á fólki. Var þó þæg og góð stelpa og var komin snemma í háttinn.
Laugardagurinn var svo snilldin ein. JO BRO ákvað að bjóða í þetta líka skemmtilega teiti hér í Álfalandinu þar sem bjórinn var sötraður, hvítvínið drukkið, spilað á píanó og sungið... KLIKKAR ALDREI, gítarinn var svo dreginn upp og stuðið hélt áfram þar til við stungum af í bæinn. Kíkti með Tinnu frænku á Árshátíð Aktu Taktu fundum krakkana á Celtic og Sólon.... og viti menn það var verðlaunasamkeppni í vinnunni og var ég ekki bara valin; Tuðari og Bjartasta Von Aktu Taktu Frekar skondið þar sem ég er nú búin að segja upp hjá fyrirtækinu, en aðaldið farið út í buskann vann 2 stk konfektkassa
Prikið tók svo við með þvílíku sulli.... töfrateppi, eplasnafs, Fishermans staup, bjór, breeeeezer og ég veit ekki hvað. Brósi blekaður tók dansinn ber að ofan á barborðinu.... frekar skondið. Kikt á Hverfis að vanda en Prikið heillaði meira og djammið endaði þar til kl. 07:00 þegar búið var að taka til og leigurbíllinn beið okkar.
Hvíldardagurinn ógurlegi var svo á sunnudaginn..... tók þessu bókstaflega og lá upp í rúmi til 16, horfði á imbann og skellti mér svo á Brennsluna með Benný og Jóhönnu.
Dýrindishelgi, takk fyrir mig
laugardagur, janúar 29, 2005
TIL HAMINGJU FÆRSLAN...... Vil byrja á því að óska Elísabetu innilega til hamingju með 24 ára afmælið í gær..... og Telmu til lukku með 24 ára afmælið á þriðjudaginn.....en fyrst og fremst MÍNUM ELSKULEGA BRÓÐUR innilega til hamingju að vera orðin viðskiptafræðingur!!! Útskriftin í dag og hörkustuð í kvöld..... allir þeir sem ætla að djamma, meet me down town. ;o) |
föstudagur, janúar 28, 2005
Alltaf mikið að gerast!!! Já ótrúlegt en satt, þá flýgur tíminn bara frá manni. Búin að vera í skólanum, vinnunni, undirbúa árshátíð Aktu Taktu, undirbúa Mágusartíðindi og síðast en ekki síst breyta síðunni! Fréttir vikunnar eru; Haldiði ekki að ég sé komin í vitna einhvað hjá löggunni fyrir að hafa afgreitt mann á þriðjudaginn, sem fannst svo áfengisdauður inn í bílnum sínum fyrir utan Aktu Taktu. Jónas og Tulla fengu fyrstu íbúðina sína afhenta og eru á fullu að gera allt fínt.... TIL HAMINGJU SKÖTUHJÚ Ég veiktist og er búin að vera veik síðan á miðvikudag, vonandi lagast ég fyrir helgina, Jónas er að útskrifast..........já en ekki meira í bili, hvernig líst ykkur svo á breytingarnar á síðunni minni. Látið ljós ykkar skína ;o) |
mánudagur, janúar 24, 2005
HM - HM - HM - HM Í TÚNIS...... ÞVÍLÍK GLEÐI Gleymdi að minnast á hvað það er æðislegt að horfa á handbolta. HM í Túnis er byrjað, svo sjónvarpsglápið er byrjað. Leikurinn við Tékka endaði ÆÐISLEGA..... Ótrúlegt hvað strákarnir spiluðu hræðilega fyrstu 40-45 mínúturnar og komust undir 20-29. Er það bara ég eða... klúðraði Dagur Sigurðsson meira en margur annar? Einhvað hefur maðurinn til að bera fyrirliðatitilinn.... en verð þó að segja að ekki sést það á vellinum. Eftir ótrúlega hraðan hjarslátt, væg taugaáföll við glápið, gleði og sorg, öskur og illyndi náðu strákarnir að jafna 34-34!!!! Snilldarleikur þar á ferð, hlakka til að horfa á leikina þriðjudag og miðvikudag kl 19:15. Kveðja...... sella handboltagella! |
| Pistill helgarinnar ;o)
* Vinnuhelgi ** Fínasta vísindaferð í Vífilfell *** Idol gláp og listakynning Vöku.... X-VAKA **** Sveittur og ljúfur Nonnabiti í tilefni helgarinnar ***** Heimboð til Jóhönnu Rutar, Stella Artois í hönd, Bailey´s **** Tjútt með Siggu, Veru, Jóhönnu 1 og 2, Benný og Elvu, óskalögin á fóninum *** Bærinn þræddur... Ari í Ögri, Hverfis, Celtic og Prikið, mikið drukkið, m.a ** Bjór, Breezer, meiri bjór, töfrateppi, annað staup og já fullt af vatni. * Heimkoma eftir skemmtilegt spjall á Prikinu og BSÍ stoppi kl 7:45 .... Helgin einkenndist því miður ekki af því sem ætti að vera, lofa að byrja að læra bráðlega!!! |
föstudagur, janúar 21, 2005
STÓR DAGUR Í LÍFI MÍNU...... Já fyrir þá sem ekki vita þá tókst mér að fá stöðumælasekt upp á 1500 kall í dag. Í dag er ég búin að vinna 3 ár í Bitabæ/ Aktu Taktu og í tilefni dagsins, lét ég loksins verða af því..... ÉG SAGÐI UPP HJÁ ÞESSU HEL******* FYRIRTÆKI þrefallt húrra fyrir mér..... annars gengur lífið hinn vanagang. Skólinn á fullu, vinna um helgina og vísó í Vífilfell á morgun auk þess sem ég vil minna á bóndadaginn......karlmenn innilega til hamingju með daginn!!!! Góða nótt, kveðja Sella ofurhetja ;o) |
þriðjudagur, janúar 18, 2005
Congratulation...... Sigga Já haldiði ekki bara að ástkæra og yndislega vinkona mín hún Sigga (er í miðjunni á myndinni)sé orðin BIG 25 og að því tilefni langar mig til að óska henni innilega til hamingju með afmælið. Sigga mín í leiðinni langar mig til að þakka þér fyrir allt gamalt og gott frá fyrsta degi lífs míns.... ó mæ hvað við höfum þekkst lengi. Sjáumst hressar á ,,mini" skralli á Vegó í kvöld enn og aftur til hamingju...... 25 ára skvísa |
MYNDIR, MYNDIR OG MEIRI MYNDIR.... Já ótrúlegt en satt, það eru nýjar myndir á síðunni. Endilega verið ekki hrædd og kíkið á myndirnar hér til hliðar og ekki spara sköpunargáfur ykkar á commentalistanum. Myndirnar eru frá: Magnaðri NESU ferð, þrettándagleði Heimdallar og endalausri gleði í partý Mágusar og HR seinasta föstudag. NJÓTIÐ.... þar til næst veriði bless, ekkert stress.... JÁ ÉR ER ORÐIN HRESS ;o) |
Birt af Sella kl. 12:33 f.h. 0 ummæli
mánudagur, janúar 17, 2005
Allt á uppleið..... eða vonum það!! Allar einkunnir komnar í hús og viti menn náði 5 prófum og féll í 1 :o( Má samt alveg vera MJÖG ánægð með þetta þar sem meðaleinkunn þessarar annar var 7,4. Ekki verra heldur að ég er bara að lagast öll og hætt að verða veik. Því bara eintóm gleði og hamingja..... sjáumst hress og kát sem fyrst!!! |
Golden Globe nr. 62 þvílíkt og annað eins sjónvarpsgláp Búin að vera lasin síðan á föstudag og sofið endalaust mikið síðan þá.... sólarhringurinn gjörsamlega snúinn við og því tilvalið að horfa á Golden globe í nótt. Fyrir áhugasama hrepptu eftirfarandi aðilar verðlaun: Jamie Foxx fyrir túlkun sína á Ray Charles þekkta blinda tónlistarsnillinginum Robin Williams heiðursverðlaun fyrir leikferil sinn í myndum eins og: Birdcage, Insomina, Good morning Vietnam, Good will hunting, Patch Adams og snilldarmyndina Mrs Doubtfire. Leonardo Decaprio besti leikarinn í myndinni The Aviator sem jafnframt var besta drama myndin. Besta tv serían var svo Desparate housewives. Jagger átti besta lagið í myndinni Alfie - með mega sæta gaurnum honum Jude Law. og margt annað skemmtilegt þarna á ferð....... fullt af flottu og sætu fólki eins og : Jude Law, Orlando Bloom, Halle Berry og Johnny Depp .....ómílí god hvað þau eru flott!!!!! |
kk
sunnudagur, janúar 16, 2005
Eintóm gleði á föstudaginn....... en bara veikindi núna Vísindaferð í Deliotte með félögum okkar í HR byrjaði með stæl á föstudaginn. Rosa fínt að sjá fullt af nýjum andlitum. Ótrúlegt en satt skellti ég mér á borð með HR gellum eins og Huldu og Ásu. Fínasta vísindaferð og gamanið rétt að byrja. Félagsheimilið á Seltjarnanesi tók við og verð bara að segja ÓGEÐSLEGA VAR GAMAN.. Fáránlega mikið af fólki sem maður hitti og þekkti, mikið dansað og enn meira drukkið. Mágusargellurnar stóðu sig eins og hetjur á barnum en ég varð hirðljósmyndari Mágusar og held það hafi bara tekist ágætlega vel. Mættir voru: NESU félagar með meiru, fullt af HR félögum eins og Ása, Telma, Hulda, Guðrún, Höddi og og og...... ekki gleyma HÍ fólkinu öllu, Guffi fær heiðursverðlaun fyrir að vera snilldar plötusnúður TAKK TAKK, eintóm gleði og bærinn tók við. Ofurdrykkja fram eftir nóttu og viti menn nú er mín orðið lallinn...... En í tilefni gærdagsins langar mig að óska Huldu, Rögnu og Katrínu innilega til hamingju með 24 ára afmælið í gær og vona að þær hafi notið helgarinnar.!!!! |
föstudagur, janúar 14, 2005
Ég get svo svarið það..... - Heimsótti Rakel og Helenu Ósk í gær og ó mæ god...... hvenrig er hægt að vera svona lítill og sætur. Algjör kokteill af Rachy og Hansa dökkhærð dúlla með brún augu. Pælið meira að segja í því hún er svo lítil og nett að föt nr. 50 eru of stór. - Heljarinnar partý hjá HÍ og HR á morgun, hand viss um að það verði hörkufjör. Vísindaferðin í Dielotte fylltist á methraða og spennan í loftinu er gífurleg. Vonast til að sjá sem flesta. - Var í saumó hjá versló gellunum og ótrúlegt bráðum 4 ár síðan við útskrifuðumst og erum enn að hittast....... það sem meira er það er alltaf nýtt slúður í hvert sinn. Skemmtilegt það. Ótrúlega gaman að hitta loksins allar gellurnar, það hefur ekki gerst síðan í sumar. - Skólinn byrjaður á fullu, óheppin að vera í 2 árekstrum. Svona er að vera sauður og geyma fög af 1&2 ári..... en þetta reddast. Kennarar byrjaðir á fullu að setja fyrir og enn vantar 3 einkunnir í hús..... ekki skemmtilegt það. Bíst þó við 2 á morgun, því er bara spurningin um að syrgja með mér eða gleðjast óendanlega í partýinu á morgun... PS. fyrir áhugasama eru komnar vel ritskoðaðar NESU myndir frá Finnlandi, Eistlandi og Danmörku. Leyfi þeim að tala sínu máli. Heimdallapartýis myndirnar koma um helgina (get ekki núna vegna tæknilegra örðugleika). |
þriðjudagur, janúar 11, 2005
| PARTÝ, PARTÝ, PARTÝ..... allt að gerast!!!
Já helgin var fljót að líða og mjög skemmtileg. Jólin bara fokin frá okkur og allt of langt í þau næstu. *Föstudagur* Vinnan kallaði en um fimmleytið fékk ég að hlaupa út til að redda bjórnum fyrir hið magnaða Heimdallarpartý í Valhöll. Ég og Stella fórum svo í skreytingarleiðandur, sem endaði í rugli, við misstum okkur alveg settum upp dúka, broskalladúk á veggina og blésum endalaust upp af blöðrum. Partýið var hrein snilld, ótrúlega mikið af góðu fólki þar og hljómsveitin ,,Ölvun ógildir miðann” trillti lýðinn. Við tókum svo á því í bænum. Ég, Vera, Jóhanna, Ýmir, Jói, Villi og Siggi P skelltum okkur á Hverfis, stutt stopp þar en við tók dúndrandi dansstemning hjá Brósa á Prikinu..... mikið af myndum tekið, sem koma bráðlega og djammið endaði kl.08:15 eftir að brósi var búin að taka til og við komumst heim. *Laugardagur* Þynnka, stúss með mömmu og vinnan.... Mikið að gera í henni, tók að mér að undirbúa árshátíð sem er seinna í mánuðinum, ég kemst samt ekki á hana :o( Tókum þó netta spilatörn í vinnunni. Búin um hálf tvö en þá tók við fínpússing svo ég gæti verið manna á meðal og skellti mér í partý á Rassgötu 6 til hennar Veru minnar. Margt um manninn og stuð á fólki. Stoppið var stutt því ég, Sigga, Jóhanna, Heiða og Jóhanna skelltum okkur í bæjinn...... á Dillon til krakkana, þaðan á Prikið og VÁ HVAÐ VAR MÁLIÐ með raðirnar í bænum. Kíktum á Celtic en nenntum ekki meir og fórum því bara á Devítos og svo skutlaði ég J-low heim...... stuðið búið um 4:30. *Sunnudagur* Vaknaði rétt eftir að ég sofnaði til að opna sjoppuna kl.10. Dagurinn einkenndist af vinnu, leti, þreytu, meiri vinnu og svo matarboði um kvöldið. Ánægjulegt kvöld þar á ferð. *Mánudagur* SKÓLINN BYRJAÐUR en skemmtó, er reyndar bara í skólanum þriðjudaga og fimmtudaga (kannski ég taki eitt fag á föstudögum). Ljúft líf þar á ferð.....Mágus komin á fullt, búin að hitta stelpurnar á nokkrum fundum og viti menn..... VÍSINDAFERÐ Í DIELOTTE OG PARTÝ MEÐ HR Í FÉLAGSHEIMILINU Á SELTJARNANESI Á FÖSTUDAG..... IDOL, ÓDÝR BAR OG ENDALAUS GLEÐI. Frítt fyrir þá sem eru í Mágusi og Visku en 500 kall fyrir aðra.... gjafaprís á fyrsta skóladjamm ársins og gleði með fullt af fólki..... endilega komdu með!!! |
mánudagur, janúar 10, 2005
Ársspáin mín fyrir 2005..... spurning er gott að vera VOG? Stjörnuspekilegt tákn þitt er vog sem kona heldur yfirleitt á og stendur fyrir jafnvægi (samvinnu, réttlæti og sanngjörn lög). Vogin er sjöunda merkið í dýrahringnum, stöðugt loft. Örlögin ráða ríkjum árið 2005 þegar stjarna vogar er skoðuð. Atburðir framtíðar munu koma þér ánægjulega á óvart þar sem framtíðin færir þér vissulega betri tíma. Þegar þú ert heil/l gefur þú og það veitir þér gleði. Það er kærleikur. Janúar sýnir þig tvístígandi. Þú virðist vera á báðum áttum um öll mikilvægustu málin í lífi þínu en þegar þú ákveður að byrja á að takast á við veröldina eins og hún er en ekki eins og þú vilt að hún sé þá nærðu áttum svo sannarlega. Þér reynist einstaklega auðvelt að ná félagslegum böndum og leyfir þér að sýna á þér jákvæða hlið sem lítt hefur sést undanfarið ár (2004). Þú hefur að sama skapi mjög gaman af veisluhöldum árið framundan og ferð mikið út. Þú getur endalaust rætt um helstu áhugamál þín: listir, fólk, félagsfræði, fegurðina siðfræði og fleira merkilegt. Þér er mikið í mun að lynda vel við fólkið þitt en í maí lendir þú í einhverskonar þrætum vegna hugsjóna þinna (starf) og ert því vöruð/varaður við að gerast þrætugjörn/-gjarn í byrjun sumars. Hamingja þín styrkir vissulega og glæðir líf þitt og þeirra sem skipta þig máli. Leyfðu hlutunum að vaxa og bera góða ávexti árið 2005. Svei mér þá...... ef þetta ár lítur bara ekki asskoti vel út, það sem búið er af því hefur verið frábært!!!!!! |
miðvikudagur, janúar 05, 2005
BYRJUM ÁRIÐ Á FJÖRI OG HÖLDUM KÆRULEYSINU ÁFRAM!!!
Gleðilegt árið og takk æðislega fyrir allt..... núna er árið bara byrjað á fullu og ALLT ROSALEGA FÍNT!
Nýársfögnuður þar sem skálað var í Cosmopolitan, Stella drukkin, eplasnafs og ofurölvi á Prikinu með crewinu. Afkvæmabandið fær innilegar kveðjur fyrir snilldar kvöld. Jónas stóð sig vel í dyrunum en tökum á því þegar brósi útskrifast sem viðskiptafræðingur.
Allt komið á fullt í Heimdalli, Mágusi og Vinnunni. Tróð mér í að skipuleggja árshátíð fyrir vinnuna og kemst svo ekki sjálf ;o(
Við Mágusargellurnar hittumst áðan og svei mér þá..... bara hörkuskemmtileg önn framundan, vísó, bjórvissuferð, poolmót, árshátíð, mágus-orator og fleira..... snilldarfjör
Heimdallur kemur líka sterkur inn og byrjum við á því að fagna þréttándanum með teiti í kjallara Valhallar kl.21. Þar mun vera skemmtileg live tónlist, ódýrir drykkir og eintóm hamingja. Endilega látið sjá ég get ekki beðið eftir að tjútta með ykkur.
En ekki meir í bili..... lofa fullt af myndum inn á síðuna á næstunni!!!
Birt af Sella kl. 10:55 e.h. 0 ummæli
föstudagur, desember 31, 2004
FRÉTTIR ,,SELLUNNAR" ÞESSA DAGANA! ** Fjölgun mannkynsins ** Já þann merka dag 29.desember kom lítil PRINSESSA í heiminn, 13 merkur og 51 cm. Já frumburður Rakelar og Hansa án efa bráðmyndarlegt eins og foreldrarnir ;o) Innilega til hamingju ástirnar, bíð spennt eftir að koma í heimsókna og máta! ** Spil vikunnar ** Var í þessum töluðu orðum að koma heim úr Framheimilinu þar sem við tókum nokkra góða takta í Party og co & Actionary!! Svaka stuð, án efa stysta Partý&co spil þar sem Einsi og Maggi unnu en ég og Vera tókum strákana í bakaríið með leiksnilli okkar. Stebbi minn kemur bara næst. ** Vinna vikunnar ** Já hef átt voðalega lítið líf seinustu daga nema bara vinnuna mína, Aktu Taktu er placið..... og til mikillar gleði er komið yfir 100.000 kallinn inn á orlofsreikninginn minn. Get ekki beðið eftir 11.maí þegar við fáum þetta borgað út. ** Drykkur vikunnar ** Óáfengur er það nýji Kristall +.... báðar tegundir, asskoti gott og á líka að kallast vítamín bætt ;o) Vorum svo stelpurnar að ákveða að drekka Cosmopolitan á nýárs, GET EKKI BEÐIÐ EFTIR FJÖRINU!!! ** Hörmungar vikunnar ** Án efa hræðilegi jarðskjálftinn við Indlandshaf þar sem yfir 125.000 manns hafa látið lífið. Landssöfnun er byrjuð til hjálparstarfs á svæðinu og endilega hringja í 907-2020 og þá leggurðu 1000 kr. til þessa máls, mæli með þessu búin að gera þetta oftar en einu sinni...... BARA DRÍFA SIG OG GERA SEINASTA GÓÐVERKIÐ Á ÞESSU ÁRI GLEÐILEGT ÁR ELSKURNAR OG TAKK FYRIR ÞAÐ LIÐNA!!! |
þriðjudagur, desember 28, 2004
Hversu gott er að slappa af og glápa á imbann??? skiptir ekki einu sinni máli þó það sé ekkert í sjónvarpinu. Allavegana leti og vinna og svo bara bið eftir skemmtilegri helgi!!!! Risajólaboð heim í gær og svo var skundað í smáteiti í nýju fínu íbúðina hjá Katrínu og þaðan í bæinn. Fínasta afþreying þar sem ég Hanna og Vera kíktum á Prikið, Vegamót og Hverfis..... og ótrúlegt en satt aðeins 3 bjórar drukknir og heimkoma fyrir kl 03:00!!! |
föstudagur, desember 24, 2004
GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR!!!!
Vildi bara óska öllum gleðilegra jóla og takk kærlega fyrir ánægjulegt ár í einu sem öllu ;o) Vonandi verður næsta ár enn betra....... bíð enn spennt eftir hátíðarskrallinu bæði á 2 í jólum, gamlárs, nýjárs og bara þess á milli.
Mikið búin að bralla síðan prófin kláruðust, djamma, vinna, versla, vinna meira, pakka inn gjöfum, hjálpar Brósa að flytja, föndra jólakort, vinna meira og JÁ SOFA ROSALEGA LÍTIÐ..... en núna verður sofið, borðað enn meira af góðum mat og alles.
Hafið það sem allra best yfir hátíðirnar....... GLEÐILEGA HÁTIÐ.
PS. Gleðistund, önnur einkunn komin í hús 8,5 í viðskiptaensku. Nú er bara að bíða til 11.jan eftir næstu ;$
þriðjudagur, desember 21, 2004
ÉG ER KOMIN Í JÓLAFRÍ...LIGGA LIGGA LÁI.
loksins komið að þessu.....prófin búin, var að klára það seinasta núna og gekk svona upp og niður.... kemur allt í ljós, þetta er BÚIÐ!! :o)
Próftaflan var mjög strembin en þetta gekk og ér er orðin mjög langþreytt. Ekki samt svo að ég ætli ekki að fagna í kvöld, fá mér nokkra öllara og fara út að borða.
Fyrsta einkunn kom i hús í gær..... 7,0 í Utanríkisverslun, bara sátt þar sem þetta var 3 prófið mitt á 3 dögum.
En ekki meira í dag, farin í ljós, klippingu, fá mér öl, drekka meiri bjór út að borða og kaupa jólagjafir.
HAVE FUN :o)
miðvikudagur, desember 15, 2004
Smá jólaglögg fílingur..... endilega prófið, FINNSKT JÓLAGLÖGG 1 líter vodka 1 rúsínaHrært og skreytt með greni Ekki gleyma að syngja með!!! !Skín í væna vínflösku, Og huggulega bjóra jólaglögg og eplasnafsallt það ætl'að þjóra. Dufla og daðra og leika mér látum ill'í desember burt með sokk og skó hér af vín'er nóg. Ó hvað ég elska jólin von'ég hitt'á stólinn. Þannig að njótið dagsins..... kv, Lærdómsstrumpur |
Birt af Sella kl. 10:06 e.h. 0 ummæli
þriðjudagur, desember 14, 2004
IDOL þátturinn næsti..... Bara eintóm gleði á eftir sorg, já frekar sorglegt að sjá hvorki Guðrúnu Birnu né Eini komast áfram seinast...... EN VITI MENN, þau voru bara bæði valin af dómurum til að syngja aftur núna á föstudaginn!!!! Gaman gaman, nú er bara málið að kjósa þau og hringja í 900-2007 og 900-2008. En ekki meira í bili, have fun.... kv, lærdómsstrumpur |
Dagurinn sem margir hafa beðið eftir!!!! Já fyrsta prófið er búið og held það hafi nú bara gengið ágætlega, maður nær þessu en þetta er enginn verðlaunapeningur. Bíð þó spennt að vita hvað ég fæ.....´ Enn meira er það að hún TINNA SIF "litla" frænka er orðin 19 ára í dag, innilega til hamingju með afmælið skvís, njóttu dagsins,..... Já Anna Lára kemur heim í dag..........og síðast en ekki síðst 10 dagar til jóla og vika í seinasta próf!!! En þangað til næst!!!!! VERIÐI BLESS |
mánudagur, desember 13, 2004
ÉG HLAKKA SVO TIL.... ÉG HLAKKA ALLTAF SVO TIL....... Já það er magnað að það sé bara að koma að þessu, því sem ég og margir aðrir hafa beðið eftir. Vinirnir sem skelltu sér af klakanum í nokkra mánuði til að fá nett menningarsjokk og njóta þess að vera út úm allan heim eru að koma heim..... Stelpurnar koma heim eftir: Anna Lára 1 dag - þann 14.des Gyða 6 daga - þann 19. des Linda Hlín 7 daga - þann 20. des Elva Björg 8 daga - þann 21.des Ragnheiður 9 daga - þann 22.des Telma 9 daga - þann 22.des Elva Björk 12 daga - þann 25.des .....og síðast en ekki síst Brynhildur Tinna og Erla Dögg koma frá Danaveldi líka núna um jólin, ekki samt klár á dagsetningu. En enginn vafi liggur á að það verður DJAMMAÐ UM JÓLIN!!! ó mæ god hvað ég hlakka til ;o) 1 dagur í fyrsta próf og 8 dagar í það seinasta (einungis 3 þar á milli ;$) |
Kemur þetta einhvað á óvart??? Your the Spainsh senro/senorita. Weather it's Spain Mexico or Chile your famous for your elabrate clothes and romantic langueage like French only its spainsh. Spain is famous for its olives. Mexico its nice clothing and any other country its nice land. |
sunnudagur, desember 12, 2004
| AHA..... meira um útlendingana!!!!
Tælendingur á Dóminos - með smá framburðarerfiðleika segir: " Halló, ég ætla pissa....." og furða afgreiðslumaðurinn hló ;o) Daninn á Bæjarins bestu - ekki var hann skárri, sagði: " Já ég ætla að fá eina pussu með öllu" - tengdamamma hans snéri víst við og fór út í bíl.... SKRÍTIÐ! .......ATH þetta eru sannar sögur úr íslenskutímum fyrir útlendinga * Lífið þessa dagana snýst um að: ......vaka á næturnar og læra, .....sofa frameftir, ........redda sér glósum ....svara gömlum prófum, ..........læra, læra LÆRA, LÆRA .....enn meira læra ..............og LÁTA SÉR DREYMA UM UNDURSAMLEGA LÍFIÐ EFTIR PRÓF ;o) Þetta styttist 2 dagar í próf og 9 dagar í próflok............þá bara GLEÐI GLEÐI |
miðvikudagur, desember 08, 2004
| Meira um snilldar útlendingana.....
Rússi mætti í útvarpsviðtal þar sem hann var spurður um hvernig gengi að læra tungumálið.... Hann hugsaði sig um og sagði (með rússneskum hreim): ,,Tetta vera rosa erfitt tungumál, en ég reyni og reyni að læra tetta tungumál en börnin mín þau eru samt alltaf að RÍÐA MÉR¨!!!!! Átti að vera stríða mér...... en hvernig gat karlgreyið vitað það!!! |
þriðjudagur, desember 07, 2004
Útlendingar eru snillingar!!!! Fyrir þá sem ekki vita þá kennir mamma íslensku fyrir útlendinga..... og lumar því á mörgum góðum sögum í pokahorninu. Ég ákvað að létta próflestur og skammdegið með einni góðri jólapælingu hjá Filipseyskum strák. útlendingur: ,,Heyrðu Inga borðið þið Íslendingar mikið svínakjöt á jólunum?" Inga: Hugsar um hamborgarahryggina og svarar því: ,,Já við borðum frekar mikið svínakjöt" Útlendingur; ,,Já en borðið þið ROSA mikið svínakjöt? Inga: Hugsar enn meira og segir svo: ,,Já á jólunum og í jólaboðum".... Já mjög mikið! Útlendingur: JÁÁ ég var nefnilega að spá í þessum 13 JÓLASVÍNUM SEM ÞIÐ HAFIÐ!!! ....bara fyndið lið Gangi ykkur vel og gleðilegt ógeðisveður!! ;o) |
sunnudagur, desember 05, 2004
| OJJJJJ viðbjóður.....
Vil bara hvetja alla til að skrifa undir þetta HÉR..... því þetta er ógeðslegt og vonandi að maður geti gert einhvað í þessu. Þægilegt að vera verndaður á okkar litlu eyju út í hafi heldur en í umhverfi siðblindu og trúar þar sem um 2 milljónir stúlkubarna er umskornar á ári!!! KVITTIÐ GERIÐ ÞAÐ.... |
föstudagur, desember 03, 2004
Afrek vikunnar!!!! Án efa þegar við gómuðum 13 ára stelpu sem var að stelpa sígarettum í vinnunni og ég tók mig til og hringdi í foreldrana og lét þau vita að dóttir þeirra reykti og væri búin að vera að stela..... I know I'm bitch ;o) bara gaman Verk vikunnar: Læra þjóðhagfræði, fara til tannsa, vinna 2 kvöld, læra meira, setja upp 4 jólaseríur, elda, baka, vinna meira og læra á nóttinni...... já og bara vera MASTER í prófamyglunni!!! Afmælisbörn vikunnar: Ingibjörg Kristín, 23. ára skvísa, 2.desember eins og vinkona hennar Britney Spears og svo Guðrún Birna Idol stjarna er 23. ára í dag 3. desember. |
Stelpur innilega til hamingju með afmælið...... og minni alla að kjósa Guðrúnu Birnu í Idolinu í kvöld.... hún á það nú skilið, syngur eins og engill og á líka AMMÆLI
fimmtudagur, desember 02, 2004
| Íslenskir tónlistamenn þurfa á HJÁLP AÐ HALDA!!!!!
Varð fyrir þeirri óheppilegu reynslu að horfa á Popptíví um daginn..... og viti menn það voru nokkur myndbönd sem voru HRÆÐILEG Nr. 1 í hallærislegheitum. Kalli Bjarni - eða Coke auglýsingin. Í myndbandinu er par að rífast og tekur gellan sig til og lemur kippu af Coke í gólfið, Kalli bjarni kemur inn á milli að syngja á tónleikum. Myndbandið er mjög illa leikið og endar á því að parið sest niður voða happy og drekka Coke og Kalli Bjarni hneygir sig á sviðinu, beygir sig eftir Cokedós og tekur sopa...... heilagur Móses hvað þetta er hallærislegt!!! Nr. 2 í hallæri... Nylon - Fimm á ricther. Myndbandið er mest einhverjir gaurar að boxa og þær inn í einhverju búri að daðra við myndavélina og reyna að vera sexy Vægast sagt fáránlegt og fyndið myndband. Hafið þið séð þetta...... og hvað finnst ykkur um þetta? |
mánudagur, nóvember 29, 2004
Það eru að koma JÓL.....
...já það styttist og bara fyrsti í aðventu búinn. Helgin einkenndist að mestu af vinnu, vinnu, lærdómi og eldi.
Var að vinna á laugardagskvöldið..... og viti menn það kviknaði í!! Ég og Salka í miklum rólegheitum að taka til þegar elementið í frönskudjúpsteikingarpottinum SPRAKK og eldur, sót og allt út um allt. Við samt svo klárar að við slöktum eldinn.
Vinna svo á sunnudag og svo aðventukvöld í Bústaðakirku..... rosafínt kvöld að vanda fyrir utan þýska gargið í byrjun. "hverjum dettur í hug að taka þýskt lag á skemmtun???" Allt slökkt og allir í kikjunni kveiktu á kerti mjög flott heil 795 kertaljós.
En ekki meira frá mér bara verkefnavinna upp í Odda og lærdómsfílingur.
Sjáumst hress, verið bless ;o)
föstudagur, nóvember 26, 2004
Íslensk orðatiltæki eru rosalega skondin ;o)..... varð að stela þessu af síðunni hennar Bjarneyjar...... þannig að ENJOY
1. Rúsínan í pylsuendanum = The raisin at the end of the hot dog
2. Ég mæli eindregið með því = I measure one-pulled with it.
3. Nú duga engin vettlingatök = Now there won´t do any mitten-takes.
4. Ég kem alveg af fjöllum = I come completely from mountains.
5. Þakka þér hlý orð í minn garð = Thank you for the warm words into my garden.
6. Það gengur allt á afturfótunum = Everything goes on the back-legs.
7. Hann er alveg úti að aka = He´s completely out driving.
8. Það liggur í augum uppi = It lies in the eyes upstairs.
9. Hún gaf mér undir fótinn = She gave me under the leg.
10. Hann stóð á öndinni = He stood on the duck.
11. Ég kenni í brjósti um hann = I teach in breast of him.
12. Áfram með smjörið = On with the butter!!!!
miðvikudagur, nóvember 24, 2004
þriðjudagur, nóvember 23, 2004
Bara láta vita að ég er á lífi.....
Ekkert að frétta einungis vinna, læra, skóli og já audda SOFA.... ekkert smá gott að sofa. Seinasta vikan í skólanum núna og viti menn kennarinn bara veikur, vitum því ekki hvað er til prófs.... vonandi voða lítið.
Prófkvíðinn farinn að segja SMÁ til sín, en voða notalegt að jólin séu að koma, sunnudagskvöldið einkenndist af jólalögum, jólaföndurgerð og kósíheitum. Verð nú bara að segja..... jólin koma, jólin koma... dadda dara dada da da
sunnudagur, nóvember 21, 2004
| Believe it or not.......ég var heima á laugardagskvöldi!!!
Já mín bara komin í rólegheitargírinn.... var bara heima í góðum gír með mömmu í gær. Tók mig meira segja til og setti allt skóladótið í möppur og glósaði Lögfræði. Hélt að þetta myndi seint gerast......EN NEI ég kem sjálfri mér alltaf á óvart |
laugardagur, nóvember 20, 2004
Lokadjamm Mágusar...... BÚIÐ FYRIR JÓL!!
Já það var bara svaka svaka gaman... IDOL, SALSA, SingSTAR, frítt áfengi til ellefu og ekki lítið af því... bailey's, vodka, gin og full meira.
Byrjaði með IDOL þar sem viðskiptafræðinemar voru frekar slappir en við buðum nokkrum deildum í HÍ á lokahófið og var staðurinn stútfullur og sumir þurftu að víkja vegna plássleysis ;o(
Eftir idolið var kennt SALSA og var fólk gott að hrista rassa og salsamúvin rosagóð. Rúsinan var svo þegar SingSTAR mótið byrjaði..... Fullt af góðum söngvurum en enn meira af laglausum kvikindum sem stóðu varla í lappirnar vegna drukknunar í vínglösunum. Vorum með geðveika vinninga, 10.000 kr inneign á Hverfis og VIP, út að borða fyrir 2 á Rauðará og 10.000 kr inneigní Rouders á laugarveginum. Hefði átt að taka þátt til að fá Hverfisbars inneignina!!!!
Var bílandi og því svaka stuð að fylgjast með fulla fólkinu..... sérstaklega Sæunni og Soffíu. Þær fóru á kostum Sæunn týndi töskunni sinni nokrrum sinnum og Soffía var í essinu sínu að mörgu leyti ;o)
Benný var yndi, blindfull og vitlaus í essinu sínu..... dansaði og bablaði um allt og ekkert, Sigga, Heiða, Sigrún, Tulla, Vera, Eva yfirgáfu mig á Prikið en komu flestar aftur..... alltaf stuð á Hverfis. Sat mest og spjallaði við strákana..... kvöldið endaði frekar skondið, Stebbi og Addi fóru á Hlölla og meðan ég beið eftir þeim komu útlendingar til mín og spurðu: "heyrði ertu dealer?.. og áttu einhvað stöff fyrir okkur?" ég sagði nei og sagðist bara vera að bíða eftir vinum mínum 2....."Þá glottu þeir og spurðu mig hvort ég væri þannig..... eða sem sagt gella sem seldi mig til tveggja karlmanna í einu?"
Hvað er málið????? ég saklaus að bíða og lít út fyrir að vera dealer, dóphaus og HÓRA :o(
fimmtudagur, nóvember 18, 2004
Held ég standi bara í stað....
.....hvar strandaði ÉG á leiðinni??? Ég litla Sellan bara heima fyrir, á ekki mikið nema kannski litla sæta lakkrísrörið mitt (Passatinn), væli svo stanslaust um skólann og hvað ég eigi bátt.
Veit ekki betur en að líf mitt sé ágætt, djamm hverja helgi..... sem er nú orðið mjög þreytt en þó áhyggjulaus afþreying.
Hvenær ætli komi að því að ég verði í svipuðum hóp og fólkið í kringum mig. Kaupi mér íbúð, hund og fari að fjölga mannkyninu? Held það sé þá best að finna sér KALLINN fyrst. Hvað segið þið við þessu???
| Lægð og skýjað á köflum.
Það er alveg magnað hvernig maður getur einn góðan veðurdag, fengið nóg af sjálfum sér. Ég er einmitt komin með nett ógeð af letinni í mér og ýmislegt sem mætti betur fara hjá mér þessa dagana. Er meira að segja komin með það mikið ógeð að ég er alvarlega að fara að íhuga minn gang og skella mér til einkaþjálfara. Hætta að drekka eins og vitleysingur og taka lífinu með stökustu ró. Ekki verra að vera ekki að kyppa buxunum upp um sig svona rétt fyrir próf og já..... vera kannski búin að kaupa þær allar á fyrstu vikunum. Var líka að velta því fyrir mér..... er þessi síða orðin hugarástand mitt skrifað á blað, eða er einhver sem les ÞETTA?? |
miðvikudagur, nóvember 17, 2004
| JÆJA ÞÁ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ.....
Já helgin var bara þessi rosalega skemmtun , byrjuðum í pre Breeezerboði hjá Tísku-Teit um 15:00 þar sem einn kaldur var í hönd og myndashow í sjónvarpinu. Mikið hlegið og guð minn þurfti stundum að halda fyrir augun enda myndirnar af mismunandi skandölum úr NESU ferðinni góðu. Eftir nokkra kalda lá leiðin út á Stúdentakjallara og þaðan í vísó í Kbbanka við stelpurnar komumst fljótt að því að það var skemmtilegast hjá okkur í ferðinni, endar við “NESU félagarnir” vel í glasi þegar þangað var komið!!! Fínasta vísindaferð og útúrbreeeezuð stemning hjá okkur. Sæunn fær verðlaun fyrir líka þessa fínu þakkarræðu í Mágusar hálfu. Hverfis var placið eftir vísó – stoppuðum þó stutt þar sem leiðin lá í afterpartý í skvísusetrið hjá Eygló. Ó MÆÆÆÆ keyptum 72 Breezer og kassa af bjór og viti menn mettími í að klára það..... útúrbreeezuð á kantinum með hvítlauksolíu í hárinu röltum við aftur í bæinn, Jói iðaði allan laugarveginn í spenningi yfir Hverfis. Kíkti þó á 11 eftir að hafa fleygt Hjördísi svona vel í jörðina (sorrý ástin) Mikið drukkið, meira dansað og já meira drukkið eftir það.... myndavélin var á staðnum sem gæti bjargað gloppóttu kvöldi. Týndi myndavélinni þó, en fann hana aftur, týndi húfunni minni og Sæunn endaði með annan vettlinginn minn ;o) Heimkoma um 7 leytið........og harkan á minni vinna kl. 9 Hef sjaldan verið jafn mygluð og já “hálfdrukkin”, DJAMMIÐ sagði þó til sín því mín er bara búin að vera veik síðan þetta brjálaða djamm á flöskudag var. Þessi vika hefur einkennst af lærdómi og verkefnavinnu. Held þetta sé ekkert að fara breytast, allt of stutt í prófin ekki búin fyrr en 21.des, næsta djamm þá!!! Ætla þó að fara að skella mér undir sæng í þessu fína jólasnjó veðri. Hélt ég byggi nánast í miðbæ Reykjavíkur, en viti menn.... komst að því í dag að svo er ekki var heilar hel... 84 mínútur á leiðinni heim. Við Benný vorum á 20 km hraða allann tímann. En ekki meira í bíli..... heyri í ykkur Jólasnjó stelpan Sella |
mánudagur, nóvember 15, 2004
| Djöfullinn.....búin að skrifa fullt um atburði helgarinnar og viti menn
........þurrkaðist allt út..... óþolandi :o( |
Birt af Sella kl. 12:40 f.h. 0 ummæli
föstudagur, nóvember 12, 2004
| Allt að gerast þessa dagana.....
.... Já get nú ekki sagt annað en ég hlakka til FLÖSKUDAGSINS..... hörkufjör í gangi, þar sem um 115 manns eru að fara í vínsyndaferð í KBbanka. Ekki er verra að vita af því að ég er að fara í þetta líka svaðalega NESU REUNION fyrir ferðina á morgun þar sem við ætlum að slengja í okkur nokkrum köldum Breeezerum og kíkja á myndir ferðarinnar. Annað hvort Soffía eða Alli ætla að bjóða okkur heim og kíkja á herlegheitin...... og eitt er víst annaðhvort verður maður að drekka rækilega til að höndla myndirnar eða einfaldlega halda fyrir augun.. Annar er brjálað að gera og dagskrá næstu daga er: Föstudagur: djamm, djamm, djamm, smjörsleikt á kantinum í buffaloskóm með hvítlauksolíu í hárinu Laugardagur: þynnka og vinna, vinna Sunnudagur: verkefnavinna Mánudagur: skil á verkefni í utanríkisverslun Þriðjudagur: skila á 2 verkefnum í viðskiptaensku og próf, vinna um kvöldið Miðvikudagur: skil á verkefni í markaðsfræði III Fimmtudagur: kynning í utanríkisverslun og vinna Föstudagur...... næsta helgi plan síðar!!! Þangað til þá.... sjáumst hress,,,,, ekkert stress :o) |
þriðjudagur, nóvember 09, 2004
Sögustund úr útlöndum nr. 4
Þá fer að koma að því...... mín er bara á leið upp á flugvöll. Seinustu dagar í Köben eru búnir að vera yndi. Bara rólegheit, sjónvarpsgláp, verslunarleiðangur og hangs.
Við Telma lágum í leti, pöntuðum pizzu, átum nammi og flödeboller....og kjöftuðum. Visa og debetkortin eru funheit í veskinu eftir ALLT erfiðið, og tími til að skella sér heim.
Heimkoma 22:10 á íslenskum tíma. Hlakka til að heyra og sjá ykkur.
Hilsen fra Copenhagen
Sella
mánudagur, nóvember 08, 2004
Sögustund úr útlöndum nr.3
Jæja þá er ég komin í heimsókn til Telmu í Köben..... Það var hálf sorglegt að kveðja krakkana á flugvellinum í dag eftir snilldar ferð. Mikið búið að gerast og get ekki sagt meira en íslenski hópurinn var FRÁBÆR!!!!
Dagurinn fór mest í chill, kom heim til Telmu um 8:45 í morgun og ákváðum við að sofa..... þar sem lítið var sofið alla vikuna í Finlandi. Svala og Egill eru hér líka í heimsókn og tókum við bara slappdag í dag, pöntuðum pizzu, horfðum á TV og kíktum svo með Heiðu í bíó, myndin Collateral með Tom Cruise...... og hún var bara góð, Við mælum með henni.....
En núna tekur við svefn........og svo bara versla, versla, versla á morgun. Hlakka til að sjá ykkur, kem heim á þriðjudagskvöldið
Þá mun ölllll ferðasagan koma og ég LOFA MYNDUM ;O)
Birt af Sella kl. 12:59 f.h. 0 ummæli
fimmtudagur, nóvember 04, 2004
Sogustund ur utlondum nr.2
Mikid buid ad ganga a, djamm i Danmorku, Finlandi, Eistlandi og ja bara ut um allt. Brjalad mikid af fyrirlestrum og svona........ meira seinna, segi meira vid taekifaeri.... er ad koma beint af bar Studio 51 in Helsinki og er bara vel i tvi
bid ad heilsa ykkur..... meiri sogur seinna.... love you all ;)
sunnudagur, október 31, 2004
Sogustund ur utlondum nr 1....
Logdum otrulega snemma af stad upp a flugvoll til ad na filingnum og ollu. Eg, Haffi og Gylfi mættum snemma og spiludum tvi 7- 4- 2 allan timann i frihofninni.
Lennti a leidinlegasta gaur i flugvelinni sem var med mega attetude og vildi ekki leyfa mer ad hreyfa vid sætinu. Um leid og hann sofnadi notadi eg timann og setti sætid nidur og viti menn........ madur let eins og odur parkinson sjukingur a sætinu hristi tad og ytti a t il ad lata mig laga tad...... en audvitad gekk tad ekki, lek bara rolega sofandi unga stulku....
Koben hefur verid tekin med trompi, forum beint upp a Hotel Cabin og svo la leidin pa Strøget...... versla, versla, versla
Forum lett a lifid en komum snemma heim enda bidur okkar flug til Finnlands kl 8:15 i fyrramalid.
P.S Vera, Sigga og Sigrun, kikti a Scala. Strickers i nokkra øl og stemningin var god..... meira seinna og fleiri drykkir um leid.
Kv.....Koben farinn Sella
föstudagur, október 29, 2004
| Það er komið að þessu......
Já ferðataskan fundin og best að byrja að pakka..... 9 tímar í flug og fullt sem ekki má gleyma, eins og góða skapið, myndavél, galaföt, fín föt, djamm föt, góða skó og GJALDEYRI. Er þetta ekki það sem þarf?? Vera ætlar að vera svo góð að skutla mér, Haffa og Gylfa út á flugvöll. Þurfum að vera komin þangað fyrir kl 6 út af tollstimpli á 12 Eldur Ís vodkaflöskum sem munu ferðast með okkur. Köben á morgun, Finnland á sunnudag og Eistland á mánudag. Reyni að setja inn línu á bloggið við tækifæri..... en engar áhyggjur það verður gaman. Góður hópur: 5 stelpur (ég, Sæunn, Soffía, Hjördís og Eygló) og 6 gaurar (Haffi, Gylfi, Jói, Stefnir, Andri og Teitur) Óskið mér bara góðrar ferðar og góðrar heimkomu..... OG JÁ ÉG SKAL DREKKA NOKKRA FYRIR YKKUR ;o) |
Birt af Sella kl. 11:51 e.h. 0 ummæli
fimmtudagur, október 28, 2004
Einn lettur brandari.... fyrir svefninn ;o) Elsa átti þrjár dætur sem allar ætluðu að gifta sig með stuttu millibili. Hún hafði nokkrar áhyggjur af brúðkaupsferðum dætra sinna og bað þær að lofa því að senda sér póstkort um framgang ferðarinnar. Ein dóttirin fór til Hawaii og eftir tveggja daga dvöl fékk Elsa póstkort. Ekkert stóð í kortinu fyrir utan ,,Maxwell House" Elsa var vonum hálfundrandi yfir þessu og náði í Maxwell House kaffipakka og sá að utan á honum stóð: ,,Gott til síðasta dropa" Hún roðnaði yfir skilaboðum dóttur sinnar og var ánægð með að allt gengi vel. Viku eftir brúðkaup næstu dóttur fékk Elsa póstkort frá Austur-Evrópu, þar sem hjónin voru í reisu. En ekkert stóð í kortinu nema: ,,Lion Bar" Elsa var nú farinn að þekkja þennan leik, keypti sér Lion Bar og las á umbúðirnar ,,Extra langt og unaðslega gott"´Frúin fór þó nokkuð hjá sér en var ánægð fyrir hönd dótturinnar. Þriðja dóttirin fór í brúðkaupsferð í Karabíuhafið. Elsa beið eftir póstkortinu en eftir viku hafði ekkert spurst til þeirra. Önnur vika leið og svo loks eftir mánuð kom póstkort. Skrifað með óstyrkri hönd stóð: "Iceland Express" Elsa leitaði í næsta dagblaði, hálfórótt yfir skilaboðum, og fann loks auglýsinguna: "ÞRISVAR Á DAG, SJÖ DAGA VIKUNNAR, BÁÐAR LEIÐIR" hahahah..... góða nótt og bara svona segja ykkur 2 DAGAR í útlöndin
|
miðvikudagur, október 27, 2004
Allt á fullri ferð.... og mikið búið að gerast seinustu vikuna!!
Fimmtudagurinn einkenndist af stemningu og stressi fyrir kk-og kvk kvöldið, þar sem við náðum að gera marga skondna hluti...... eins og Sæunn missti öll mágusarskírteinin á bílaplaninu upp í Háskólabíói, ca 500 stykkjum. Mjög gaman að raða þeim aftur í starfrófsröð ;o)
Skellti mér svo upp í Valhöll á fund með nemendafélögunum í framhaldskólunum, á Stylinn með Hönnu og Tinnu. Eftir það kíktum við svo á kaffihúsakvöld á Vegamótum Mér tókst að læsa Tinnu frænku óvart inn í bíl.... og skondið að líta til baka og sjá eymdarsvipinn á henni bankandi á rúðuna eftir HJÁLP!!!
Föstudagurinn byrjaði snemma upp í vaxi hjá Magneu. Við tók svo hin bráðskemmtilega miðasala.........og svo bara KK- OG KVK KVÖLD MÁGUSAR OG TRADITION Hörkustuð á Stúdentakjallaranum, þar sem allir voru merktir gaumgæfilega eftir hjúskapastöðu (rautt á föstu, grænt á lausu og gult mitt á milli) Þaðan tókum við stelpurnar bus á Hverfis..........þar sem Rósa Ingólfs fræddi okkur um kvenleikann, gaf okkur ilmvatn og krem meðan við renndum niður líka þessum tíbýska StElPu-BjÓr.....
Gulla úr Svínasúpunni og Stelpur.com var með uppistand........og verð nú bara að segja DJÖFULL ER HÚN FYNDIN gerði nett grín af karlmönnum með góðum undirtektum. Stulli og Haffi í Tradition komu svo með nett grín á milli atriða.... en lokaatriðið hjá stelpunum....var.....
.......líka þessu hallærislegu stripparar sem héldu að þeir væru svo flottir.... en þeir voru það EKKI , hélt ég myndi deyja úr hlátri þegar þeir drógu Tinnu Sif upp og létu hana sleikja rjóma.... og annað ógeðslegt ,
Rétt eftir þetta komu strákarnir galvaskir af Goldfinger, þar sem við tók líka þessi drykkja, dans og feiknastuð. Kvöldið einkenndist af víni, víni, Campari, kokteilum, myndatöku og GAMANIIII.....
Laugardagurinn tekinn í þynnku og svo smellt sér í útskrift hjá Siggu vinkonu – sem nú er orðin viðskiptafræðingur stelpan. Já og það berfætt þar sem bandið á nýju fínu skónum hennar slitnaði í athöfninni sjálfri, svekkjandi.
Mikið stuð og mikið gaman í Miðsölum, þar sem við dönsuðum hókí pókí, fugladansinn, Zorba og drukkum í takt við það. Leið lá svo á Prikið til nóna bróður. OF MIKIÐ af fólki í bænum, kíktum á Ara og Hverfis líka...... svo bara í pylsu og Haukur ,,tengdasonur Íslands” náði í mig, Hönnu og Vidda.....
Sunnudagurinn var svo heljarinnar leiðangur og útréttingar með mömmu, saumó í nýju fínu íbúðinni hjá Guðrúnu og Styrmi. Alltaf gaman að hitta stelpurnar og slúðra eilítið... Stjórnarfundur í Heimdalli og svo líka þessi fíni matur heima og föndurkvöld famelíunnar.... fyrstu jólakortin eru komin ;o)
En ekki meir í bili....... myndirnar eru komnar, kíkið á!!!!,
P.S bara 3 dagar í Finnland, Telma i´m coming :o)
mánudagur, október 25, 2004
Allt að gerast.......
Til að byrja með langar mig til að óska ÍRIS BJÖRK til hamingju með 23 ára afmælið í dag, elskan njóttu dagsins.
Er upp í skóla að drukkna í verkefnum þessa vikuna, er að reyna að vinna upp öll verkefni fyrir utanlandsferðina miklu..... aðeins 5 DAGAR Í KÖBEN.... oh það verður svo gaman.
Dettur ykkur einhvað í hug í sambandi við innflutning á tyggigúmmí til Ástralíu (verkefni í utanríkisverslun) eða hvað þá neikvæða hluti um Bretland, t.d fótboltabullur, vondan mat, mengun, slúður blöðin, offitu og....... (verkefni í viðskiptaensku).
Bara svona einhvað sem ykkur dettur í hug,
Er að reyna að koma mér í skriftir eftir helgina...... karla-og kvennakvöldið, Útskrift hjá Siggu, djammið í bænum, matarboð, föndurkvöld og, og, og, og.......
Bíðið spennt....... MYNDIRNAR KOMA INN BRÁÐLEGA....og sögustundin líka
fimmtudagur, október 21, 2004
ER ÞETTA MÁLIÐ.....
Draumur konu
Kona ein sat á bar ásamt vinkonum sínum eftir vinnudag, þegar hrikalegamyndarlegur og rosalega sexy ungur maður gekk þar inn.Hann var svo eftirtektarverður að konan gat með engu móti hætt að staraá hann. Ungi maðurinn tók eftir athyglinni sem hann fékk frá konunni,gekk beint til hennar og sagði.Ég skal gera hvað sem, "HVAÐ SEM ER" og hversu afbrigðilegt sem það erfyrir 2000 kr.með einu skilyrði.Orðlaus af undrun spurði konan hvað þetta skilyrði væri.
Ungi maðurinn svaraði: Þú verður að segja mér hvað þú villt að ég geri íaðeins 3 orðum.
Konan hugsaði tilboð hans um stund, byrjaði svo að telja peningana uppúr buddunni sinni og rétti unga manninum.Hún horfði djúpt í augu hans og hægt og rólega svaraði hún:
ÞRÍFÐU HÚSIÐ MITT!!!!!!!!!!!!!!
miðvikudagur, október 20, 2004
Nokkrar staðreyndir úr DV... Aðallega úr greininni góðu.... ,,Ástarþríhyrningur í héraðsdómi"..... lesið þessa líku góðu frasa úr greininni um líkið Vaidas í Morðfirði. ....Heiðveig Þráinsdóttir unnusta Grétars hélt hann væri á sjúkrihúsi með raflost, þegar hann var með Natöshju. .... Í Héraðsdómi í gær sögðu líkmennirnir sína sögu. Frásagnir þeirra stönguðust á. Einn neitar sök, annar játar og þriðji kennir hinum um ALLT!! .... Jónas neitaði að hafa vitneskju um að Vaidas hafði haft fíkniefni innvortist við komu til landsins, né heldur að hann hafi verið kunnugt um lát Vaidasar. ..... hvað þá hafa vitað af líkinu..... (HALLÓ VINURINN OPNAÐU AUGUN) sem Tomas og Grétar hafa báði vitnað um að hafa verið í bíl sem Jónas keyrði, hálfann hringveginn á þriggja daga tímabili! ..... Jónas vissi ekki um líkið, þar sem hann var í göngutúr um Fossvoginn, þar sem Grétar og Tomas reyktu svo mikið..... (en hvernig var þá lyktin í bílnum eftir þessa 3 daga)... .....Grétar lýsti sinn hlið í blaðaviðtölum og kærasta Grétars Heiðrún, opinberaði sína hlið málsins og fyrirgaf Grétari allt... ...... Ekki meir í bili en ef þið vitið meira um þetta stórfurðulega mál.... og hver komi næstur með nýja sögu... SEGIÐ MÉR |
mánudagur, október 18, 2004
Gleði, gleði og geðveik helgi búin.....
Flöskudagur: Mikið brallað, farið í vísindaferð í Haga ( Baug) þar sem við hlustuðum á skemmtilegan fyrirlestur og kepptumst svo í að slá drykkjumet Mastersnema í HR.... og verð nú bara að segja að okkur tókst mjög vel upp, kláruðum allt drykkjarhæft í húsinu, skelltum okkur svo á Hverfis þar sem Idolið var hresst og skemmtilegt.
Kvöldið einkenndist af DRYKKJU, DRYKKJU OG ENN MEIRI DRYKKJU... tókum röltið af Hverfis á Bingókvöld verkfræðinema..... vorum held ég aðeins og drukkin fyrir þá rólegu stemningu sem var þar, fórum á Prikið, Ara, Pravda, Hverfis, Celtic og já endaði á Prikinu og var eins og ,,Palli var einn í heiminum" að bíða eftir að elskulegasti bróðir í heimi skutlaði mér heim... Þrælfínt djamm og toppaði söngurinn okkar Hönnu og Veru allt á Celtic
Laugardagur: Yndislegasta litla ,,stormfríður" frænka mín Natalía Tinna 1.árs. Hörku afmælisveisla haldin hér heima.... en nei nei mín þurfti bara að skella sér í vinnuna og það til 01:30 á laugardagsnóttu, ekkert djamm eftir það, dagurinn einkenndist bara að svolítilli þoku og léttum strekkingi, ÞYNNKA Í HÁMARKI.
Sunnudagur: já há... föndurdagurinn mikli, fékk Sæunni og Soffíu í heimsókn þar sem við dróum upp liti, prentara, fullt af blöðum, saumavél, gull- og silfurpenna og byrjuðum á að föndra miða á líka þetta góða kvöld Karla- og kvennakvöld Tradition og Mágusar, eftir það var svo hörkustuð á stjórnarfundi Heimdallar og vinna fram eftir kvöldi..... já bara að skella á skemmtilegasti viðburður ársins..... ætlar þú að missa af honum
Nei held ekki, Tinna Sif, Vera, ég, Sigga og Jóhanna erum bókað að fara.... viltu koma með?
fimmtudagur, október 14, 2004
Þá er nú betra að halda sig í skólanum......
Já maður er nú bara feginn að hafa tekið skólann með stæl í dag, var frekar svekkt yfir því að þurfa að gera verkefni og læra fullt í kvöld þar sem landsleikurinn var í sjónvarpinu og gellurnar á vellinum að horfa á sæta fótboltarassa. Ísland - Svíþjóð........ lokaniðurstaða 0:4 fyrir Svíum og mörkin öll í fyrrihálfleik.....
...ekki laust við að ég sé sátt við að hafa verið í friðsælli náttúrunni í Odda með Utanríkisverslun í annarri og Lögfræði í hinni.
Best að fara að drífa sig heim, Oddi lokar bráðlega og rúmið kallar!!!!!
ps. AÐEINS 9 DAGAR Í KARLA- OG KVENNAKVÖLDIÐ, ;O)
viltu koma með??????
miðvikudagur, október 13, 2004
Bara allt að gerast..........skóli, skóli, skóli og að sjálfsögðu djamm!!!!
Já bara allt að gerast, er upp í skóla núna að læra, verkefni á morgun, skilaði einu í gær, fór í tvö próf þá líka og fékk útúr 1 verkefni og 2 prófum. 8, 8 og 9 komin í hús...... er mín ekki dugleg?
Annars er fullt á dagskrá....
Föstudagur: 15. okt Vísindaferð í Haga (Baugur)
Laugardagur: 16. okt Natalía Tinna 1.árs, svaka afmælisveisla
Laugardagur og sunnudagur.... vinna, vinna, vinna
Mánudagur: 18.okt Enn meiri lærdómur og verkefnavinna
Þriðjudagur: 19.okt Verkefnavinna og vinna
Föstudagur: 22.okt Karla- og kvennakvöldið
Laugardagur: 23.okt Sigga útskrifast úr HÍ
Sunnudagur: 24.okt þynnka.....
Laugardagur: 30.okt NESU Ráðstefna í Finnlandi...... alveg í heila viku þar sem við förum til Eistlands og enda svo í 2 daga heimsókn hjá Telmu minni.
Gleðistund framundan..... bless í bili, félagar
P.s Vera er komin með nýtt blogg..... kíkið hér