| HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR.............
Lau 9/10...... Í dag er rétt að ráðgast við vin, sem gæti veitt þér holl ráð eða í það minnsta góðan félagsskap, sem yrði þér til upplyftingar! Sun 10/10......Þú laðast að leyndardómum. Þú vilt koma auga á vandamálin, leysa þau og vinna réttu svörin!! ..... Því er málið að SKELLA sér á KAFFIHÚS og ræða allt milli himins og jarðar, hver veit hvað gæti ræst af þessu!!!! kv. Sella kaffigella ;o) |
sunnudagur, október 10, 2004
föstudagur, október 08, 2004
Vísindaferð í Landsvirkjun...... þetta er fínt fyrirtæki!!
Var rétt í þessu að koma í hús úr líka þessari fínu vísindaferð okkar í viðskiptafræðinni hjá Landsvirkjun. Með okkur í för voru hressir krakkar í stjórnmálafræðinni!!!! Bráðskemmtilegur fyrirlestur, fengum að fara niður í stjórnstöðina og sjá hvernig rafmagnflæði inn á heimilin og sonna.
Var svo heppin að Óli góði hellti yfir mig heilum bjór, þannig að ég kom heim til að skipta um pils..... og fara svo og hitta fólkið í FRÁBÆRU IDOL FJÖRI á Hverfis!!!
Endilega komdu og láttu sjá þig, alltaf gaman að horfa á þetta rugl í stórum, góðum hópi!!
.......svo bara heim og læra þjóðhagfræðipróf á morgun....... já á laugardegi!!!!
Hverjum dettur í hug að fara á Aktu Taktu og fá sér að borða????
..... Ekki frásögu færandi, nema það að ég skellti mér í vinnuna áðan, og viti menn kom bara ekki þessi 70 manna bílaklúbbshópur... Life to cruise og ákvað að fá sér að borða...... hef ekki séð annað eins, við vorum 7 í vinnunni og allt á öðrum endanum, náðum að redda einhverjum 80 tilboðum að allskonar mat, þótt ég segi sjálf frá, gekk það ROSA VEL!!!
Fór þó fyrr heim og viti menn lenti líka í þessari dýrindis fondue veislu, geggjaður matur heima og Laufey og Kalli í heimsókn. Við tók lærdómurinn og........... já það sést bara hvað ég hef náð að læra mikið...... komin á netið.
..... en bless í bili, verð að læra, próf í þjóðhagfræði á laugardag og vínsyndaferð í Landsvirkun á morgun, sjáumst hress og játs bara bletzzzzzz :o)
..... Footballers wives!!!!
Hversu fyndnir þættir eru þetta? Maður dettur bara gjörsamlega inn í nýja Bílastæðaverði eins og í Fóstbræðrum. Annað hvort hafa allir verið með öllum, átt börn með öllum, haldið framhjá öllum og ef það er ekki svoleiðis, þá er verið að reyna þetta ALLT. Tanya Turner fær þó heiðurinn á því að vera tík þáttarins. Bíð spennt eftir næstu seríu...... gerir þú það ekki líka??
fimmtudagur, október 07, 2004
þriðjudagur, október 05, 2004
Vér mótmælum
.......Það var sko tekið á því í morgun, mín bara mætt við Hús Verslunarinnar kl 07:30 með fullt skott af Kókómjólk og við tók mótmæli um frestun mislægra gatnamóta Kringlumýrar- og Miklubrautar þar sem fjöldinn allur af hressum Heimdallingum voru saman komin með skilti, kleinur og kókómjólk til að gefa, þeim vegfarendum sem voru stopp í umferðarteppunni á leið í vinnu......
Gaman að sjá hvort þetta hafi einhvað í för með sér, en við sýndum þó í verki að það þarf að gera einhvað róttækt þarna!!!! Hver nennir að vera 40 mínútur í skólann eða vinnu á morgnanna.??
MBK
Sella uppreisnarseggur ;o)
..... WHAT A FEELINGGGGG......
Jamm og já, helgin afstaðin og mikið búið að bralla. á flöskudag var margt og mikið að gerast.... Vísindaferð í Seðlabankann, sem ég missti því miður af, en hitti þó hresst Mágusarliðið á Stúdentakjallaranum á eftir þar sem bjórinn flæddi og pizzukassar á hverju strái. Stoppaði stutt þar, þar sem Davíð Ólafur var með 1.matarklúbb vetrarins, þar sem eldað var Faitas fyrir 20 manns og ís með heitri mars-sósu sem sumum fannst þurfa að bragðbæta með vænum slurka af Bacardi. (Takk Jói) horft á Idol,
......... og já já já já, farið í Sing Star , og ómæ hvað það er skemmtilegt, þetta er komið efst á óskalistann fyrir jólagjafir. Lög eins og Pretty Woman, I believe in things called love, Like a virgin, Heart of glasses, Living la vida loca voru tekin nokkuð oft, og voru Októberfest fararnir fullu, mjög sprækir og fá fullt hús stiga fyrir sviðsframkomu...
.....eftir mikið væl, söng og svínarý lá leiðin í bæinn og tók ég að mér að skutla Bigga, Sigga, Villa og Kára í billann þar sem Prikið var fyrsti stoppustaður. Bílferðin var kostuleg þar sem strákarnir ákváðu að kasta vatnsmelónu út á ferð já, já, já út um gluggan á ferð á Miklubrautunni...... skondið atvik þar á ferð, á Prikinu var svo mikið tjúttað og trallað, dansað upp á stólum, hátölurum og bókstaflega út um allllllllllt. Mín edrú svo ég var ekki alveg að missa mig. Hitti allar gellurnar á Prikinu og rölti með Veru og Hönnu á Hverfis í stuttan hring og svo jemmme på.
Laugardagur til lukku tók svo vel við þar sem Styllinn var tekin, rúntur upp í mosó eftir bolluskál og glasaleit, brunað í Ikea og keypt 60 plastglös, rennt eftir snakki og í kringluna að kaupa Boozzzzee og öllu í bolluna reddað.
..... Eftir herlegheitin lá leiðin heim og gera allt klárt fyrir PARTÝ IÐ..... mikið ógeðslega var gaman þó ég segi sjálf frá. Bauð líka í þetta skemmtilega partý hérna heima, þar sem um 40 manns létu sjá sig, mikið var tjúttað, blönduð var hættuleg bolla þar sem fólk sem smakkaði hana komst ekki hjá því að rúlla út um útidyrnar á leið úr teitinu. (Aðeins 3 lítrar af Vodka og 3 ½ l af Passóa kláruðust)........ og fáránlega mikið af bjór, stútfylltum svartaruslapoka af dósum.
......Þegar líða tók á partýið var ,,Einn dans við mig” tekinn hátíðulegur í stofunni, Sing Star fjör á efri hæðinni, drykkjukeppni í eldhúsinu, þar sem keppt var í að klára bolluna með risa rörum og fötu á gólfinu. Tóku sig nokkrir til og ákváðu að spila fótbolta með vatnsmelónu í garðinum (mér til mikillar gleði á sunnudaginn) Um hálf þrjú, tíuðum við okkur svo í bæinn þar sem Prikið var tekið með stæl...... og áfram haldið á drykkju. Mikið stuð og mikið gaman, röltum við saman upp á Hverfis, þar sem ég laug að dyraverðinum að Tinna frænka væri stjórnarmeðlimur í Mágusi með mér og við flugum 3 inn...... hahah góðar Hanna og Tinna :o) Mikið tjútt og mikið gaman, dansaði af mér rassgatið með Anný, Möggu, Ella, Tinnu, Hönnu og fleirum, en svo kom að því að djammið átti að vera búið enda kl. 06:?? Svo við fórum bara aftur á Prikið, skelltum okkur og pöntuðum pizzu......Vera okkar kom svo og sótti okkur og við komum heim, í svaka fillerýisgalsa, japlandi á pizzu og Tinna, Hanna og Elli ákváðu að gista, góður endir á góðu djammi, ég get ekki sagt meira.
Sunnudagur til svaka þynnku kom sá og sigraði, þar sem þynnkan var ágæt og mikið ógeðslega var gólfið skítugt..... það var SVART, skúringar, afþurrkur og uppvask var á dagskrá, en mikið rosalega var ég fegin að við ákváðum full og vitlaus að henda öllu drasli, dósum og rusli á laugardagsnóttina áður en við fórum í bæinn......
Kv. Sólargeislinn, í bananastuði eftir góða helgi
PS. Myndirnar sem lýsa kvöldinu best koma inn eftir smá......
Pps takk æðislega fyrir mig..... engar smá gjafir og enginn smá félagsskapur ;o)

föstudagur, október 01, 2004
jamm og já...... þið segið það!!!
Enn einu sinni kominn flöskudagur, vísó í Seðlabankann, Októberfest í Háskólanum, fyrsta Idolkvöldið, matarklúbbur hjá Davíð og já HÖRKUDJAMM Á MORGUN...... já sem sagt fullt fjör á haustmánuðum á klakanum.
Mikið búið að vera að gera þessa vikuna, fullt að læra í skólanum, vinna á fullu, safna styrkjum fyrir Nesu ferðinni, halda tvo saumaklúbba, slúðra mikið, eiga ammæli, fá útborgað og eyða því jafn fljótt....... ekkert smá hvað það tekur á að fara í Kringluna og Smáralind.
Annað hvort eyðir maður fullt af peningum sem maður á ekki......... OG loks þegar maður á einhverja aura, þá finnur maður ekki neitt, eða ekki til í stærðinni sem maður þarf. Vildi bara að ég væri stundum úr gúmmí, þá gæti maður teygt sig og togað í öll flottu fötin sem maður sér......
... Þið sem lesið þetta, þá verður sko tjútt og trall á morgun.... ÉG ENDURTEK Á MORGUN, partý at my place!!! Endilega láttu að sjá þig,
Kveðja flöskudagsvinurinn
Sella
miðvikudagur, september 29, 2004
ÉG Á LÍKA AMMÆLI...... LIGGA LIGGA LÁI!!!
Já mín bara orðinn ellismellur 23.ára, pælið í því!!!...... og þið vitið ekki hvað ég stækkaði mikið í nótt. Afmælisdagurinn byrjaði voðalega vel þar sem stimpilklukkan í vinnunni spilaði líka þetta magnað falska technoafmælislag kl.24. Svo lá leiðin á Prikið í kaffibolla með Jónasi bróður.... og elskan svo góður að gefa mér 3 rauðar rósir
Ekki var svo slæmt að fá afmæliskort í pósti frá Ameríkunni..... Elva og Anna Lára TAKK æðislega fyrir mig og missya þúsundfalt líka, bíð spennt eftir jóladjamminu!
Búin að fá fullt af góðum kveðjum í dag....ammæliskveðjur frá: Veru, Siggu, Sigrúnu, Evu
Ösp, Tinnu Sif, Sibbu, Drífu, Hrebbnu, Sæunni og Soffíu, Danna Tiger, Önnu Svövu, Rakel og bumbunni, Hönnu, Benný, Anný Rut, Frikka, Laufeyju og Kalla. TAKK FYRIR MIG!!
Langar í leiðinni að óska Tullu innilega til hamingju með 24 ára afmælið..... njóttu dagsins elskan.
Kv. Sólskinsbarnið í ammælisgír
P.S Afmælispartý hjá mér um helgina....... svaka stuð og djamm á laugardaginn. Nánari upplýsingar þegar nær dregur! Hlakka til að sjá ykkur.....
þriðjudagur, september 28, 2004
Að kaupa PYLSU.... getur verið hörkuerfitt
Já það hefur nú ekki virkað tiltökumál að kaupa sér eina með öllu í þessu þjóðfélagi..... en nei viti menn, það var nú bara hörkuvesen hjá mér og Tinnu frænku um helgina.
Þannig var mál með vexti að við frænkurnar ákváðum að skella okkur á Bæjarins bestu á laugardagskvöldið um kl.02:00, vippuðum okkur inn á bílaplanið fyrir framan og eins og fólk veit er lífsins ómögulegt að fá stæði þarna eftir miðnætti um helgi. Við frænkurnar ákváðum eftir nokkra hringi á bílaplaninu að loka bara tvo bíla inni, hlaupa og kaupa pullu og skella okkur í burtu!!! Tókum allann pakkann í því að það kæmi nú enginn að færa bílinn sinn svona seint á nóttunni og að það tæki nú ekki langan tíma að fá 2 stk pylsur!
.......en heppnin okkar við skelltum okkur að skúrnum góða, pöntuðum tvær heitar en í sömu andrá er mér litið í átt að bílaplaninu þar sem ég sé þrjá vaska pilta standa við bílinn okkar. Einn gaurinn kemur að pylsuvagninum og eftir stutt spjall fæ ég að vita að við höfðum lagt fyrir bílinn hjá vini hans sem ath.... var lögga í mikilmennskugír, sem búinn var að hringja á lögguna og tilkynna ólöglegalagðan bíl og ætlaði að fá Vökubíl til að draga hann í burtu.....
Ég hleyp og ætla að færa bílinn... þá átti ég smá samtal við löggugaurinn.
Gaurinn: “Ertu eigandinn á bílnum?”.....
Ég: ,,Nei er bara að færa hann fyrir eigandanum”
Gaurinn: “ok, þá mun eigandinn vera vakinn, því löggan mun hringja í hann eftir smá”
Ég: ,,ok en ég skal bara færa bílinn”
Færi bílinn og segi svo við Tinnu frænku þegar hún kemur með pylsurnar
,,Heyrðu löggan mun hringja í eigandann á eftir út af ólögleglögðum bíl”...... þá sé ég líka þennan skrítna svip koma á frænku mína í því sama sem hún springur úr hlátri og segir.....
,,......en Sella, amma er skráð fyrir bílnum!!!”
verð því bara að segja hversu fyndið hefur samtalið verið við 70 ára kellu um miðja nótt um ólöglega lagðan bíl á bílastæði......ekki furða að löggan hafi verið fámál þegar hún loksins bjallaði í Tinnu út af herlegheitunum!!!
Saumó búinn og slúðrið komið í æð.....
Já fremur rólegur saumaklúbbur hér á ferð..... skrítið vorum bara 6 mættar, en vaninn er örlítið fleiri eða 16 manns. En nei þar sem gellurnar okkar eru erlendis, þær: Gyða í Kanada, Anna Lára í USA, Marín í Þýskalandi og María, Tinna og Telma í Danaveldi.....vantaði nokkrar aðrar út af vinnu, lærdómi og pössunarleysi og veriði vissar elskurnar ykkur var sárt saknað.
Ég var búin að vera rosalega dugleg að baka og svona en NEI NEI NEI viti menn ætli bakarofninn bili ekki hér heima hjá mér og heiti rétturinn til í tuskið..... Þá eru nú góð ráð dýr, en viti menn hvað ætli maður hafi gert ?? Jú jú, kveikti upp í gasgrillinu og hitaði hann þannig, sniðug finnst ykkur ekki!!!
Slúðrið var í það minnsta þessa kjaftatörn, en þjóðfélagsmálin rædd fram og til baka. Guðrún sagði okkur mikið frá nýju íbúðinni sinni og út frá því komu þessi líka miklu íbúðarkaup..... ég held ég verði bráðum ein eftir heima hjá M&P. Hrebbna og Katrín eru að safna fyrir íbúð og alltaf að skima eftir. Sunna nýbúin að kaupa, Anna Jóna komin á Hjónagarðana og já bara allt á blússandi siglingu hjá okkur gellum...... ekki leiðinlegt!
En eftir mikið spjall um Fíkniefnamálið í DV, skólana HA,HÍ og HR, vinnurnar, litlu krílin í klúbbnum, barneignir, djammið, Idol, jólin og jólastressið, brúðkaup, bankamálin og allt milli himins og jarðar, leisti ég stelpurnar út með bókaláni til að redda málunum. Ekki slæmt að geta lánað bókmenntasögubækur, spænskuorðabækur og bókfærslubækur....... já dugleg? Vil því enda þetta góða blogg á MENNT ER MÁTTUR ...........og fara að læra fyrir próf sem er á morgun!
mánudagur, september 27, 2004
Dugnaður í minni..... fylgir þetta aldrinum??
Já búin að vera dugleg í dag, þótt ég segi sjálf frá. Eftir smá stund á von á Dísunum í saumaklúbb og haldiði ekki bara að mín sé búin að baka köku, gera brauðrétt, skera niður grænmeti með dýfu, nachos og ......fullt af nammi..... ekkki slæmt það.
Já keypti mér líka þessa snilldarskál fyrir allt gúmmelaðið..... þannig að núna get ég tekið á móti ykkur með góðgæti!!!
I´m readdyyyyyyy..... sjáumst hress
föstudagur, september 24, 2004
Olympíuleikar fatlaðra..... dáist að keppendunum. Já mér finnst við hæfi að Kristín Rós sundkappi verði valin íþróttamaður ársins á Íslandi miðað víð árangur sinn..... hún á það skilið og mikið meira en það, gull og heimsmet á móti sem þessu! En verð þó að segja frekar fyndið að horfa á kúluvarp dverga, hjólastóla körfubolta, hjólreiðar blindra og hestamennsku handalausra.... en þetta er samt hörkuduglegt fólk..... ég gat samt ekki annað en hlegið yfir ýmsu. Sella einfalda...... (betra að geta hlegið að og með svona fólki, er það ekki málið) |
fimmtudagur, september 23, 2004
ÉG VILDI AÐ ÉG VÆRI Í KENNARAVERKFALLI.....
Minnist þess þegar við fórum í kennaraverkfall í grunn-og framhaldsskóla.... þvílíkt og annað eins ljúfa líf. Áhyggjulaus vaknaði maður á morgnanna, hringdi í vini og fékk þá til að hanga með sér í Kringlunni, leigja videó, passaði litlu systkyni vina sinna eða hékk bara einhvers staðar og chillaði....
Ohh mig langar svo að fá aftur svona róleg móment, slappa af og vera áhyggjulaus unglingur. Er fólk ekki sammála mér.
Ekki það að ég skilji ekki að það sé kennaraverkfall, þessi laun mega alveg hækka slatta fyrir vinnuna sem kennarar vinna. Þetta er mjög vanmetin vinnustétt!!!
ALLT AÐ GERAST...... Já bara komin ferðaplan, mín er á leið til Danmerkur, Finnlands og Eistlands á ráðstefnu NESU Búin að kaupa flugmiðana alla þannig að planið er svona: Kaupmannahöfn 30.október, gist í eina nótt. Helsinki 31.október þaðan tekin ferja til Tallin (Eistlandi) þar sem við verðum í tvo daga og förum aftur til Helsinki. Þaðan fer ég svo til Köben 7.nóvember. Mun svo gista tvær nætur í Kóngsins köben hjá henni Telmu minni því hún ætlar að taka vel á móti mér og sýna mér sætu skiptinámsborgina sína..... TELMA strax farin að hlakka til......
|
Þægilegt og notalegt kvöld í Grafarvoginum..... Kíkti til Guðrúnar Helgu og Gauta í kaffi í kvöld með þeim HÍ skvísum Jóhönnu og Elínu..... og mikið rosalega getur maður spjallað þegar maður hefur ekki hitt vini sína heilt sumar! Mikið búið að gerast, Hanna búin að kaupa íbúð, Elín komin með kall og Guðrún og Gauti eiga vona á barni..... eintóm hamingja...........Til hamingju öll Ekki verra að ég fékk eitt besta súper nachos ala Helga, bið hér með um uppskriftina, fleiri verða að fá að njóta þess! TAKK FYRIR ÆÐISLEGT KVÖLD..... bíð spennt eftir næsta hittingi hjá Hönnu. |
þriðjudagur, september 21, 2004
Saumó-plan næstu viku!!!! Vildi bara koma því hér á framfæri að ég er með 2 saumaklúbbi í næstu viku......ákvað að bjóða gellunum heim í tilefni afmælis míns, ekki amalegt verð 23 ára gamalmenni Mánudaginn 27. september mun ég bjóða Réttó gellunum til mín kl:20:30 og Miðvikudaginn 29. september munu hinar skólaskvísurnar úr 6-D Versló líta á mig..... nánar tiltekið kl. 20:30. Hlakka til að sjá ykkur allar og endilega látið mig vita ef þið komist ekki, annað hvort með emaili sesselg@hi.is eða í símann minn..... you know my number ;) |